Umhverfis- og skipulagsráð 12. júní 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer kynning á stafrænni vegferð byggingarfulltrúa.

Kynning fylgdi ekki útsendri dagskrá. Kynnt er verkefni sem unnið hefur verið frá í febrúar.. Vegferðin hefur verið frá 2022. Verkefni er framhaldsverkefni og hefur tengst Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) í gegnum Hlöðuna. Áður var Bygg2 komið í gang en síðar undirritar Reykjavíkurborg yfirlýsingu um þátttöku í sameiginlegu verkefni um stafræn byggingarleyfi með HMS. Tengingin við HMS skiptir sköpum en hjá borginni er nú tvöfalt kerfi, Minar síður borgarinnar sjá um hluta en HMS sér um umsóknir um byggingarleyfi. Kannski er hægt að einfalda þetta enn meira og best væri ef HMS, ef bíðst síðar, taki meira yfir þessi verkefni umhverfis- og skipulagssviðs Mínar síður ætti vissulega að vera undir Stafrænu Ísland en ekki borginni því það myndi gagnast borgarbúum best, að hafa sem felst á einum stað.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer kynning á vinnu við forgangsröðun umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar vegna fjárhagsáætlunar 2025:

Horft er til að fjölga stöðugildum um 10. Það er ansi mikið þegar áherslan er sögð vera að fækka stöðugildum og almennt að halda fastar í aurinn. Flokkur fólksins skilur þetta ekki alveg og veltir því upp hvort ekki er hægt að gera einhverjar skipulagsbreytingar og finna leiðir til að auka skilvirkni. Í raun gengur forgangsröðun verkefna meira og minn út á að fjölga starfsfólki. Unnt er að ná fram verulegri hagræðingu og sparnaði í borgarkerfinu með bættu skipulagi, verklagi og ekki síst meiri aga í rekstri. Tækifæri hljóta að felast í betri mannauðsstjórnun, t.d. með auknu samstarfi á milli sviða. Almennt er óæskilegt að fjölga starfsfólki frekar en orðið er. Líklegt er að tækifæri felist í betri nýtingu mannauðs borgarinnar, t.d. með bættri stjórn og skipulagi. Til dæmis er Reykjavíkurborg líklega eina sveitarfélag landsins, sem býður ekki út sorphirðu. Flokkur fólksins hefur lagt til að gerð sé tilraun með það í einu hverfi sem dæmi. Flokkur fólksins hefur lagt fram fjölmargar tillögur um hagræðingu og sparnað í tengslum við vinnu að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar undanfarin ár.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lagt fram yfirlit yfir ferðakostnað Umhverfis- og skipulagssviðs í janúar, febrúar og mars 2024:

Ferðakostnaður fyrstu þrjá mánuði ársins er 1.148.147 kr. Stærstu ferðamánuðirnir eru eftir, má vænta mun hærri kostnaðar fyrir þá? Ef rétt er munað var það eitt af markmiðum umhverfis- og skipulagsráðs að draga úr ferðakostnaði vegna fjárhagserfiðleika

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Leiguíbúða ehf., dags. 13. júlí 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.172.1, Frakkastígsreits, vegna lóðanna nr. 35 við Laugaveg og nr. 4 við Vatnsstíg:

Gerðar eru athugasemdir við að bygging lyftu-og stigahúss hafi hafist án byggingarheimilda og að tilkoma þess hafi neikvæð áhrif á birtuskilyrði íbúðar 0201 að Hverfisgötu 52. Í svari umhverfis- og skipulagssviðs segir að þessi athugasemd sé réttmæt því bygging lyftu- og stigahúss hafi hafist áður en byggingarheimild lá fyrir. Viðbrögð við þessum mistökum sé í ferli hjá byggingarfulltrúa. Gerð er einnig athugasemd við slæm birtuskilyrði. Því er svarað þannig af umhverfis- og skipulagssviði að þau séu lítil sem engin þar sem einungis gangsvæði íbúðar hefur glugga í þá átt. Fyrra atriðið hlýtur að vera stór mál. Hafist var handa við byggingu stigahúss án heimildar. Illa hefur verið staðið að þessum breytingum, en sennilega er lítið hægt að gera eins og komið er, eða hvað?

