Umhverfis- og skipulagsráð 21. ágúst bókanir Flokks fólksins

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer kynning á innleiðingu á loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins og útreikning á losun:

Vegasamgöngur skipa og flugumferð losa kolefni í andrúmsloftið. Áætlað er að losun frá vegasamgöngum hafi minnkað um 7% milli áranna 2019 til 2022 ekki síst vegna Covid en nú eykst bílaumferð Ekki hefur verið brugðist við aukinni umferð með því að setja upp snjallljósakerfi til að draga úr töfum með tilheyrandi mengun og losun. Skipaumferð losar mikið sem og flugumferð. Raftenging í höfnum mun skipta sköpum þegar kemur að losun við hafnir. Því hraðar sem orkuskiptin verða því minni losun en eitthvað hefur hægst þar á. Reykjavíkurborg getur gert margt til að draga úr losun. Flokkur fólksins hefur lagt til skógrækt á umfangsmiklum svæðum og auka má umfang bindingar í landi og gróðri, t.d. með endurheimt votlendis og uppgræðslu. Úrgangsmál eru nú öll önnur eftir að nýtt flokkunarkerfi var tekið í notkun og á ávinningur þess eftir að verða sýnilegur. Reykjavík var sein til að hefja flokkun á söfnunarstað en árið 2018 voru mörg sveitarfélög farin að stað og tillögur Flokks fólksins lágu fyrir strax á því ári að fylgja í sömu fótspor. En betur má ef duga skal, setja þarf skýrari reglur um t.d. þann úrgang sem fellur til í framkvæmdum.

 

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga um úthlutun styrkja frá loftslagssjóði ungs fólks.

Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessum umsóknum sem er merki um áhuga ungs fólks á loftslagsmálum. Styrkumsóknir eru mismunandi eins og gengur. Votlendi er ein stærsta uppspretta losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Vandasamt er að endurheimta votlendið og eru því allar hugmyndir vel þegnar. Endurheimt votlendi skiptir miklu máli en Reykjavík er ekki á votlendissvæði, ekki síst því að mýrar sem voru í Reykjavík hafa að mestu verið þurrkaðar upp og vandasamt er að endurheimta þær, svo sem Kringlumýri og Laugarmýri. Þá hefur meirihlutinn hafnað því að auka skógrækt með kolefnisbindingu í huga.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 19. liður fundargerðar fundar umhverfis- og skipulagsráðs 15. maí 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 8. ágúst 2024

Flokkur fólksins lagði til að bílastæðum við Dalslaug yrði fjölgað. Tillagan er felld. Fjölgun bílastæða er bráðnauðsynleg aðgerð þar sem margir einfaldlega treysta sér ekki til að heimsækja laugina vegna aðgengis vanda. Fólk sem kemur lengra að hefur neyðst til að leggja í bílastæði inn í hverfi sem ætluð eru íbúum. Til að hægt sé að gera þessa breytingu samkvæmt meðfylgjandi umsögn, þarf lóðarhafi, sem væntanlega er Reykjavíkurborg (annað hefur í það minnsta ekki komið fram) að framkvæma samgöngumat í samstarfi við umhverfis- og skipulagssvið. Jafnframt þarf að breyta deiliskipulagi þar sem fjöldi bílastæða kemur fram í samþykktu deiliskipulagi. Þarna voru gerð mistök sem þarf að leiðrétta ef laugin á að vera fyrir aðra en þá sem næst búa. Óhætt er að segja að um hugsanavillu eða jafnvel dómgreindarleysi að ræða að ætla að samnýta bílastæði við skóla og íþróttahús. Á meðan almenningssamgöngur eru eins slæmar og raun ber vitni eru borgarbúar háðir einkabílnum. Vonandi verður dreginn lærdómur af þessum mistökum og þess gætt að hafa næg bílastæði í kringum þjónustu-

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: 12. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins að fjölga bílastæðum við Dalslaug:

Samþykkt að vísa tillögunni frá með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins USK24080123

Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

Það er ekki á forræði ráðsins að fjölga bílastæðum.

