Borgarráð 9. febrúar 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 6. febrúar 2023, varðandi stöðu umbóta- og hagræðingartillagna:

Lagt er fram til kynningar yfirlit á stöðu umbóta- og hagræðingartillagna sem samþykktar voru 8. desember 2022 við síðari umræðu í borgarstjórn um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2023. Um er að ræða tillögur meirihlutans en fjöldi hagræðingartillagna minnihlutans voru allar felldar við fyrri og seinni umræðu fjárhagsáætlunar 2022. Flokki fólksins er umhugað um tillögur sem skerða beina þjónustu við fólkið eins og tillögur vegna unglingasmiðju Stígs og Traðar og Vin dagseturs (niðurlagningar). Eins hefur tillögu til lækkunar á þjónustusamningi Sléttuvegar verið mótmælt. Mótmæli þrýstu meirihlutanum til að stíga hálft skref til baka. Velferðarráð ákvað óbreytta þjónustu Vinjar út árið 2023 og tillaga um að leggja niður unglingasmiðjurnar eru til skoðunar og meðferðar hjá starfshópi. Flokkur fólksins hefði viljað sjá meiri sparnað hjá fjárfrekum sviðum eins og hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði og hjá miðlægri stjórnsýslu. Sá sparnaður sem stefnt er að á þeim sviðum er sáralítill í stóra samhenginu.

Það eru vonbrigðum með hagræðingartillögur meirihlutans. Þar eru kynntar margar en smávægilegar tillögur sem samanlagt skila aðeins einum milljarði í hagræðingar á ársgrundvelli. Það er aðeins dropi í hafið í 15,3 milljarða hallarekstri borgarinnar. Vonbrigði eru einnig með að þá ákvörðun meirihlutans að skera niður framlög til leikskóla, grunnskóla og æskulýðs- og tómstundastarfs í borginni. Betur færi á því að minnka sístækkandi yfirbyggingu borgarinnar og lækka rekstrarkostnað, fremur en að skera niður mikilvæga grunnþjónustu.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð feli skrifstofu borgarstjóra og borgarritara að auglýsa eftir áhugasömum fyrirtækjum í skapandi greinum vegna þróunar á öðrum áfanga hverfisins Gufunes.

Hér er verið að óska eftir hugmyndum um byggingar fyrir skapandi greinar í Gufunesi. Segir í gögnum að þótt að um atvinnulóðir sé að ræða þá er opið fyrir að allt að 20% bygginga verði nýtt undir húsnæði sem tengist starfseminni, t.d. listamannaíbúðir. Kannski mætti ganga mun lengra. Vel þekkt er að fjölmargir listamenn og einyrkjar í skapandi greinum vilja vera með vinnustofu á jarðhæð sem er í tengslum við umhverfið, en búa á efri hæð. Þess vegna mætti vel hugsa sér að allt að 50% bygginga verði íbúðir.

  

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 6. febrúar 2023, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 1. febrúar 2023 á tillögu um niðurfellingu reglna um styrki til áfangaheimila:

Lagt er til af meirihlutanum að reglur Reykjavíkurborgar um styrki til áfangaheimila verði lagðar niður. Flokkur fólksins minnir á skeyti sem allir borgarfulltrúar fengu nýlega frá Draumasetrinu. Þar er óskað enn og aftur eftir svörum við spurningum Draumasetursins um hvort stuðningurinn verði tekinn af Draumasetrinu og hvernig fyrirkomulagið verður í kringum þann gjörning. Í skeyti þessu er lýst mikilli óvissu um framhaldið og er það án efa hjá fleiri áfangaheimilum sem þessi breyting snertir. Óvissan er ekki aðeins fyrir rekstraraðila heldur einnig íbúa. Vel kann að vera að þessar reglur séu komnar til ára sinna en það er ekki hægt að bjóða fólki upp á að vita ekki hvað tekur við eða bíður þeirra sem treysta á úrræði af þessu tagi.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 12. janúar 2023, þar sem óskað er eftir heimild til að hefja verkefni um talgreiningu borgarstjórnarfunda:

Samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Fulltrúi Flokks fólksins vill koma því á framfæri að hann styður öll þau verkefni sem stuðla að bættu aðgengi fyrir borgarbúa að upplýsingum um það sem fram fer í borgarstjórn. Það þarf hins vegar að forgangsraða þeim verkefnum sem brýnust eru hverju sinni sérstaklega í ljósi alvarlegrar fjárhagsstöðu borgarinnar. Huga þarf fyrst og fremst að lögbundinni þjónustu og sinna þeim sem þurfa sérstaka aðstoð. Hvað varðar væntingar borgarbúa um nákvæmlega þessa tæknilegu framkvæmd er ekki vitað og setur því fulltrúi Flokks fólksins spurningarmerki við fullyrðingu skrifstofustjóra stafrænnar Reykjavíkur um að þetta verkefni sé í takt við væntingar borgarbúa um tæknilegar framfarir og framboð á textuðu efni.

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

Við síðustu fjárhagsáætlun lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks til niðurskurð í stafrænni umbreytingu, sem nema myndi einum og hálfum milljarði króna árið 2023. Ekki verður séð að talgreining borgarstjórnarfunda geti talist forgangsverkefni við núverandi aðstæður, þar sem útkomuspá fyrir árið 2022 gerði ráð fyrir 15,3 milljarða rekstrarhalla. Betur færi á því að halda áfram tilraunaverkefni um rauntímatextun, sem myndi nægja tímabundið til að gera fundi borgarstjórnar aðgengilega öllum, en fresta frekari fjárfestingu þar til fjárhag borgarinnar hefur verið komið í betra horf.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 26. janúar 2023, þar sem óskað er eftir heimild til að hefja verkefni vegna færsluhirðingar Reykjavíkurborgar, ásamt trúnaðarmerktri greinargerð:

Ef þetta verkefni eykur sparnað og hagræðingu er fulltrúi Flokks fólksins sáttur. Áður hefur verið bent á hversu ómarkvisst og ruglingslegt hlutverk innkaupaskrifstofu Reykjavíkur er og að lítið miðlægt eftirlit eða stjórnun virðist vera á innkaupamálum Reykjavíkurborgar. Það er ljóst að það er ekki bara samræming færsluhirðingar sem þarf að innleiða, heldur þyrfti að eiga sér stað allsherjar greining á innra skipulagi fjármálaumsýslu borgarinnar. Það þarf að skoða þetta heildrænt og inn í það ferli þarf að taka innkaupamál borgarinnar. Í kjölfarið hljóta að þurfa að eiga sér stað skipulagsbreytingar sem tækju mið af þeirri greiningu. Skoða þyrfti hvernig svona málum er háttað hjá hinu opinbera almennt.

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

Við síðustu fjárhagsáætlun lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks til niðurskurð í stafrænni umbreytingu, sem nema myndi einum og hálfum milljarði króna árið 2023. Hugsanlega mun nást fram hagræðing með breytingunni, sem er sannarlega jákvætt skref, en gögn málsins eru þó nokkuð óljós hvað þetta varðar.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 7. febrúar 2023, sbr. afgreiðslu skóla- og frístundaráðs frá 6. febrúar 2023 á tillögu um útfærslu breytinga á reglum um systkinaafslátt með tilliti til skiptrar búsetu barna.

Reykjavíkurborg hefur ekki með afgerandi hætti gengist við nýjum lögum um skipta búsetu barns og þar að leiðandi ekki gert tilheyrandi breytingar á reglum sem gilda um afslátt vegna systkina vegna dvalargjalda í leikskóla, frístundaheimilum, sértækum félagsmiðstöðvum og fæðisgjalda. Skóla- og frístundasvið hefur hunsað erindi frá foreldrum með grófum hætti sem bent hefur á hið breytta lagaumhverfi. Foreldrum hefur verið synjað um systkinaafslátt fyrir skólamáltíð, án viðeigandi rökstuðnings og beiðnir um skýringar verið hunsaðar  sem kemur í veg fyrir að foreldrarnir geti sent stjórnsýslukæru til ráðuneytisins. Um var að ræða foreldra með sameiginlegt forræði þriggja barna og þar með með skipta búsetu og skipta kostnaði samkvæmt lögum. Lögheimili og búsetuheimili er hjá báðum foreldrum. Í þessum tilfellum eru engar meðlagsgreiðslur. Sú ákvörðun borgarinnar að synja þessum foreldrum um afslátt er ekki hafin yfir jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Sérstaklega er athyglisvert að borgin geti ekki vísað í regluna eða veitt foreldrum rök fyrir synjuninni. Sviðið hefur nú gert sér grein fyrir að ekki er hægt að fara á svig við lögin og er sjálfsagt að mati Flokks fólksins að afslátturinn verði afturvirkur frá því lögin tóku gildi.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki að félagsmiðstöðvarrými fyrir Laugarnes- og Laugalækjaskóla verði útfært með menningarrými og bókasafni í tengslum við stúku Laugardalslaugar. Jafnframt eru hjálögð drög að erindisbréfi starfshóps um undirbúning framkvæmda vegna skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi lögð fram til kynningar.

