Störf þingsins 23. september 2025
Velferðarnefnd heimsótti Ljósið í vikunni
Ljósið er eins og flestir vita endurhæfingarstöð fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein.
Starfsemi þess hófst í Neskirkju árið 2005
Margrét Frímannsdóttir fyrrverandi alþingismaður var fyrsti formaður stjórnar Ljóssins, sem er
sjálfseignarstofnun.
Hjá ljósinu starfa 37 starfsmenn í 29 stöðugildum, 12 verktakar og 6 sjálfboðaliðar.
Boðið er upp á heildræna endurhæfingu fyrir alla krabbameinsgreinda 16 ára og eldri.
Einnig er boðið upp á stuðningur fyrir fjölskyldur og aðstandendur á öllum aldri.
Frú forseti
Ljósið veitir mikilvæga fræðslu, stuðning og ráðgjöf hjá fagaðilum sem hjálpa fólki að fara í gegnum erfitt meðferðarferli, áhrif og afleiðingar þess að greinast með krabbamein.
Allir sem hefja endurhæfingu hjá Ljósinu byrja á því að fara í viðtal við iðjuþjálfara þar sem farið er yfir allt lífi einstaklingsins, hlutverk, vinnu, heimilið, áhugamál, tengslanet, vini og fjölskyldu, andlega og líkamlega heilsu.
Farið er yfir almenna heilsufarssögu, gerðar mælingar og stöðumat til að hægt sé að hanna áætlun út frá einstaklingnum sjálfum. Lögð er áhersla á að starfsfólk sé meðvituð um væntingar fólks til líkamlegrar endurhæfingar og meðferðar Ljóssins í heild sinni.
Fjöldi námskeiða eru í boði.
Þar má nefna aldurs skipta grunnfræðslu fyrir bæði konur og karla , fræðslu fyrir fólk sem greinist í annað sinn og fræðslu- og stuðningsnámskeið fyrir langveika.
Veit er ráðgjöf og fræðsla til fólks sem er á leið aftur til vinnu eða náms, , tímamót og ný hlutverk. Í boði eru sjálfstyrkingarnámskeið og námskeið í þrautseigju og innri styrk. Núvitundarnámskeið, snyrtinámskeið og aðstandendanámskeið (eldri en 20 ára). Síðan eru það námskeið fyrir börn (aðstandendur 6-9/10-13) einnig aldurskipt.
Karlmenn eru 34 prósent þeirra sem leita til Ljóssins. Það er mun hærra hlutfall en þekkist í öðrum löndum. Ýmsir hópar eru einnig í boði bæði fyrir ungt fólk, stráka og stelpur.
Fjöldi námskeiða eru í boði á sviði handverks, leirlistar, myndlistar, fatasaums, trétálgunar, útskurðar, hekli, prjóni og útsaum.
Auk ýmissa styttri námseiða, til að mynda í Ljósmyndun, Kryddjurtum og Pappamassi.
Samkvæmt könnun Maskínu fyrir Ljósið eru um 93 prósent frekar eða mjög ánægðir með þjónustu Ljóssins.
Að lokum, Ljósið er einstakur staður og er álíka þjónusta vandfundin meira segja í löndum sem við berum okkur helst við.
Ljósið er vin í eyðimörkinni fyrir þá sem greinast með krabbamein sem eðlilega er gríðarmikið áfall.
Krabbameinstilfellum hefur fjölgað mikið síðustu ár samkvæmt tölum Krabbameinsfélagsins þar með talið í hópi ungs fólks. Aukninguna má einnig rekja til fólksfjölgunar og þess að fólk lifir nú lengur þar sem ör þróun er á lyfjum og annarri lækningartækni.