Bókun Flokks fólksins:

Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að lóðarhafi sem er Reykjavíkurborg eftir því sem næst kemst, undirbúi jarðveginn í samráði við umhverfis- og skipulagsráð svo hægt sé að fjölga bílastæðum við Dalslaug. Þessari tillögu er hafnað af meirihlutanum og skipulagsyfirvöldum. Gera þarf samgöngumat í samstarfi við fulltrúa umhverfis- og skipulagssviðs ef það þarf að vera fyrsta skrefið til að leiðrétta þessi mistök og í kjölfarið að fara í breytingu á deiliskipulagi þar sem fjöldi bílastæða kemur fram í samþykktu deiliskipulagi. Að ætla að samnýta bílastæði fyrir laugargesti, skóla og bókasafn sem og íþróttahallar eru mistök. Hvernig sem á málið er litið eru allt of fá bílastæði þarna sem ætluð eru laugargestum. Dalslaug er vinsæl og fjöldi gesta á íþróttavöllinn er oft einnig gríðarmikill. Þarna hafa verið gerð skipulagsmistök sem verður að leiðrétta. Fjölga þarf bílastæðum umtalsvert. Um helgar og þegar viðburðir eru auk þess í íþróttahúsinu ríkir þarna algjört kaos svo vægt sé til orða tekið. Foreldrar þurfa að leggja inn í hverfi, oft fjarri lauginni og íþróttahúsinu og ganga langan veg, sumir með stóran barnahóp og tilheyrandi sunddót og annað sem fylgir sundferðum. Nærliggjandi íbúar geta varla heldur verið ánægðir með að sundlauga- og íþróttahúsgestir þurfi að leggja í stæði ætluð íbúum hverfisins.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 40. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024 að farið yrði þess á leit við lóðarhafa að fjölga bílastæðum við Dalslaug:

Tillagan er felld með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK24080105

Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að lóðarhafi sem er Reykjavíkurborg eftir því sem næst kemst, undirbúi jarðveginn í samráði við umhverfis- og skipulagsráð svo hægt sé að fjölga bílastæðum við Dalslaug. Þessari tillögu er hafnað af meirihlutanum og skipulagsyfirvöldum. Gera þarf samgöngumat í samstarfi við fulltrúa umhverfis- og skipulagssviðs ef það þarf að vera fyrsta skrefið til að leiðrétta þessi mistök og í kjölfarið að fara í breytingu á deiliskipulagi þar sem fjöldi bílastæða kemur fram í samþykktu deiliskipulagi. Að ætla að samnýta bílastæði fyrir laugargesti, skóla og bókasafn sem og íþróttahallar eru mistök. Hvernig sem á málið er litið eru allt of fá bílastæði þarna sem ætluð eru laugargestum. Dalslaug er vinsæl og fjöldi gesta á íþróttavöllinn er oft einnig gríðarmikill. Þarna hafa verið gerð skipulagsmistök sem verður að leiðrétta. Fjölga þarf bílastæðum umtalsvert. Um helgar og þegar viðburðir eru auk þess í íþróttahúsinu ríkir þarna algjört kaos svo vægt sé til orða tekið. Foreldrar þurfa að leggja inn í hverfi, oft fjarri lauginni og íþróttahúsinu og ganga langan veg, sumir með stóran barnahóp og tilheyrandi sunddót og annað sem fylgir sundferðum. Nærliggjandi íbúar geta varla heldur verið ánægðir með að sundlauga- og íþróttahúsgestir þurfi að leggja í stæði ætluð íbúum hverfisins.

 

Næstu mál sem hér koma voru öll lögð fram á fundi 14. ágúst ásamt greinargerðum sem sjá mér hér 
https://kolbrunbaldurs.is/wp-admin/post.php?post=5180&action=edit

 

  1. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 46. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. ágúst 2024. 

 

Frestað USK24080115

  1. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 45. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar Strætó bs. USK24080110

og íþrótta mannvirki eins og sundlaug.

 

  1. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 44. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Visað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK24080109

  1. Lögð fram fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 48. liður fundargerðar borgarráðs dags. 11. júlí 2024

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu borgarlandsins MSS24070041

  1. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 43. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar Strætó bs. USK24080114

  1. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 42. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa og skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK24080108

  1. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 41. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar USK24080107

 

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 49. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar USK24080125

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 50. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds USK24080122

 

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 51. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða USK24080119

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 52. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, deildar aðalskipulags USK24080120

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 53. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds USK24080117

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 54. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds USK24080111

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 55. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar Vegagerðarinnar USK24080116

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 56. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar USK24080112

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 38. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 26. júní 2024.

 

Vísað frá USK24060405

  1. Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 37. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 26. júní 2024.

 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa USK24060434