Borgarfulltrúi Flokks Fólksins fagnar tillögum að félagsmiðstöðvarrými fyrir Laugarnes- og Laugalækjarskóla og að skipaður verði starfshópur um nauðsynlegar og tímabærar framkvæmdir við skólana í Laugardal. Varðandi forsendur starfshópsins er ýmislegt sem þarf að fá nánari skýringar á t.d. hvers vegna það er minna byggingarmagn en lýst er í forsagnarskýrslu. Í húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar frá nóvember 2022 kemur fram að í Laugardal og nærliggjandi svæði verði byggðar 3.587 íbúðir en ekki er vitað í hvaða skólahverfum þessar íbúðir verði byggðar. Gert er ráð fyrir að stækkun leikskólans Hofs minnki skólalóð Laugarnesskóla en þá liggur ekki fyrir hvort skólinn verði þá ekki stækkaður með því að hækka byggingar eða hvort eigi að stækka hann að grunnfleti. Eins er ekki vitað hvort greining verið unnin á því hvort stærð lóðar dugi Laugarnesskóla eftir stækkun leikskólans eða hvort greining hefur farið fram á þátttökuhlutfalli nemenda skóla í frístundastarfi borgarinnar m.t.t. fjarlægðar milli staða. Flokkur fólksins veltir fyrir sér hvort gætt verði að því að samræma framkvæmdir við stækkun skólanna og viðgerðir vegna rakaskemmda eins og kostur er. Og allt er óvíst með hvort óskert aðgengi verður tryggt og samræmis gætt við önnur hverfi borgarinnar þegar kemur að íþróttakennslu og þjálfun í þjóðarhöll og/eða Laugardalshöll.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 18. janúar 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kostnað vegna ferða formanns borgarráðs og forseta borgarstjórnar í lok árs 2022, sbr. 28. lið fundargerðar borgarráðs frá 24. nóvember 2023.

Kostnaður við þessar ferðir sem spurt er um eru: Ferð til Færeyja til að afhenda jólatré, 174.310 kr. Ferð til Belgíu vegna vinnufundar EFTA, 268.964 kr. Í ljósi sóunar á fjármagni í borginni eru alls konar hlutir þar sem hefði mátt sýna meiri skynsemi. Þessar upphæðir eru kannski ekki háar í stóra samhenginu. En margt smátt gerir eitt stórt. Það hlýtur að þurfa að endurskoða ferðalög borgarstjóra og hans föruneytis nú þegar hart er í ári. Hver nýtur góðs af þessum ferðum aðrir en þeir sem fara þær? Hvernig eru þær að skila sér til borgarbúa? Flokkur fólksins hefur lagt til að fjarfundir verði meginreglan þegar kemur að fundum fjarri vinnustað sem starfsmenn og embættismenn allra sviða Reykjavíkurborgar þurfa að sækja. Hér er sérstaklega átt við fundi erlendis, fundi á landsbyggðinni og einnig aðra fundi innan borgarinnar eftir atvikum. Með þessu fyrirkomulagi er dregið verulega úr kolefnisspori og kostnaði. Nú þegar er fordæmi fyrir þessu t.d. hjá ráðuneyti umhverfismála. Af hverju er það svona erfitt fyrir borgaryfirvöld að gæta að sér í fjármálum og sýna skynsemi og hagsýni í fjármálum?

