Ofbeldi gegn öldruðum er falið vandamál

Margt bendir til að heimilisofbeldi gegn fólki á efri árum sé falið samfélagslegt vandamál sem flestir ættu að vera sammála um að þurfi að taka alvarlega.

Ein algengasta ástæða fyrir útkalli lögreglu er ofbeldi gegn fullorðnu fólki inn á heimilum þess. Rannsóknarniðurstöður sýna að gerendur eru oftast einhver í nánasta umhverfi þess sem ráðist er á, jafnvel einhver sem viðkomandi er háður eða fær stuðning frá.

Eðli málsins samkvæmt er erfitt að tilkynna einhvern sem maður er tengdur fjölskyldu- og tilfinningaböndum hvað þá að leggja fram formlega kæru gagnvart viðkomandi.

Meðvirkni flækist fyrir

Meðvirkni er algengt fyrirbæri í ofbeldissamböndum og tekur á sig ýmsar birtingarmyndir. Kjarni meðvirkni er að hegðun og líðan annarra fer að hafa áhrif á hegðun og líðan manns sjálfs.  Meðvirkni í ofbeldissamböndum snýst um að þóknast gerandanum, jafnvel að hylma yfir með honum. Hinn meðvirki upplifir jafnvel  að ofbeldið  sé honum sjálfum  að kenna. Hann upplifir skömm og telur stundum að hann eigi ofbeldið skilið. Meðvirkum einstaklingi finnst hann ekki eiga annan kost en að lifa við óbreyttar aðstæður og vill því ekki „rugga bátnum“. Meðvirkur einstaklingur vill helst reyna að halda öllum góðum. Elsta kynslóðin í samfélaginu er líklegri til að vera alin upp við þau skilaboð að bera ekki vandamál fjölskyldunnar á torg og harka heldur  af sér. Aldraðir eru þess vegna ólíklegri til að tilkynna ofbeldi.

Ekki nóg að bara tala

Það er ekki nóg að ræða málið, grípa þarf til aðgerða sem virka. Það er mikilvægt að það sé alltaf tekið alvarlega þegar fólk greinir frá ofbeldi. Skiptir þá engu máli á hvaða aldri fólk er. Greini eldri einstaklingur frá ofbeldi í sinn garð á að reikna með að tilefnið sé ærið og jafnvel að mikið hafi á undan gengið.

Flokkur fólksins hefur lengi talað fyrir stofnun embætti hagsmunafulltrúa aldraðra og hefur félags- og húsnæðismálaráðherra boðað að ráðinn verði  hagsmunafulltrúi aldraðra  á kjörtímabilinu. Hagsmunafulltrúinn verði málsvari aldraðra, leiðbeini þeim um rétt þeirra og hafi frumkvæðiseftirlit með  högum þeirra. Hagsmunafulltrúi aldraðra gæti verið sá aðili sem eldri borgari sem býr við ofbeldisaðstæður leitaði til.

Lítum okkur nær

Allar stofnanir sem annast eldra fólk eiga að hafa virka aðgerðaráætlun gegn ofbeldi. Hvetja þarf starfsfólk sem annast eldra fólk, bæði á heimilum og stofnunum að tilkynna ef grunur leikur á ofbeldi gagnvart eldra fólki. Spyrnum fótum  með aðgerðum, aukinni fræðslu og forvörnum svo auka megi meðvitund sem flestra í samfélaginu.
Ef eldra fólk greinir  frá ofbeldi kemur fyrir að það sé hunsað eða að kvörtunin sé skrifuð á reikning elli kerlingar, minnisglapa eða heilabilunar. En eins og áður sagði, ber að taka öllum tilkynningum um ofbeldi alvarlega og taka þær til rannsóknar.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, alþingismaður

Greinin er birt í Morgunblaðinu 8. október 2025