Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 9. febrúar 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um aðgengi í miðbæ fyrir fatlað fólk, sbr. 7. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 8. september 2023. Jafnframt er lögð fram umsögn menningar- og íþróttasviðs dags. 19. janúar s.l.

Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins.

Tillaga Flokks fólksins gekk út á að mannréttindaráð beiti sér þegar kemur að því að standa vörð um aðgengi fatlaðra, fólk með skerta hreyfigetu, að miðbænum á dögum eins og menningarnótt, 17. júní og Þorláksmessu. Tillögunni er vísað frá af því að hún er ekki nógu sértæk. Ýmsir erfiðleikar komu upp á menningarnótt vegna umtalsverðra lokana fyrir bílaumferð. Fatlað fólk sem er með skerta hreyfigetu þarf að notast við bíl. Umsögn var fengin frá sviðsstjóra menningar- og íþróttasviði sem reifar umtalsvert samráð við hagsmunaaðila og lögreglu sem og fleiri og hvar P merktir bílar mega leggja. Umsögn er ekki í neinu samræmi við tillöguna og hefur því lítið vægi. Höfðað er til meirihlutans í mannréttindaráði, að hann hlusti á það sem fólk er að segja til að þjónusta verði bætt. Það er mat Flokks fólksins að svona umtalsverðar lokanir fyrir umferð ganga ekki upp á viðburðadögum. Verið er að útiloka ákveðinn hóp frá viðburðum og skemmtanahaldi. Þess utan er með öllu ótækt að ekki séu nógu mörg salerni og þau fáu sem er séu ekki þrifin þar sem mestur fjöldi fólks kemur saman.

Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

Tillagan snertir á mikilvægu málefni en orðalag hennar er með þeim hætti að hún er ekki framkvæmdarhæf þar sem hún er ekki nægjanlega skýr og sértæk.

 

Bókun flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um fundarröð með helstu hagsmunasamtökum minnihlutahópa, sbr. 6. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 26. janúar 2023. MSS23010140

Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata, gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu.

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð fari í fundaröð með helstu hagsmunasamtökum minnihlutahópa til að heyra frá fyrstu hendi hvað brennur á þeim. Lagt er til að fundað verði með Öryrkjabandalagi Íslands ÖBI, Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni FEB, Þroskahjálp og Geðhjálp sem og fleiri félögum sem eru aðildarfélög t.d. að ÖBI. Tillögunni er vísað frá því ráðinu finnst ekki að þurfa að fara í sérstaka fundaröð með þessum aðilum. Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð verði virkt ráð, en ekki bara eins og lokaður saumaklúbbur. Ráðið á einmitt að teygja sig út til fólksins, tengja sig við borgarbúa. Fulltrúi Flokks fólksins vill að þetta verði gert almennilega og að ráðið fari til fólksins en sé ekki alltaf að boða það til sín. Ráðið er hreyfanlegt og myndi græða á að eiga fund með hagsmunasamtökum á þeirra heimavelli.

Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

 

Notendasamráð Reykjavíkurborgar við hagsmunaðila ÖBÍ, Geðhjálpar og Þroskahjálpar fer fram á vettvangi aðgengis- og samráðsnefndar. Einnig eru starfandi öldungaráð og fjölmenningarráð þar sem sambærilegt samtal við fulltrúa hagsmunasamtaka fer fram og mikil þekking hefur skapast. En vilji er til þess að þeir fulltrúar komi á fund mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs til að ræða ofbeldi og ofbeldisvarnir.

 

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um viðbrögð við ofbeldi gagnvart fötluðu fólki, sbr. 7. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 26. janúar 2023.

Tillögunni er vísað frá með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar Pírata og Sjálfstæðisflokks gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins.

Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu.

Tillaga fulltrúa Flokks fólksins um viðbrögð við ofbeldi gagnvart fötluðu fólki Flokkur fólksins vill með þessari tillögu beina sjónum ráðsins að því ofbeldi sem beinist gagnvart fötluðu fólki. Undanfarið hefur því verið haldið fram að ofbeldi gagnvart fötluðu fólki sé algengt. Hér er um grafalvarlegt mál að ræða. Fátt er eins alvarlegt og ofbeldi gagnvart fólki sem getur vegna fötlunar sinnar engan veginn varið sig. Í fyrsta lagi þarf að skoða hversu algengt þetta ofbeldi er og hvaða verkferlar fara í gang ef upp kemst um ofbeldi á fötluðum einstaklingi. Ef vel ætti að vera ætti að stofna starfshóp sem fer i að undirbúa samtals vettvang og kalla eftir hugmyndum um úrræði og aðgerðir. En orð eru til alls fyrst eins og segir í tillögunni. Tillögunni er vísað frá.

Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

Tillagan snertir á mikilvægu málefni en orðalag hennar er með þeim hætti að hún er ekki framkvæmdarhæf þar sem hún er ekki nægjanlega skýr og sértæk.

 

Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir samantekt á öllum fyrirspurnum og tillögum sem enn er ósvarað/afgreiddar sem lagðar hafa verið fram af Flokki fólksins á þessu og síðasta kjörtímabili í mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði. MSS23020073

Vísað til umsagnar mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu.

 

Eftirmálar:

Tvær af tillögum Flokks fólksins voru felldar með þeim rökum að þær væru ekki nógu sértækar og væru ekki framkvæmdarhæfar. Þær voru eftirfarandi:

Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Flokks fólksins um aðgengi í miðbæ fyrir fatlað fólks á tyllidögum þegar hátíð er í bæ:

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að mannréttindaráð beiti sér þegar kemur að því að standa vörð um aðgengi fatlaðra, fólk með skerta hreyfigetu, að miðbænum á dögum eins og menningarnótt, 17. júní og Þorláksmessu. Á menningarnótt voru lokanir fyrir bílaumferð umfangsmiklar og með því var loku fyrir það skotið að ákveðnir hópar hefðu aðgengi í bæinn. Auk þess er lagt til að ráðið beiti sér einnig fyrir að viðunandi þjónusta sé til staðar fyrir þá sem eru með skerta hreyfifærni, notast við hækjur eða hjólastóla s.s. að göngustígar séu aðgengilegir á hjólastól og að salernisaðstaða sé fullnægjandi. Hér er um mannréttindamál að ræða. Það eiga allir að hafa jafnan rétt og eiga þess kost að taka þátt í hátíðarhöldum. MSS22080151

Frá fundi 25. ágúst 2022.

Seinni tillagan:

Tillaga fulltrúa Flokks Flokks fólksins um viðbrögð við ofbeldi gegn fötluðu fólki:

Í umræðunni upp á síðkastið hefur verið rætt um ofbeldi gagnvart fötluðu fólki. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð bregðist við þessari umræðu með einhverjum sérstökum hætti og grípi til aðgerða s.s. Fræðslufundar, málþings eða annað í þeim dúr. Orð eru til alls fyrst en að mati Flokks fólksins þarf að huga að aðgerðum í þessum sambandi. Hvað getur Reykjavíkurborg gert, eða hvernig getur borgin beitt sér til að spyrna við að fatlað fólk verði fyrir ofbeldi? MSS23010141