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 2. nóvember 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kostnað vegna ráðstefnuferðar borgarstjóra og fleiri starfsmanna til Amsterdam, sbr. 23. lið fundargerðar borgarráðs frá 13. október 2023:

Spurt var um kostnað vegna ráðstefnuferðar til Amsterdam. Kostnaður er samtals 585.525 kr. Aðhalds er þörf nú meira en nokkru sinni. Ekki er að efa að þetta hafi verið skemmtileg ráðstefna en í raun hefur þátttaka á henni engin áhrif á neitt er varðar líf og líðan borgarbúa. Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt til að fjarfundir verði meginreglan þegar kemur að fundum fjarri vinnustað sem starfsmenn og embættismenn allra sviða Reykjavíkurborgar þurfa að sækja. Hér er sérstaklega átt við fundi erlendis. Með þessu fyrirkomulagi er dregið verulega úr kolefnisspori og kostnaði. Flokkur fólksins hefur oft áður verið með tillögur um að draga úr ferðum erlendis ekki síst vegna kostnaðar. Umhverfisráðherra hefur tekið þetta skref nú þegar í sínu ráðuneyti. Borgin á ekki að láta sitt eftir liggja enda tíðrætt um loftgæði.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 12. janúar 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ferð borgarstjóra til Barcelona, sbr. 35. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. nóvember 2023:

Spurt var um ferð borgarstjóra til Barcelona. Kostnaður er 515.060 kr. Flokkur fólksins hefur oft áður verið með tillögur um að draga úr ferðum erlendis ekki síst vegna kostnaðar og einnig lagt til að fjarfundir verði meginreglan til að spara fjármuni og minnka kolefnisspor.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram svör skóla- og frístundasviðs, dags. 31. janúar 2023, og velferðarsviðs, dags. 6. febrúar 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna um áhrif færðar á velferðarþjónustu og kennslu, sbr. 44. lið fundargerðar borgarráðs frá 5. janúar 2023:

Spurt er um áhrif færðar á velferðarþjónustu og kennslu. Í svörum frá skóla- og frístundasviði virðist sem að færðin hafi lítið raskað kennslu og að í tilvikum þar sem starfsfólk komst ekki til vinnu í leik- og grunnskóla voru málin leyst innanhúss með eigin mannskap innan þeirra fjárheimilda sem þeir hafa. Í svörum frá velferðarsviði kemur hins vegar fram að það hafi orðið þó nokkur vandkvæði vegna færðarinnar undanfarnar vikur. Þeir þættir velferðarþjónustu sem helst hafa orðið fyrir áhrifum eru heimaþjónusta, akstursþjónusta á heimsendum mat, búsetuþjónusta og stoð- og stuðningsþjónusta fyrir fatlað fólk og þjónusta við heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Jafnframt kemur fram að bílafloti heimaþjónustunnar sé takmarkaður og ekki útbúinn fyrir slæma færð. Þetta hefur sérstaklega valdið vandræðum við að þjóna efri byggðum þar sem er illfært. Gripið hefur verið til þess ráðs að leigja jepplinga fyrir þjónustuna og er kostnaður umtalsverður eða um 1 m. kr. síðustu vikur. Endurskoða þarf þessi mál í heild sinni. Flokkur fólksins finnst þessi skerta þjónusta við viðkvæmustu borgaranna mjög alvarleg og telur að setja þurfi bíla borgarinnar á nagladekk til að auka líkur þess að hægt sé að sinna þessari þjónustu.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 8. febrúar 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. lið fundargerðarinnar:

Í athugasemdum er kvartað yfir ófullnægjandi kynningu. Einnig er kvartað yfir of miklu skuggavarpi. Enda þótt allar byggingar varpi vissulega einhverjum skugga er hér um að ræða vandamál sem tengist of mikilli þéttingu byggðar og þá er það þéttingarstefnan sem er vandamálið. Nefndir eru mögulegir vindstrengir og það er atriði sem á að kanna áður en form bygginga er ákvarðað. Skipulagsyfirvöld sinna þessu atriði lítið sem ekkert með þeim afleiðingum að allt of oft myndast hættulegir vindstrengir nálægt háum byggingum. Um það eru þekkt dæmi í Reykjavík. Í gögnum er ekkert fjallað um þennan þátt sem ætti að vera eitt af aðalatriðunum. Bent er á að leikskóla- og skólamál séu í ólestri í hverfinu. Taka þarf strax á þeim málum. Vonandi verður tekið tillit til þessara athugasemda. Endurskoða þarf samráðs- og kynningarmál.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar frá 2. febrúar 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar:

