Fordómar Störf þingsins

Umræða um fordóma er meira og minna  stöðug í samfélaginu en þó mismikil eftir því hvað er efst á baugi hverju sinni.

Hugtakið fordómar er neikvætt í eðli sínu. Fordómar eru taldir ávinnast og áhrifabreytur eru ýmsir félags- og uppeldisþættir og persónueinkenni.

Fordómar eru eins og orðið gefur til kynna „fyrirfram gefnir dómar“.
Fordómar beinast oft gegn minnihlutahópum, tilteknu þjóðerni, trúarbrögðum, kynþætti eða kyni svo fátt eitt sé nefnt. Skyld hugtök yfir fordóma eru staðalmyndir eða staðalímyndir. Stundum eru fordómar útbreiddir  þannig að stór hópur er haldinn þeim. Aðrir fordómar eru einstaklingsbundnir eða þrífast  í smærri hópum.

Fordómar eru einnig misskaðlegir, sumir rista grunnt, aðrir djúpt. Birtingarmynd þeirra er sömuleiðis mismunandi. Allt frá “góðlátlegu gríni,” atferlis án orða til heiftar, haturs og bæði andlegs og líkamlegs ofbeldis. En hvað sem því líður er víst að allir fordómar særa þá sem fyrir þeim verða.

Sumir fordómar eru færðir í dulbúning.  Það á við þegar fordómar eru færðir í umbúðir kærleika eða þeir eru skreytir  með göfugum  boðskap. Fæstir kannast aftur á móti  við að vera fordómafullir. Engu að síður eru margir tilbúnir að opinbera fordóma sína í  þegar þeir telja sig vera meðal skoðanasystkina.

En hvað rekur fólk til að flokka aðra, fara í manngreinarálit, upphefja suma en setja aðra skör lægra? Ein kenningin er sú að með því að flokka fólk eða hluti, einföldum við tilveru okkar. Flokkunin auðveldi okkur að finna þá sem við eigum eitt og annað sameiginlegt með eins og  hefðir og áhugamál og þegar við erum meðal fólks sem  deilir með okkur framtíðarsýn. Þannig styrkist grunnurinn að sjálfsmynd okkar.

Rannsóknir á þessu sviði hafa sýnt  að fordómar finni sér frekar farveg hjá einstaklingum sem eru með lítið eða laskað sjálfsmat og eru óöruggir með sjálfan sig. Andleg vanlíðan getur getur einnig við réttar aðstæður  leitt til þröngsýni, dómhörku og ósveigjanleika í hugsun. Aðrir hafa haldið því fram að helsta næringarefni fordóma sé fáfræði og þekkingarleysi og ótti við það sem fólk þekkir ekki.

Það sem vinnur hins vegar mest gegn fordómum er opin umræða og upplýsing. Það er því mjög mikilvægt að fólk og ekki hvað síst börn og ungmenni, einangrist ekki í bergmálshellum hvort sem þeir eru á internetinu eða í samfélaginu í heild.