Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir ágæta ræðu hans og þakka fyrir þessa umræðu sem komin er. Það er nauðsynlegt að við tölum um þetta. Ég var að renna yfir nefndarálitið með breytingartillögu minni hlutans og neðst á fyrstu blaðsíðunni er nákvæmlega það sem við erum að ýta úr vör núna, þ.e. þetta tæki sem snýr að börnum, foreldrum og skólum til þess einmitt að bregðast við því slæma ástandi sem hér er og hefur farið versnandi.
Með framhaldsskólana þá held ég að margir séu mjög fastir í því að þetta sé alltaf hugsað fyrir framhaldsskóla til að vega og meta og draga fram einhverja ákveðna umsækjendur og bjóða þeim skólavist sem fá ákveðnar einkunnir. Það var náttúrlega horft rosalega á þessar einkunnir árum saman. Þetta bara gengur ekki út á það. En það mun vonandi koma sem snýr að framhaldsskólunum vegna þess að það er líka ábyrgð framhaldsskólans sem hér er undir, hreinlega hvernig þeir velja börnin inn til þess að börn eigi öll hér um bil sama tækifærið, sem er það sem við viljum, og sitji við sama borð. Það hefur svo sannarlega ekki verið og var alls ekki þegar við vorum með þessi hefðbundnu eða gömlu samræmdu próf.
Af hverju ekki í 10. bekk og 9. bekk; hvað skeður á milli 9. og 10. bekkjar? Er það eitthvað stórkostlega mikið og langt? Hvort þetta er í lok 9. eða 10. bekkjar — ég hef ekki skilið þessa áherslu á að þetta verði að vera í lok 10. bekkjar, ella sé ekkert að marka þetta. Þetta ræddum við í nefndinni og mér fannst einmitt mjög margir gesta sem þangað komu alls ekkert leggja mikla áherslu á að þetta verði í 10. bekk frekar en í 9. bekk.
Andsvar
Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni þessi viðbrögð. Ég er að horfa til allra barna, sem eru gríðarlega ólík. Við erum fjölmenningarsamfélag og þurfum að geta horft til allra barna þegar við erum að hugsa um að meta og að þau geti fengið niðurstöðu um hvar þau standa. Ég held að eina alvörumatið sé einmitt þetta reglubundna fjölbreytta mat, alls konar mat á breiðum grunni. Það er sanngjarnt vegna þess að börn eru misupplögð eins og við vitum. Það er sanngjarnt að þetta sé gert yfir langan tíma með fjölbreyttum tækjum. Inni í þessu kerfi er samræmt mat, stöðluð próf og alls konar annað sem flokkast kannski ekki alveg þar undir. (Forseti hringir.) Niðurstaðan er síðan virkilega gott, breitt mat á því hvar barn stendur. Og já, ef barn sækir um í framhaldsskóla (Forseti hringir.) þá vill það að sjálfsögðu mögulega að fram komi hver staðan er og getur sent niðurstöður sem liggja fyrir. Það er ekkert sem bannar það.