Tillaga aðgengis- og samráðsnefndar vegna breytinga á fyrirkomulagi akstursþjónustu fatlaðs fólks. Fulltrúi Flokks fólksins hefur heyrt að það sé óánægja með hvað það sé erfitt að komast að í símaveri til að panta akstursþjónustu. Jafnframt er kvartað yfir því að bílstjórar yfirgefi viðkomustaðinn ef þjónustuþeginn er ekki sýnilegur strax. Þetta er auðvitað ekki boðlegt og samræmist ekki starfsháttum um góða og faglega þjónustu. Það verður að vera skýrt af hendi Pant til hvers er ætlast. Nú á fólk að vera tilbúið í anddyrinu áður en bíllinn kemur, sem er afar íþyngjandi sérstaklega ef seinkun er á bílnum. Þetta skapar mikið stress svo ekki sé talað um að ef fólk óttast að bílstjórinn bara fari ef hann sér ekki fólk koma út í hvelli. Hér er verið að tala um fatlað fólk. Það er ekki nægt svigrúm og skilningur fyrir því að fólk er misfljótt að athafna sig. Akstursþjónustan eins og hún er uppbyggð virðist ósveigjanleg, krefst mikils undirbúnings og tíma. Ekki er vitað hvað margir nota hana.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 23. janúar 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:

Í fundargerð er sagt frá mörgu sem er verið að gera hjá Orkuveity Reykjavíkur, en engar niðurstöður koma fram. Í lið 2 er lögð fram svohljóðandi tillaga vegna fjármögnunarheimildar ársins 2023: „Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) veitir forstjóra eða framkvæmdastjóra fjármála heimild til fjármögnunar í formi skuldabréfaútgáfu, víxlaútgáfu eða bankaláns fyrir allt að 25 ma.kr. á árinu 2023. Fjármögnunarheimildin er 5 ma.kr. umfram lánsfjármögnun í samþykktri fjárhagsáætlun. Framangreindar heimildir ná einnig til undirritunar allra skjala sem heimildir ná yfir.“ Fulltrúa Flokks fólksins finnst það eftirtektarvert að þarna er veitt heimild til aukinnar skuldsetningar og fær framkvæmdastjóri fjármála heimild til undirritunar allra skjala sem heimildin nær yfir. Hér er verið að sýsla með tugi milljarða. Það er ekki léttvægt. Eftir því er tekið að tillagan er samþykkt með atkvæðum allra utan þriggja. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í stjórn greiða atkvæði gegn tillögunni.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 20. janúar 2023:

Í fundargerðinni má skynja með áþreifanlegum hætti hversu illa er komið fyrir Strætó bs. Ekkert eigið fé er í félaginu og er Strætó illa undirbúið undir óvænta atburði sem geta komið upp. Vegna ástands flotans hefur þurft að fella niður um 50 ferðir á síðasta einum og hálfa mánuði. Meginskýring ástandsins er að lítið hefur verið fjárfest í nýjum vögnum síðustu árin, vegna fjárhagsstöðu Strætó. Stjórn felur framkvæmdastjóra að skoða nánar hvort mögulegt sé að fela verktökum frekari akstur svo að þjónustustig verði viðunandi. Fram kemur í fundargerð að framkvæmdastjóri kynnti stöðuna á vinnu við útboðsgögn vegna útboðs á akstri. Fara á í útvistun. Flokkur fólksins spyr hvort það sé í samræmi við stefnu eigendanna? Flokkur fólksins hefur varað við útvistun og eru nokkrar ástæður nefndar. Ef horft er til reynslu er hætta á lækkun launa og að einkaaðilar hirði þann launamun í sinn vasa. Einnig hefur reynslan sýnt í alltof mörgum tilfellum að þjónustan verði dýrari en ekki betri fyrir vikið. Ef reksturinn verður boðinn út er útilokað að borgin hafi þann kost að hafa frítt í strætó eins og talað hefur verið um að skoða. Vísað er til slæmrar reynslu af útvistun almenningssamgangna í Bretlandi og Svíþjóð.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 27. janúar 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. og 5. lið fundargerðarinnar:

