Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Ársreikningur 2023:
Afkoma A-hluta Reykjavíkurborgar á árinu 2023 hefur skánað en er enn óásættanleg. Rekstrarreikningur er með 5.0 milljarða halla. Veltufjárhlutfall lækkar úr 1.1 á árinu 2022 niður í 0,94 á árinu 2023. Ástæðan er sú að lausaskuldir hafa hækkað um 6,5 milljarða milli ára eða um 20%. Veltufé frá rekstri er 11,5 milljarðar eða 6,5% af heildartekjum. Þrátt fyrir hækkun frá árinu 2022 er það enn of lágt þar sem afborganir lána og leiguskulda eru samtals 6,8 milljarðar eða um 60% veltufjár frá rekstri. Fastar afborganir hafa hækkað um 33% milli ára sem er afleiðing af sívaxandi lántöku liðinna ára. Á næsta ári verða afborganir langtímaskulda og leiguskulda tæpir 13 milljarðar. Ný langtímalán á árinu voru tæpir 21 milljarður, þungi fastra afborgana lána mun fara hækkandi. Reksturinn skilar einungis 4,7 milljörðum upp í heildarfjárfestingar ársins sem eru rúmir 23 milljarðar eða rétt um 20%. Rekstur A- hluta þarf að batna verulega til að ná ásættanlegu jafnvægi. Af B hluta fyrirtækjum, þá er það óskiljanlegt að meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur skuli enn færa matsbreytingar fasteigna sem tekjur hjá Félagsbústöðum þegar það liggur í augum uppi að eignir félagsins verða aldrei seldar sem neinu nemur og matsbreytingar fjárfestingareigna eru því loftkrónur en ekki raunkrónur.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fundargerð borgarráðs 2. maí 2024.
Liður 7 gjaldskrár vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur
Flokkur fólksins hefur mótmælt harðlega gjaldskrárhækkunum síðustu ár sem verst hafa komið niður á bágstöddum. Gjaldskrárhækkanir hafa auk þess farið út í verðlagið og ekki hjálpað til að ná stöðugleika í fjármálum. Þó þessu sé vissulega fagnað hefði líka verið gaman að sjá borgina taka frumkvæðið þegar ljóst var að verðbólga var að fara úr böndum. Borgarráð sameinaðist fyrir skemmstu, að mestu, um ályktun um að Reykjavíkurborg vilji greiða fyrir gerð kjarasamninga til fjögurra ára m.a. með því að halda aftur af hækkun gjaldskráa sem snúa að börnum og barnafjölskyldum. Fulltrúi Flokks fólksins studdi þessa tillögu. Nú hefur prósentan verið skilgreind og skulu gjaldskrár lækka um 2,0% að jafnaði frá og með 1. júní 2024 sem felur það í sér að viðeigandi gjaldskrár hækki ekki umfram 3,5% á árinu 2024 miðað við árið 2023. Auðvitað hefði verið hægt að gera betur hér. Í rauninni getur Reykjavíkurborg gert hvað sem er í þessum efnum. Hér er einungis um tilmæli að ræða og er því ekkert að vanbúnaði að ganga lengra þegar um er að ræða þjónustu við börn og barnafjölskyldur.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fundargerðir
Liður 10 í fundargerð skóla og frístundasvið, 22 apríl
Svar hefur borist við hálfs árs gamalli fyrirspurn Flokks fólksins um hvernig gengur að leysa úr vanda leikskólanna og hvenær pláss er að vænta fyrir tugir barna. Svari gefur ekki tilefni til bjartsýnis. Hvernig mun haustið líta út. Mestur vandi er að manna stöður. Svo virðist sem allar tilraunir borgaryfirvalda við að leysa mannekluvandann skili afar takmörkuðum árangri. Flokkur fólksins lagði til að nemendum 18 ára og eldri skyldi boðið hlutastarf eftir þeirra eigin óskum og þörfum. Því var hafnað. Boð á vinnustofur er gott og gilt en er engin sérstök gulrót fyrir manneskju i atvinnuleit? Nú eru um 360 pláss sem eru ónýtanleg vegna framkvæmda sem ekki sér fyrir endann á næstu misseri. Það eru ekki góð tíðindi fyrir þá sem bíða nú í mikilli neyð eftir plássi. Ljóst er að óvissan mun áfram íþyngja foreldrum.
Liður 3 fundargerð stafrænt ráð 24. apríl MÍR kortið.
Mikil þróunarvinna hefur verið hjá starfsfólki þjónustu- og nýsköpunarsviðs við að að koma plastkortum rafrænt í síma. Það merkilega er að öll þessi hönnunar og þróunarvinna er nú þegar til. Það er búið að koma plastkortum rafrænt í síma út um allt.