Virðulegi forseti. Við erum hérna að ræða um lengingu þingfundar sem ekkert skemmtilegt í þessu dásamlega vor- og sumarveðri, en það er ekki hjá því komist að minnast á það sjónarspil sem átti sér stað hér í gærkvöldi þegar stjórnarandstaðan hélt þinginu í gíslingu með málþófi í umræðu um frumvarp um breytingu á lögum um leigubifreiðar. Hér er um gríðarlega mikilvægt frumvarp að ræða sem auka á öryggi farþega í leigubílum. Við vitum öll hvers lags frumskógur er í þessum málum í dag. Alvarlegir glæpir allt frá okri, fjársvikum til nauðgunar hafa tengst því frumskógarlögmáli sem nú ríkir á leigubílamarkaði. Almenn réttindi farþega og upplýsingar um verð samkvæmt gjaldmælum eru ekki tryggð né leiðir farþega til að koma kvörtunum á framfæri. Allir hljóta að sjá hversu brýnt það er að koma böndum á þetta ástand svo fleiri eigi ekki eftir að skaðast. Samt sem áður þusar og þvaðrar stjórnarandstaðan um þetta frumvarp í síendurteknu máli, aðeins til þess að stífla framgang mála hér á Alþingi, til að tefja og jafnvel hindra lýðræðislegan framgang mála meiri hlutans á þingi. (Forseti hringir.) Það er ekki annað hægt en að fyllast trega þegar horft er upp á atferli stjórnarandstöðunnar.
Málþóf stórnarandstöðunnar- Frumvarp um breytingar á lögum um leigubílaakstur
- Post author:Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
- Post published:22. maí, 2025
- Post category:Kolbrún á Alþingi 2024 til 2028