Tveggja mínútna innlegg frá Flokki fólksins við umræðunni um áfengis- og vímuefnavandann
Segja má nánast fyrir víst að sérhver einstaklingur þekki til þessa sjúkdóms hvort sem hann glímir við hann sjálfur, eða hefur kynnst honum hjá öðrum, s.s. ættingjum eða vinum
Ekki hefur verið nægjanlega vel haldið utan um þessi mál hjá síðustu ríkisstjórn. Sífelld barátta hefur verið í gangi að halda þjónustunni opinni t.d. um sumartímann. Það er bagalegt eins og félags- og húsnæðismálaráðherra segir: Fíknin fer ekki í sumarfrí
Tekið er undir með framsögumanni að upplýsingar vanti um umfang áfengis- og fíknivanda en slíkar upplýsingar eru mikilvægar til að átta sig betur á þörfinni.
Hér er ekki verið að gagnrýna árangur þjónustunnar. Við vitum að meðferð á Vogi hefur bjargað mörgum mannslífum.
Biðtími fyrir þann sem bíður meðferðar hlýtur að vera oft að vera hreinasta víti jafnvel þótt hann sé aðeins fáeinar vikur. Ekki er vitað um kannanir sem hafa skoðað hvernig þeim sem bíða meðferðar vegnar á biðtímanum með tilliti til sjúkdóms síns og fylgikvilla hans.
Komið hefur m.a. fram í skýrslu ríkisendurskoðunar að ákveðnir hópar fái ekki þjónustu við hæfi í þeim úrræðum sem til eru.
Ef horft er til ungra neytenda má einmitt spyrja að þessu og einnig hvort úrræði séu nægjanlega fjölbreytt? Er tekið tillit til einstaklingsbundinna þátta í þeim úrræðum sem í boði eru? Það er alveg tilefni til að skoða þetta nánar.
Þegar um neytendur undir 18 ára er að ræða reynir á barnaverndarkerfið og stuðningsúrræði fyrir foreldra. Mikilvægt er að geta veitt ungmennum viðeigandi meðferðarúrræði sem tekur tillits til ungs aldurs þeirrra.
Ég fagna þeirri vinnu sem ríkisstjórn Íslands ætlar takast á hendur í þessum málum. Til að draga úr vandanum þá þurfum við sífellt að skoða gæði forvarna og hvort þurfi að efla þær.
Aðdragandi að áfengis- og fíknivanda er oft margra missera ef ekki ára. Alkóhólismi og fíknsjúkdómar er stigvaxandi sjúkdómur. Á meðan alkóhólistinn drekkur / neytir vímuefna mun ástandið aðeins versna.