Flokkur fólksins var beinlínis stofnaður til að berjast gegn fátækt og þá sérstaklega barna og foreldra þeirra. Það er bláköld staðreynd að fátækt og ójöfnuður eru til staðar í okkar góða landi. Þetta sýna fjölmargar rannsóknir og skýrslur.
Eitt af hverjum fimm börnum sem búa í leiguhúsnæði er líklegt til að búa við fátækt og 8,2 prósent þeirra búa við skort. Aðeins hluti fjölskyldna sem býr við fátækt fær fjárhagsaðstoð. Á það hefur þó verið bent að ekki séu bein tengsl á milli fjárhagsstöðu fjölskyldunnar og þeirra kjara sem barnið býr við. Flestar greiningar síðustu ára benda til að á milli 11-13 prósent barna á Íslandi búi við fátækt
Helsta birtingamynd fátæktar barna hjá vel megandi þjóðum
Fátækt birtist í mörgum myndum og orsakir og ástæður hennar eru margslungnar. Fátækt getur til dæmis skapast án mikils fyrirvara vegna veikinda eins eða fleiri í fjölskyldunni. Óöryggi í húsnæðismálum, há leiga og tíðir flutningar geta takmarkað möguleika barnanna til tómstunda og hefur neikvæð áhrif á félags- og sálfræðilegra líðan.
Afleiðingar þess að alast upp við efnislegan skort
Skortur hefur áhrif á sjálfsmat og sjálfsöryggi barna. Þeim hættir til að líta á sig sem síðri en önnur börn eða vanmáttugri en jafnaldrar þeirra frá betur settum heimilum. Þau upplifa jafnvel skömm, niðurlægingu, einelti og einangrun vegna þess að þau sitja ekki við sama borð og önnur börn.
Margt þarf að gera
Mikilvægt er að fjölskyldan hafi fjárhagslegt svigrúm til daglegrar samveru og geti notið þess að taka saman sumarfrí. Heimilið skiptir sköpum, börn þurfa að hafa aðstöðu sem þeim líður vel í heima til að sinna heimanámi, leik, tómstundum og samskiptum við vini.
Nýlega ákvað Mennta- og barnamálaráðherra að setja á fót stýrihóp um sértækar og markvissar aðgerðir til að finna leiðir sem tryggja mætti börnum jafnari tækifæri óháð efnahag og félagslegri stöðu. Undirrituð leiðir starf hópsins sem mun leggja fram stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna. Stýrihópurinn hefur þegar hafið störf og stefnir að því að eiga samtöl og samráð við fjölmarga fulltrúa, grasrótarsamtaka, fagfólks í málefnum barna og við fullorðna sem búa við fátækt og fólk sem þekkir fátækt af eigin raun. Það er mikil áskorun að finna sértækar, skilvirkar leiðir sem skila mælanlegum árangri en Stýrihópurinn mun leggja sig allan fram í þessu krefjandi verkefni.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
þingmaður Flokks fólksins og formaður stýrihóps um aðgerðir vegna fátæktar barna
Birt í Morgunblaðinu 12.12 2025