Embættisafglöp borgarstjóra

Borgarstjóri gerir stór mistök í starfi með því að leggja niður Borgarskjalasafn undir merkjum sparnaðar. Meirihlutinn í borgarstjórn mun greiða atkvæði með niðurlagningunni  á fundi borgarstjórnar 7. mars 2023 og verður ekki við neitt ráðið. Borgarstjóri er að fylgja eftir vondri og eiginlega óskiljanlegri ráðgjöf einhverra,  að öllum líkindum frá ákveðnum embættismönnum.

Farið var á svig við allt samráð og samvinnu við starfsmenn og borgarskjalavörð og kom ákvörðun um niðurlagningu safnsins eins og blaut tuska í andlit þeirra. Ekki er vitað hvað gera á gríðarleg verðmæti sem safnið heldur utan um eða þjónustuna sem það veitir.

Skýrsla KPMG er kapítuli út af fyrir sig

Mikið er af sérkennilegum staðhæfingum í skýrslu KPMG.  Meintur sparnaður við aðgerðina er stórlega ýktur í skýrslu KPMG. Sem dæmi er gert ráð fyrir að verja þurfi milljörðum í skrifstofur fyrir safnið þar sem það eigi að víkja úr Grófinni. Miðað er við áratuga greiningu á húsnæðisþörf sem var fyrir tíma stafrænna geymslu. Sagt er að ráða þurfi fleira starfsfólk sem kemur flatt upp á borgarskjalavörð en ekki var rætt ítarlega við borgarskjalavörð sem hlýtur að þekkja þarfir og stöðu safnsins best.

Í skýrslu KPMG koma fram margháttaðar ávirðingar á borgarskjalavörð sem snúa að stöðu mála sem tengjast stafrænni þróun Borgarskjalasafns. Það er afar ófagmannlegt í skýrslu sem þessari að birta slíkar ávirðingar án þess að andmælaréttur viðkomandi sé virtur en í stjórnsýslulögum er kveðið sérstaklega á um andmælarétt. Hver er kominn til með að segja að þessar ávirðingar séu á rökum reistar og hvaðan skildu þær nú koma?

Ábyrgð sviðsstjóra Þjónustu- og nýsköpunarsviðs

Borgarskjalasafn heyrir undir sviðsstjóra Þjónustu- og nýsköpunarsviðs (ÞON). Það er frekar sérstakt  þar sem ÞON hefur venjulega það hlutverk að styðja við svið og stofnanir borgarinnar en ekki ráðskast með þær, svo sem að leggja þær niður. Fram kemur að vefurinn hefur legið niðri en hver ber ábyrgð á að halda vef undirstofnunar gangandi? Er það ekki einmitt ÞON? Ítrekað hefur komið fram að Borgarskjalasafn hafi ekki fengið umbeðnar fjárveitingar til að þróa starfsemi safnsins áfram. Benda má á að heildarrekstrarkostnaður safnsins er vel innan við 200 milljónir króna á ári og þar af launakostnaður vel undir 100 milljónum. Flokkur fólksins veltir því upp hvort safnið hafi verið fjársvelt markvisst til að auðveldara væri að finna höggstað á þeirri starfsemi sem þar fer fram og því starfsfólki sem er þar í forystu?

Það segir sig sjálft að til þess að safnið geti sinnt lögbundnu eftirlitshlutverki sínu þarf að tryggja sjálfstæði þess gagnvart stjórnendum borgarinnar. Óhæði safnsins er lykilatriði í eftirliti með skjalagerð og skjalavörslu. Þar sem ÞON ber ábyrgð á skjalavörslu borgarinnar þá er í raun bæði eftirlit með skjalavörslu og framkvæmd skjalavörslu á höndum sama aðila. Undir þetta er í raun tekið í skýrslunni.

Meirihlutinn hefur sóað fé í alls konar vitleysu í gegnum árin

Borgarstjóri segir að leggja eigi Borgarskjalasafn niður í sparnaðarskyni. Á það má benda til samanburðar að ÞON hefur haft til ráðstöfunar yfir þrjá milljarða á ári á undanförnum árum að því sagt er til margháttaðra þróunarverkefna, tilrauna og uppgötvunarvinnu

Fulltrúi Flokks fólksins telur mjög eðlilegt að í samhengi við aðförina að Borgarskjalasafni verði annað greiningarfyrirtæki enKPMG fengið til að gera sérstaka skýrslu um hvernig verklag hefur verið þar innan dyra og hverju þeir fjármunir hafa skilað?

Hvað segir menntamálaráðherra?

Í skýrslu KPMG kemur ekkert fram um hvort eða þá hvernig Þjóðskjalasafnið sé í stakk búið til að taka við Borgarskjalasafni. Þá vakna ýmsar spurningar:

a.      Vill Þjóðskjalasafnið gera það og hafa átt sér stað einhverjar viðræður um þau mál?

b.      Hvert er kostnaðarmat Þjóðskjalasafnsins og menntamálaráðherra á slíku verkefni?

d.    Hvað þyrfti Reykjavíkurborg að greiða í meðgjöf með Borgarskjalasafninu við slíkan tilflutning eða er nóg að Menntamálaráðherra sé sent bréf þess efnis að frá og með einhverjum degi sé Borgarskjalasafn á ábyrgð Þjóðskalasafns hvort sem það vill eða vill ekki?

e.     Liggur liggur fyrir skýr greining á því verkefni sem slíkum tilflutningi tilheyrir, s.s. hvað tekur hann langan tíma, hvernig er húsnæði Þjóðskjalasafns í stakk búið til að taka við slíku verkefni?

Hér stefnir í að borgarstjóri geri afdrifarík mistök í starfi.Við í minnihlutanum þurfum að horfa upp á þennan vonda gjörning og getum ekkert gert.  Borgarbúar og framtíðarborgarbúar munu líða fyrir þetta. Sagnfræðiheimurinn er í uppnámi. Sagnfræðingafélagið staðfestir að fyrirhugaðar breytingar yrðu mikil afturför. Slíkt safn sem Borgarskjalasafn veitir almenningi aðgang að sögu sinni, varðveitir sögu einstaklinga og stofnana á svæðinu. Þannig þjónar Borgarskjalasafnið íbúum borgarinnar öllum, nemendum á hverju skólastigi, stjórnmálamönnum, embættismönnum og fræðasamfélaginu af mikilli fagmennsku eins og segir í ályktun Sagnfræðifélagsins.

Birt í Morgunblaðinu 7. mars. 2023