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. desember 2023 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi, byggja lyftuhús norðan aðalinngangs, byggja yfir svalir ofan á inngangi, gera nýjan inngang og tröppur á norðurhlið:

Hér er verið að breyta góðu og gömlu íbúðarhúsi í víggirt sendiherrahús, þar sem íslensk lög gilda ekki einu sinni. Fjölmargar athugasemdir eru gerðar við það og tekur Flokkur fólksins undir flestar. Spurning hvort það henti að gera slíka grunn breytingu á hverfinu. Starfsemi sem þessi á einfaldlega ekki heima í íbúðahverfi. Meðal athugasemda er að “Málið uppfyllir ekki skilyrði skipulagslaga um málsmeðferð samkvæmt 1. ml. 1. mgr. 44. gr. laganna. Kynningin uppfyllir ekki skilyrði 44. gr. skipulagslaga og 5. kafla skipulagsreglugerðar um þau gögn sem leggja ber fram við grenndarkynningu. Ætla má að þau byggingaráform sem kynnt eru séu hluti áformaðrar öryggisgæslu á lóðinni sem felst í viðvarandi mannaðri öryggisgæslu, sem vel kann að vera vopnuð. Sé sú ógn raunveruleg sem áformuðum öryggisráðstöfunum á lóð Sólvallagötu 14 er ætlað að verjast, þá verða lóðir og eftir atvikum heimili á aðliggjandi lóðum mögulegur vettvangur þeirra aðila sem ógna sendiherrabústaðnum, sem kallar á hættu og ógn yfir næstu nágranna og er óásættanlegt með öllu fyrir þá. Þetta er áhyggjuefni Þetta mál er í raun allt hið ótrúlegasta að áliti borgarfulltrúa Flokks fólksins.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lögð fram skilagögn starfshóps um skipulag lóða fyrir hraðhleðslustöðvar.

Skil starfshóps um skipulag lóða fyrir hraðhleðslustöðvar Starfshópnum var ætlað að undirbúa útboð, setja saman útboðsgögn. Starfshópurinn telur að bjóða eigi út lóðirnar með sem minnstum afskiptum af rekstri hraðhleðslustöðva sem settar verða upp, rekstraraðili meti þörf fyrir fleiri og öflugri stöðvar háð eftirspurn. Flokkur fólksins hefði nú talið að gott væri að að Reykjavíkurborg ætti þess kost að grípa inn í, hafa einhver afskipti eftir atvikum en ekki að sleppa þessu alveg lausu alla vega til að byrja með. Maður tryggir ekki eftir á.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki eftirfarandi tillögu að breytingu á gjaldsvæðum bílastæða Reykjavíkurborgar:

Flokkur fólksins hefur gagnrýnt það ófremdarástand sem ríkir í bílastæðamálum borgarinnar. Reykjavíkurborg hefur stóraukið gjaldtöku fyrir bílastæðaafnot og stækkað gjaldtökusvæði. Búið er að hækka gjaldskrár og lengja gjaldskyldutímann til kl. 21 alla daga vikunnar. Gjaldskylda er nú einnig á sunnudögum. Frumskógur innheimtuleiða kemur illa niður á neytendum. Bílastæðum fækkar án þess að því sé mætt með bættum almenningssamgöngum. Engin þörf er á að rukka fyrir bílastæði sem eru tóm um helgar, á kvöldin og á nóttunni. Tilgangurinn virðist sá einn að hafa fjármuni af bílaeigendum. Þessi fjölgun gjaldskyldusvæða leiðir til ásóknar í gjaldfráls stæði í grónum hverfum sem skapar óþægindi fyrir íbúa þar. Skortur er á upplýsingagjöf um verðlagningu og lengd gjaldtökutíma á einkastæðum. Ekkert þak eða hámark er á upphæð bílastæðagjalda eða svokallaðar þjónustu-eða vanræksluinnheimtur. Gjaldtaka á sumum nýlegum bílastæðum í einkaeigu lyktar af græðgi. Dæmi eru um að klukkutíminn kosti 1000 kr. á bílastæðum þar sem innheimt allan sólarhringinn alla daga ársins. Eitt af hlutverkum sveitarfélaga er að gæta hagsmuna neytenda varðandi mögulega óréttmæta viðskiptahætti. Fjölmargir bílaeigendur lenda í því að fá ranglega kröfu um vanrækslugjöld vegna þess að þeir greiddu ekki fyrir rétt stæði eða voru ekki með rétt smáforrit. Þessi bílastæðagjöld eru algjör frumskógur fyrir neytendur.

