Skipulögð brotastarfsemi
Frú forseti
Ég vil þakka þessa umræðu
Vaxandi skipulögð glæpastarfsemi á netinu krefst nýstárlegra rannsóknaraðferða og alþjóðlegs samstarfs. Engin þjóð er laus við glæpi á netinu. Alþjóðlegt samstarf og miðlun upplýsinga skiptir höfuðmáli við að uppræta skipuleggjendur glæpasamtaka. Öðruvísi næst ekki að stöðva þessa glæpi.
Flestar lýsingar á þeim glæpum sem eiga sér stað á netinu eru skelfilegar. Erfiðast er þó að vita til þess að glæpamenn herja í vaxandi mæli á börn og fólk í viðkvæmri stöðu. Ýmist með því að miðla til þeirra með skaðlegu myndefni eða hvetja þau til áhættusamrar hegðunar.
Mörg dæmi eru um að glæpahópar noti tölvuleiki og samfélagsmiðla í vaxandi mæli til að fá börn og ungmenni til að fremja glæpi. Glæpamenn nálgast börnin á spjallsíðum og bjóða þeim peninga fyrir að fremja skemmdarverk og jafnvel morð. Fjölmörg dæmi eru um að börn eru fengin til að senda upptökur af sjálfum sér þegar þau eru að skaða sig eða þau hvött til að svipta sig lífi. Dæmi eru um að allt niður í níu ára börn hafi lent í klóm þessara glæpamanna.
Þannig eru börn og margir fullorðnir berskjölduð gagnvart skaðlegu efni, áreiti, áreitni og ofbeldi. Til að ná að uppræta þennan óhugnað er nauðsynlegt að byggja upp traust og samvinnu milli þjóða. Íslendingar eru lánsamir að vera hluti af þessu alþjóðlega samstarfi. Þar erum við ekki aðeins þiggjendur heldur leggjum við einnig okkar af mörkum. Mörg dæmi eru um að upplýsingar frá Íslandi hafi lagt lóð á vogarskálar við að uppræta glæpi í öðrum löndum. Nýlegt dæmi er einmitt um þetta.
Ef vikið er að forvörnum þá eru foreldrar lang sterkustu stöðunni til að fylgjast með við hverja barnið hefur samskipti. Tryggasta leiðin er að vera í þéttu og góðu sambandi við börnin, eiga traust þeirra til að tala um allt milli himins og jarðar. Góð tengsl foreldra barna er besta forvörnin gegn allri vá sem herja kann á barnið.