Á fundinum fór fram umræða um árlegt árangursmat á störfum stjórnar og slökkviliðsstjóra og lagt var til að því verði frestað. Fulltrúi Flokks fólksins undrast að fresta eigi matinu. Eru stjórnendur búnir að gleyma starfsánægju/óánægju könnuninni sem gerð var fyrir fáum misserum? Niðurstaða var öll á „rauðu“ sem merkti mikla óánægja og vanlíðan hjá starfsfólki. Starfsmannamálin eru eftir breytingar á vaktakerfi í uppnámi, óánægjan er ennþá mikil eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins hefur fregnað. Fátt virðist hafa batnað á þessum vinnustað sem snýr að starfsfólkinu. Því er galið að fresta þessu mati. Ekki liggur þó fyrir út á hvað matið gengur nákvæmlega. Er um að ræða árangursmat varðandi fjármál eða er verið skoða hvort starfsmenn eru eitthvað sáttari nú eða er verið að meta árangur í störfum t.d. brunavörnum og slökkviliðsstörfum? Liður 5. Kynning og umræður um stöðu húsnæðismála Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins með hliðsjón af áætlunum um byggingu nýrrar slökkvistöðvar í stað Tunguháls, úrbótaþörf á Kjalarnesi og fyrirsjáanlegum breytingum á aðstöðu í Skógarhlíð vegna nýrrar björgunarmiðstöðvar. Loksins er búið að deiliskipuleggja hverfi á Kjalarnesi og þá mun íbúafjöldi í hverfinu tvöfaldast. Úrbætur eru því varla nægar heldur þarf framtíðarstefnu fyrir næstu 10-15 ár.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 9 mál. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 9. lið yfirlitsins:

Flokkur fólksins á fulltrúa í rýnihópi um Ljósleiðarann. Þar sem enn vantar að fá að sjá mikilvæg gögn til að rýnihópurinn geti sinnt sínu hlutverki er allsendis óvíst hvernig vinnu hópsins mun lykta. Ekki virðist fara fyrir því að meirihlutinn kalli eftir gögnum, sé t.d. að freista þess af krafti að fá upp á borðið samning Ljósleiðarans við Sýn og aðra viðskiptasamninga. Það er áhyggjuefni. Flokkur fólksins í borgarstjórn íhugar nú alvarlega að stimpla sig út úr þessum rýnihópi. Sýnt er að það verður flokknum sem berst fyrir bættri þjónustu fyrir borgarbúa, fæði, klæði og húsnæði fyrir alla, aldrei til góðs að vera tengdur við mál af þessu tagi þar sem leyndarhyggja ríkir.

 

Ný mál

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu að Reykjavík taki sér Hafnarfjörð til fyrirmyndar og hefji undirbúning í samráði við foreldra og leikskólasamfélagið við að samræma starfstíma í leikskólum og grunnskólum þannig að skólaárið á þessum tveimur skólastigum verði sambærilegt:

Lagt er til að Reykjavík taki sér Hafnarfjörð til fyrirmyndar og hefji undirbúning í samráði við foreldra og leikskólasamfélagið við að samræma starfstíma í leikskólum og grunnskólum þannig að skólaárið á þessum tveimur skólastigum verði sambærilegt. Þetta væri gert til að laða fólk til starfa á leikskólum en mikil mannekla hefur ríkt á leikskólum allt frá 2016. Hafnarfjörður er fyrsta sveitarfélagið til að stíga þetta skref. Markmiðið með þessu er að búa til aðlaðandi starfsaðstæður fyrir kennara á leikskólastiginu, fjölga kennurum í leikskólum borgarinnar og auka þar með fagmennsku og bæta gæði náms börnum til heilla. Umfram allt skiptir máli að gera breytingu til að gera starfið meira aðlaðandi án þess að skerða þjónustu. Nauðsynleg er að styrkja hana frá því sem nú er.

