Störf þingsins – Barnahús

Störf þingsins – Barnahús

Mig langar að ræða hér um Barnahús sem er einstakt og hefur verið fyrirmynd annarra þjóða. Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Barnaverndarnefndir bera ábyrgð á vinnslu slíkra mála og geta óskað eftir þjónustu Barnahúss. Börn og foreldrar þeirra geta með tilvísun barnaverndarnefnda fengið alla þjónustu á einum stað þeim að kostnaðarlausu.

Sæti mál lögreglurannsókn fer staðsetning skýrslutöku eftir ákvörðun dómara en barnaverndarnefndir geta óskað eftir annarri þjónustu Barnahúss. Barnaverndarnefndir geta leitað til Barnahúss vegna gruns um annars konar ofbeldi gegn börnum.

Um árabil var það stór hluti af mínu starfi að fylgja börnum í Barnahús og vera viðstödd skýrslutökur. Í Barnahúsi er unnið faglegt starf og aðbúnaður allur hugsaður út frá barninu, að því líði sem best og finni sig öruggt í  erfiðum viðtölum sem þar eiga sér stað.

Í Barnahúsi starfa að jafnaði forstöðumaður, níu sérfræðingar, skrifstofustjóri og þjónustufulltrúi, öll í 100 starfi starfshlutfalli. Umfang starfseminnar hefur aukist á undanförnum árum og hefur núverandi húsnæði ekki fylgt þeirri þróun. Stefnt er að því að byggja nýtt húsnæði fyrir Barnahús á Farsældartúni, sem mun bæta þjónustuumgjörð og vinnuaðstæður en ekki er vitað nákvæmlega hvenær það verður tilbúið.

Biðlisti vegna meðferðarviðtala er búinn að vera of langur undanfarið og eru nú 32 börn á bið eftir þjónustu. Þetta er með öllu óviðunandi og í raun afar slæmt að langur tími líði þar til barn fær tækifæri til að segja fagfólki frá ofbeldi. Því lengra sem líður frá ofbeldisverknaði því meiri líkur eru á að barn hafi gleymt eða bælt niður minningar um ofbeldið og hugsanir og tilfinningar í tengslum við það.

Starfsfólk upplifir álag vegna þungra mála og húsnæðisþrengsla og því brýnt að bæta húsakostinn og þjálfa fleira starfsfólk. Starfsemin er viðkvæm í eðli sínu og því skiptir umhverfi barnanna og starfsmannanna gríðarlega miklu máli.