Ræða við frumvarp um breytingar á neyslurýmum

Frumvarp þetta lýtur annars vegar að því að heilbrigðisstofnunum og frjálsum félagasamtökum, verði veitt sama heimild og sveitarfélög hafa nú til að stofna og reka neyslurými. Hins vegar að heimila 18 ára og eldri að nota vímuefni í neyslurými óháð neysluaðferð.

Þessu frumvarpi er fagnað. Við vinnslu þess var tekin sú ákvörðun að leggja til að heimilt væri að nota efni með hverjum þeim hætti sem talinn er skaðaminni en með því að sprauta þeim í æð. Í núgildandi lögum er aðeins gert ráð fyrir einni notkunarheimild vímuefna, sem er að sprauta efnum í æð.

Þetta rímar við ábendingar fulltrúa frjálsra félagasamtaka, sem mikla þekkingu og reynslu af þessum málum, að heimilt væri að nota vímuefni í neyslurými án þess að notkunaraðferð væri tilgreind. Þessi breyting er í samræmi við ábendingar frá fleiri félagasamtökum s.s. samtaka um skaðaminnkun, Afstöðu – félags fanga og Rauða krossins á Íslandi.

Á grundvelli reynslu skaðaminnkunarúrræðanna Ylju og Frú Ragnheiðar á rekstri neyslurýma hafi komið í ljós breytt neyslumynstur fólks. Meðal annars velji fólk að reykja tiltekin efni fremur en að sprauta þeim í æð, það sé í sjálfu sér skaðaminnkandi því það sé talið draga úr hættu á sýkingum.

Markmiðið með frumvarpinu er að mæta þörfum jaðarsettra einstaklinga um allt land og draga úr líkum á skaða sem þeir verða auðveldlega fyrir þegar efnin eru notuð í æð.

Sýnt hafi verið fram á að aðgangur fólks að öruggu rými til fíkniefnanotkunar dragi úr líkum á ofskömmtun og öðrum skaða.

Þar sem heimild til að reka neyslurými er lögbundin er ekki unnt að gera breytingar með öðrum hætti en lagabreytingum og því kemur ekki til greina að breyta framkvæmdinni t.d. með reglugerðarsetningu. Verði ekkert aðhafst getur það leitt til þess að færri neyslurými verði opnuð en ella í ljósi þess að sveitarfélög ein hafa heimild til þess.

Sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins gætu mögulega veigrað sér við því að opna neyslurými, þrátt fyrir þörf, vegna smæðar sinnar en heilbrigðisstofnanir gætu aftur á móti nýtt bæði húsnæði og mannauð sem þær hafa nú þegar yfir að ráða. Þá eru vísbendingar um að skaðaminnkandi inngrip virki best þegar þau eru aðgengileg í nærumhverfi fólks. Margir einstaklingar með langvarandi vímuefnavanda eru í eftirfylgd hjá heilbrigðisstofnunum og væri því ákjósanlegt að stofnununum væri heimilt að opna neyslurými sem nýst gæti sem einn þáttur í heildrænu þjónustuframboði til að mæta betur fjölþættum þörfum einstaklinganna. Auk þess getur það verið skaðlegra ef jaðarsettur hópur sem sækir í neyslurými getur ekki notað vímuefni með öðrum notkunaraðferðum en að sprauta þeim í æð.

Lokaorð

Þetta er allt spurning um aðgengi, að stjórnvöld leiti leiða til að auka þjónustu við það fólk sem notar vímuefni og telur þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu sem eru til bóta fyrir hópinn. Með frumvarpinu eykst aðgangur fólks að öruggu rými til að nota vímuefni, en sýnt hefur verið fram á að neyslurými draga úr líkum á ofskömmtun og öðrum skaða, m.a. tengdum sprautum.

Ég er þess fullviss að með þessum lögum er tekið skref í átt að bættri skaðaminnkun og þjónustu fyrir einstaklinga sem eiga við alvarlegan fíknivanda að stríða. En samhliða þarf auðvitað að móta heildstæða stefnu um fíknivanda til þess að neyslurými verði hluti af samræmdri nálgun við skaðaminnkun, meðferð, viðhaldsmeðferð og samfélagslega vernd mjög viðkvæms hóps einstaklinga.