Í störfum þingsins 4.11. 2025
Virðulegi forseti
Flokkur fólksins hefur lengi barist fyrir banni við blóðmerahaldi. Það er óásættanlegt að blóði sé tappað af fylfullum hryssum í hagnaðarskyni og er ekkert annað en kerfisbundið dýraníð. Sársaukafull hagnýting dýranna ræður för en umhyggja fyrir þeim situr á hakanum.
Blóðtaka úr fylfullum hryssum til framleiðslu á PMSG-hormóni var felld undir reglugerð um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni haustið 2023, eftir að íslensk stjórnvöld fengu formlegt áminningarbréf frá ESA, Eftirlitsstofnun EFTA. Þar kom fram að framkvæmd þessarar blóðtöku á Íslandi bryti í bága við tilskipun Evrópusambandsins um vernd tilraunadýra. Starfsemin hefði verið ranglega flokkuð sem hefðbundinn landbúnaður í stað tilraunastarfsemi.
Þetta þýðir að blóðmerahald hefur árum saman farið fram án lagalegrar verndar dýranna. Árið 2020 ákvað Matvælastofnun að hlífa fyrirtækinu Ísteka við þeim kröfum sem reglur um tilraunadýr gera, með því að flokka starfsemina sem landbúnað. Þannig voru hryssurnar sviptar þeirri vernd sem þeim ber samkvæmt lögum.
Nú hefur þessi flokkun verið leiðrétt og starfsemin fellur því undir reglugerð um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Forsvarsmenn Ísteka hafa mótmælt aukinni vernd dýranna og vísað málinu til dómstóla. Það er til marks um hversu röng þessi starfsemi er að verndun dýra skuli af sumum talin ógn við atvinnugrein.
Á undanförnum árum hafa fjölmargir bent á að blóðtaka úr fylfullum hryssum veldur verulegri þjáningu. Dýrunum er haldið við erfiðar aðstæður, missa mikið blóð og stressast við aðfarirnar. Þetta eru ekki einangruð tilvik heldur iðnaður með þúsundir dýra. Iðnaður sem þjónar fyrst og fremst erlendum lyfjafyrirtækjum sem nýta PMSG-hormónið til framleiðslu frjósemislyfja fyrir fjöldaframleiðslu svína í öðrum löndum.
Virðulegi forseti tími blóðmerahalds er liðinn. Við eigum að ganga fram með góðu fordæmi og leggja bann við þessari starfsemi með skýrum hætti í lögum.