Tafaleikir og málþóf heimskulegt útspil fallandi flokka

Nýleg könnun Maskínu sýnir sterka vísbendingu um að málþóf og tafaleikir stjórnarandstöðunnar skili henni engu nema fylgistapi og skömm. Það hefur legið fyrir í nokkrar vikur að tafaleikir stjórnarandstöðunnar og málþóf féllu ekki í góðan jarðveg hjá þjóðinni. Engu að síður héldu þessir þrír flokkar áfram skemmdarverkastarfsemi sinni og þæfðu mál ríkisstjórnarinnar, jafnvel mál sem áttu rætur að rekja til fyrri ríkisstjórnar.

Eitt af markmiðum stjórnarandstöðunnar var sjá til þess að sem fæst mál fengju eðlilega þinglega meðferð. Allt var gert til að reyna að útiloka að frumvarp um breytingar á veiðigjaldi kæmist til lokaafgreiðslu. Sama hvað það kostaði og burtséð frá því hvort almenningi líkaði það betur eða verr. Óánægja fólks með málþóf og tafir skipti minnihlutann engu máli.

Tafaleikir og málþóf var viðhaft á öllum stigum þinglegrar meðferðar í nánast öllum málum. Það varð fljótt ljóst að drifkraftur stjórnarandstöðunnar til skemmdarverka var annar en hagsmunir almennings. Hvatningin til málþófs kom nánast öll úr einni átt, frá samtökum útgerðanna.

Það hefur farið í taugarnar á stjórnarandstöðunni hvað ríkisstjórnin og flokkarnir sem standa henni að baki starfa vel saman. Þetta hefur framkallað biturð og pirring hjá minnihlutanum. Hvert tækifæri hefur verið notað til að úthúða Flokki fólksins og formanni hans, enda telja Sjálfstæðismenn og jafnvel Miðflokksmenn, sem héldu að þeir gætu gengið að samstarfi við Flokk fólksins vísu að loknum kosningum, að þeir eigi harma að hefna.

Þrátt fyrir málþóf og ósvífni minnihlutans við að tefja mál tókst að afgreiða 35 stjórnarfrumvörp á þessum fyrstu fimm mánuðum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og 11 þingsályktanir. Aðeins eitt þingmál varð eftir í nefnd. Það var ekki síst fyrir röggsemi þingmanna Flokks fólksins í nefndarstörfum.

Með málþófi og tafaleikjum tókst Sjálfstæðisflokki, Miðflokki og Framsóknarflokki að koma í veg fyrir samþykkt 16 frumvarpa Viðreisnar, 10 frumvarpa Samfylkingarinnar og níu frumvarpa ráðherra Flokks fólksins. Þeirra á meðal er frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingar á húsaleigulögum sem ætlað er að stórbæta réttindi leigjenda með skráningu allra leigusamninga og þaki á hækkun húsaleigu. Frumvarpi um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks voru ekki heldur gefin grið.

Þingmenn stjórnarandstöðunnar ættu að skammast sín og ég vona að þeir geri það. Það var sorglegt að sjá jafnt reyndari þingmenn sem óreynda varaþingmenn stjórnarandstöðunnar leggja allt í sölurnar í vörnum fyrir stórútgerðina. En kannanir sýna að þar sáðu þessir þrír flokkar ekki til góðrar uppskeru.

Birt í Morgunblaðinu 25. júlí 2025