Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga íbúaráðs Breiðholts um fýsileika á kaupum og rekstri loftgæðamælis í Breiðholti, sbr. 2. liður fundargerðar íbúaráðs Breiðholts, dags. 7. febrúar 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 20. mars 2024:
Fulltrúa Flokks fólksins telur að alla jafna þegar rætt er um loftmengun sé miðað við loftmengun við Grensásstöð. Sú stöð hefur lítið gildi í Breiðholti og í öðrum úthverfum. Þess vegna er meira en sjálfsagt að setja upp stöðvar í úthverfum. Í umsögn er lagt til að í ljósi kostnaðar við kaup og rekstur á færanlegri mælistöð og þess að ódýrar stöðvar skila ekki áreiðanlegum gögnum, verði ekki keyptar og reknar stöðvar í hverju hverfi borgarinnar. Segir í umsögn að með mögulegri nýrri færanlegri stöð Heilbrigðiseftirlitsins og loftgæðaspálíkani Umhverfisstofnunar má auka mælingar í hverfum. Fulltrúi Flokks fólksins telur að vel sé hægt að kaupa almennilegan mæli í Breiðholti, mæli sem mark er á takandi.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins, sbr. 33. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. nóvember 2023. Einnig lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 8. apríl 2024.
Tillögunni er vísað frá með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK23110254
Flokkur fólksins lagði til að settur verði á laggirnar hópur til að skoða hvaða leiðir er hægt að fara til að gera bílastæðahús sem Reykjavíkurborg rekur meira aðlaðandi, öruggari og aðgengilegri. Tillögunni er hafnað. Húsin eru í dag rekin með tugi milljóna króna tapi og standa mörg þeirra allt að því auð löngum stundum. Einhver vinna er í undirbúningi í þessu hjá meirihlutanum en vitað er að aðgangskerfið er ekki að virka sem skyldi. Gjald í þessum húsum er auk þess allt of hátt. Það eru hópar fólks sem ekki treysta sér að nota bílastæðahúsin, finnst þau þröng, óaðlaðandi og finnst greiðslukerfið erfitt. Enga aðstoð er hægt að fá í bílastæðahúsum ef upp koma vandamál. Fulltrúi Flokks fólksins finnst það verkefni borgarmeirihlutans að gera eitthvað í þessu. Leggjast þarf yfir þessi mál með heildstæðum hætti. Útvistun er ekki svarið. Einkavæðing hefur jafnan í för með sér samdrátt í þjónustu og/eða hækkun verðskrár. Bílum er að fjölga enda almenningssamgöngur ekki nógu góðar. Þess vegna er mikilvægt að geta nýtt bílastæðahúsin og með því fengið fleiri bíla af götunum. Það hlýtur að vera markmið okkar allra en ekki að halda úti hálftómum bílastæðahúsum.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um Hlemm, sbr. 21. liður fundar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 14. febrúar 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 8. apríl 2024.
Fulltrúi Flokks fólksins telur að það verði að ræða við hagaðila þegar fara á í umtalsverðar breytingar á nánasta umhverfi. Stór verkefni þurfa að vera í samvinnu við fólk umhverfi/náttúru og í sátt og samlyndi að sjálfsögðu. Í þessari fyrirspurn var spurt um samráð við rekstraraðila Mathallarinnar á Hlemmi um framkvæmdir sem þar eru í gangi og hvaða áhrif þær hefðu á viðskipti Mathallarinnar? Í svari kemur fram að haldinn var fundur með fulltrúum Mathallarinnar. vegna framkvæmdanna. Einn fundur getur nú varla talist mikið samráð að mati Flokks fólksins. Umhverfis- og skipulagssvið leggur allt annan skilning í hugtakið “samráð” en flestir aðrir. Og “samráðsferli” er ekkert alvöru samráð heldur aðeins tilkynning um hvað eigi að gera. Komi athugasemdir þá er að mestu gengið til móts við þær sem eru smávægilegar og einfaldar en aldrei er farið í að gera stórar breytingar jafnvel þótt fjöldi manns kalli eftir þeim. Spurt var einnig um kostnað við næsta áfanga. Hann er 250 m. kr. og lýkur verki 2023. Fulltrúi Flokks fólksins taldi að hægja ætti á þessu verkefni næsta ár nú þegar verið er að reyna að ná niður verðbólgu. Til þess þarf að hægja á fjárfrekum framkvæmdum og finna þess í stað fleiri leiðir til að auka tekjur.