Bið eftir talmeinaþjónustu er allt of löng
Samkomulag var gert árið 2014 milli Velferðarráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skiptingu ábyrgðar vegna talmeinþjónustu fyrir börn. Í samkomulaginu kemur fram að sveitarfélögin sinni börnum með minni frávik vegna talmeina, þ.e. þeim sem ekki uppfylla skilyrði sem gerð eru í rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands og talmeinafræðinga vegna málþroska, framburðar og stams. Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) kemur til ef barnið samkvæmt mati talmeinafræðings, uppfyllir skilyrði samningsins.
Hjá stofnunum ríkisins er langur biðlisti eftir þjónustu talmeinafræðinga. Þann 14. mars 2024 voru 4998 börn að bíða eftir þjónustu talmeinafræðinga ríkisins. Það er auðvitað erfitt að sætta sig við það að börn sem glíma við alvarlegustu talmeinin og málþroskavandann bíða sennilega hvað lengst eftir þjónustu talmeinafræðings.
Ef litið er á þessi mál í Reykjavík bíða um 493 börn eftir fyrstu og frekari þjónustu talmeinafræðinga. Óvíst er um biðlista barna sem búa á landsbyggðinni.
Afleiðing biðar eftir talmeinaþjónustu getur haft alvarlegar afleiðingar. Snemmtæk íhlutun skiptir sköpum í tilfellum barna sem glíma við málþroskavanda eða önnur talmein. Þetta á við hvort sem barn glímir við vægari eða alvarlegri talmeina- eða málþroskavanda. Orðaforði barna tekur miklum framförum á aldrinum 2-6 ára. Málþroski snertir fjölmargt í lífi barnsins. Góður málþroski er undirstaða bóklegs náms og hefur áhrif á tjáningu og félagsleg samskipti. Það segir sig sjálft að ef börn skilja ekki nema hluta af því sem sagt er við þau er hætta á að samskipti þeirra einkennist af misskilningi sem getur auðveldlega leitt til samskiptavandamála. Börn sem glíma við slaka boðskiptafærni geta átt erfitt með að hlusta á aðra, lesa í aðstæður og setja sig í spor annarra. Hafa skal jafnframt í huga að oft er vangreindur og ómeðhöndlaður málþroskavandi/talmein undirrót annarra vandamála.