Greinargerð

Ef horft er til Hafnarfjarðar þá verður viðvera  áfram 40 stundir á viku yfir árið. Alls verða 26 dagar teknir út í svokölluðum betri vinnutíma í leikskólum, um jól, páska, að sumri og í formi vetrarfrís. Skólaárið í leikskólum Reykjavíkur yrði þá orðið sambærilegt við skólaárið í grunnskólum borgarinnar. Samhliða þessu er lagt til að stjórnunarhlutfall aðstoðarleikskólastjóra verið aukið til muna, til þess að sinna faglegri leiðsögn og efla móttöku og þjálfun nýliða – og stuðla þannig enn frekar að því að styrkja innra starf leikskólanna.

Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS23020056

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu að borgarráð samþykki að fela skóla- og frístundasviði hefji undirbúning í samráði við leikskólasamfélagið um námslínu fyrir leiðbeinendur sem ætlað er til að styrkja þá í faglegu starfi á leikskóla:

Lagt er til að borgarráð samþykki að fela skóla- og frístundasviði hefji undirbúning í samráði við leikskólasamfélagið um námslínu fyrir leiðbeinendur sem ætlað er til að styrkja þá í faglegu starfi á leikskóla. Þetta er lagt til m.a. í ljósi alvarlegrar manneklu sem ríkt hefur í leikskólum borgarinnar frá 2016. Freista þarf þess að hugsa út fyrir boxið og finna nýjar leiðir til að laða fólk til starfa í leikskólum. Önnur sveitarfélög hafa farið þessa leið og beitt fleiri nýjungum sem leitt hefur til aukinnar eftirsóknar í störfum á leikskólum. Reykjavík þarf að taka sér þessi sveitarfélög til fyrirmyndar. Ekki gengur að sýna uppgjöf í þessum málum en nú ríkir hreint neyðarástand. Fæst börn geta verið á leikskólum sínum alla fimm daga vikunnar vegna vöntunar á starfsfólki.

Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS23020058

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu um aukið samráð við foreldra, skólayfirvöld og hagsmunaaðila Laugardals vegna framkvæmda félagsmiðstöðvarrýmis fyrir Laugarnes- og Laugalækjarskóla og undirbúnings framkvæmda vegna skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi:

Tillaga um aukið samráð við foreldra, skólayfirvöld og hagsmunaaðila Laugardals vegna framkvæmda félagsmiðstöðvarrýmis fyrir Laugarnes- og Laugalækjarskóla og undirbúnings framkvæmda vegna skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til og telur það mjög mikilvægt að haft verði þétt og gott samstarf og samráð við alla hagsmunaaðila sem tengjast framtíðarskipulaginu og að þeir komi að ákvarðanaferlinu og ákvarðanatökunni. Það skiptir sköpum og er mikið farsælla bæði til skemmri og lengri tíma að hafa hagsmunaaðila og notendur með í samtalinu strax frá upphafi fremur en að leiða þá inn í umsagnarferli eftir á. Þetta hefur reynslan ítrekað sýnt.

Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS23020033

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um hversu mörg stöðugildi vantar til að fullmanna leikskóla borgarinnar:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hversu mörg stöðugildi vantar til að fullmanna leikskóla borgarinnar. Í október 2022 spurði fulltrúi Flokks fólksins um hver staða mönnunar í leikskólum væri og þá átti ennþá eftir að ráða í 83 grunnstöðugildi í 67 borgarreknum leikskólum. Alls voru þá laus 449 pláss í 69 leikskólum, mest vegna mönnunarvanda og vegna þess að ekki var hægt að nota húsnæðið. Mönnunarvandi hefur fest rætur í Reykjavík og breytir þá engu hvernig árferði er, hvort það er næg atvinna eða atvinnuleysi. Leikskólar virðast ekki laða að starfsfólk. Flokkur fólksins var með tillögu sem gæti hjálpað. Sú tillaga laut að því að ráða eldra fólk sem það vill og getur, fólk yfir sjötugu til að vinna í leikskólum. Í þeim aldurshópi er mikill mannauður. Einnig hefur Flokkur fólksins lagt til að heimgreiðsluúrræðið verði sett á laggirnar og foreldrum sem geta og vilja vera lengur heima með barni sínu eftir fæðingarorlof fái heimgreiðslu mánaðarlega. Sú greiðsla getur verið allt frá 200 þúsundum í 400 hundruð þúsund sem er það sama og leikskólapláss kostar um það bil.

Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS23020057

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn varðandi tillögur að félagsmiðstöðvarrými fyrir Laugarnes- og Laugalækjaskóla. Borgarfulltrúi Flokks Fólksins fagnar tillögum að félagsmiðstöðvarrými fyrir Laugarnes- og Laugalækjarskóla og að skipaður verði starfshópur um nauðsynlegar og tímabærar framkvæmdir við skólana í Laugardal:

Fyrirspurnir varðandi tillögur að félagsmiðstöðvarrými fyrir Laugarnes- og Laugalækjaskóla. Borgarfulltrúi Flokks Fólksins fagnar tillögum að félagsmiðstöðvarrými fyrir Laugarnes- og Laugalækjarskóla og að skipaður verði starfshópur um nauðsynlegar og tímabærar framkvæmdir við skólana í Laugardal.

Tillagan felur í sér jákvæða nýtingu á stúku Laugardalslaugarinnar og getur, ef vel er framkvæmt, orðið lyftistöng fyrir hverfið og félagsleg þungamiðja fyrir unga sem aldna. Varðandi forsendur starfshópsins er spurt:

Hvers vegna er minna byggingarmagn en lýst er í forsagnarskýrslu?

Í húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar (nóvember 2022) kemur fram að í Laugardal og nærliggjandi svæði verði byggðar 3.587 íbúðir.

Í hvaða skólahverfum verða þessar íbúðir byggðar?

Gert er ráð fyrir að stækkun Leikskólans Hofs minnki skólalóð Laugarnesskóla. Verður skólinn ekki stækkaður með því að hækka byggingar, á að stækka hann að grunnfleti?

Hefur greining verið unnin á því hvort stærð lóðar dugi Laugarnesskóla eftir stækkun leikskólans?

Hefur farið fram greining á þátttökuhlutfalli nemenda skóla í frístundastarfi borgarinnar m.t.t. fjarlægðar milli staða?

Verður gætt að því að samræma framkvæmdir við stækkun skólanna og viðgerðir vegna rakaskemmda eins og kostur er?

Varðandi íþróttakennslu og þjálfun í þjóðarhöll og/eða Laugardalshöll, verður óskert aðgengi tryggt og samræmis gætt við önnur hverfi borgarinnar?

Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS23020033

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um óafgreidd mál Flokks fólksins:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir samantekt á öllum fyrirspurnum og tillögum sem enn er ósvarað/óafgreiddar sem lagðar hafa verið fram af Flokki fólksins á þessu og síðasta kjörtímabili í borgarráði.

Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar. MSS23020059

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um nýtingu akstursþjónustu fatlaðra og að upplýsingar nái aftur um fimm ár eða svo:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um nýtingu akstursþjónustu fatlaðra og að upplýsingar nái aftur um fimm ár eða svo. Ítrekað hafa borist kvartanir vegna akstursþjónustu fatlaðra, að þjónustan sé einfaldlega ekki góð og að hún sé ósveigjanleg. Sem dæmi hefur verið óánægja með hvað það er erfitt að komast að í símaveri til að panta akstursþjónustu. Jafnframt berast kvartanir vegna þess að bílstjórar yfirgefa viðkomustaðinn ef þjónustuþeginn er ekki sýnilegur strax. Þetta skapar mikið stress og ótta hjá þeim sem nýta sér akstursþjónustu fatlaðra. Fatlaðir einstaklingar standa eftir einir þegar bílstjórar eru farnir af vettvangi af því að þeir voru ekki nógu fljótir að koma sér ýmist niður í anddyri eða út til að láta vita af sér. Fatlað fólk er misfljótt að athafna sig eins og gengur og telur Flokkur fólksins mikilvægt að tekið sé tillit til þess. MSS23020060

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um hversu margir leikskólakennara hafa síðan þá hætt að kenna í leikskólum og fært sig á yfir á grunnskólastigið:

Árið 2019 voru leyfisbréf kennara sameinuð í eitt sem gildir þá um leik- og grunnskólastig. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hversu margir leikskólakennara hafa síðan þá hætt að kenna í leikskólum og fært sig á yfir á grunnskólastigið.

Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. MSS23020061