 

Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 10. liður fundargerðar 22. maí 2024.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar USK24050278

 

Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipualgsráðs 5. júní 2024.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, deild náttúru og garða í samvinnu við Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið, Dýraþjónustu Reykjavíkur USK24060044

 

Flokkur fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu sem lýtur að breytingum við Arnarbakka

Flokkur fólksins óskar eftir að farið verði betur í saumana á breytingum á deiliskipulagi við Arnarbakka og að athugasemdir sem berast í gáttina verði fyrir alvöru skoðaðar. Flokkur fólksins hefur heyrt áhyggjuraddir fólks í Breiðholti sem lúta að þessum breytingum við Arnarbakka (Þar sem Breiðholtskjör var áður). Opið er fyrir athugasemdir i samráðsgátt til 19. júlí. https://skipulagsgatt.is/issues/2024/711

Greinargerð

Áhyggjur lúta að því hvort þétting byggðar sé hér of mikil ef horft er til aðgengismála. Einnig að gengið sé of freklega á græn svæði. Kvíði er einnig meðal fólks um rask á framkvæmdartíma. Þær gagnrýnisraddir heyrast að Breiðholt þurfi ekki fleiri blokkir.  Af hverju er ekki tækifærið nýtt hér sem dæmi  til þess að byggja skemmtilegar íbúðir og verslun?

Áhyggjur eru af skuggavarpi ef byggð er blokk austan við sparkvöll Breiðholtsskóla og þar verði gengið of mikið á grænt svæði. Fjarlægja á um það bil 75 bílastæði sem fólki finnst ekkert vit í þar sem almenningssamgöngur eru ekki að nýtast sem skyldi í úthverfum. Fólk verður að fá frið til að velja að nota sinn einkabíl án þess að vera úthýst með hann úr bráðum öllum hverfum borgarinnar. Hér er verið að byggja blokkaríbúðir of háar án aðstöðu fyrir bílastæði í einu ódýrasta hverfi Reykjavíkur ásamt verslun með aðkomu eingöngu fyrir gangandi. Ljóst má telja að aðgerðir af þessu tagi gera fátt annað en að auka misskiptingu milli hverfa í Reykjavík?

Frestað USK24060169

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu um breytingu á reglum um hunda í strætó:

Flokkur fólksins leggur til að reglur um og viðmið vegna gæludýra í Strætó á höfuðborgarsvæðinu verði rýmkaðar til muna. Lagt er til að almennt skal heimila gæludýr í vögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu þar með talið í landsbyggðarvögnum. Eigandi gæludýrs ber sjálfur ábyrgð á mögulegum erfiðleikum með að ferðast með gæludýr á annatímum sem telst vera á virkum dögum, frá og með mánudegi og til og með föstudags, á milli kl. 07.00-09.00 og frá kl. 15.00-18.00 enda ber eigandi hag gæludýrs síns fyrir brjósti. Hér er átt við hunda, ketti, nagdýr, fugla, kanínur, froska, skrautfiskar, skriðdýr og skordýr, enda sé heimilt að halda þessi dýr á Íslandi. Aðrar kvaðir sem finna má í núgildandi reglum skulu afnumdar enda reglur nú gamaldags og fornaldarlegar sem finnast ekki heldur í neinum borgum sem Reykjavík ber sig saman við. Lagt er til að aðrar löngu úreltar reglur um gæludýr sem finna má í gildandi reglugerð skulu einnig aflagðar. Lagt er til að ekki skuli lengur vera skilyrði að sá sem ferðist með dýr þurfi fyrst að koma einn inn um framdyrnar til að greiða fargjald og fer síðan með gæludýr inn um aftari/miðdyr vagnsins. Þessi regla er auk þess ekki framkvæmanleg, hvernig á að gera þetta, skilja gæludýrið eftir á götunni á meðan greitt er? Lagt er einnig til að ekki skuli heldur vera lengur skilyrði að gæludýr sem ferðast er með í strætó skulu öll vera í töskum eða lokuðum búrum sem tryggja að dýr geti ekki sloppið út. Þetta er vissulega skiljanleg regla ef um er að ræða kyrkislöngu en þetta atriði á auðvitað að vera mat hvers eiganda gæludýrs sem ætlar með dýrið í strætó. USK24060170