Forseti
Ég vil þakka háttvirtum þingmanni Hildi Sverrisdóttur fyrir að mæla fyrir þessu góða frumvarpi. Heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga er eitt af þeim „kerfum“ sem sérhver landsmaður nýtir sér einhvern tímann á ævinni með einum eða öðrum hætti. Þjónusta þess þarf því að vera á eins breiðum grunni og framast er unnt. Þjóðin er einnig afar lánsöm að eiga þess kost að þiggja þjónustuna úr höndum færustu sérfræðinga og vel þjálfaðs starfsfólks.
Að eignast eða eignast ekki börn, er spurning sem flestir standa frammi fyrir einhvern tíma á ævinni. Það reynist því miður samt all nokkrum fjölda fólks erfiðara að eignast börnin en að svara spurningunni.
Þeir einstaklingar/pör sem eiga við ófrjósemi að stríða eru meðal þeirra sem þiggja þjónustu frá heilbrigðiskerfinu. Skilgreining á ófrjósemi er þegar par hefur reynt að eignast barn í eitt ár án árangurs. Talið er að 15-20% para á barneignaraldri glími við ófrjósemi einhvern tímann á lífsleiðinni. Ófrjósemi er fyrst og fremst líffræðilegt vandamál enda þótt sálrænir þættir hafi svo sannarlega áhrif.
Aðeins þeir sem hafa verið og eru í þeirri stöðu að eiga við ófrjósemi að stríða og reynt hafa að eignast barn með aðstoð tæknifrjóvgunar vita hversu mikið álag og áhrif það hefur á tilfinninga- og líkamlega líðan.
Ef meðferðin skilar ekki árangri eykst álagið oft enn frekar þegar tilfinningar eins og sorg, vonleysi og kvíði gera vart við sig. Hversu mikið erum við sem samfélag tilbúin til að hjálpa þessum hópi og í hverju gæti hjálpin einna helst falist?
Sú hjálp sem mun helst nýtast þeim sem eiga við ófrjósemi að stríða hlýtur fyrst og fremst að lúta að þjónustunni sem þeim stendur til boða eða á að standa til boða. Tæknifrjóvganir eru dýrar og oft er fleiri en einnar meðferðar þörf.
Ég vil að löggjafinn geri betur í þessum málaflokki og liðki fyrir með öllum ráðum. Losa þarf um hindranir og óþarfa vegatálma á þessari vegferð sem er nógu erfið samt
Ófrjósemi virðist vera vaxandi vandamál. Ástæða þess að um er að ræða vaxandi vandamál er varla hvorki einhlít né einföld. Mörgum finnst auðvelt að setja sig í spor þeirra sem eiga við þennan vanda að stríða jafnvel þótt þeir hafi ekki sjálfir persónulega reynslu af honum. Ég er þeirrar skoðunar að við getum gert betur í þessum málaflokki.