Umhverfis- og skipulagsráð 22. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Breyting á deiliskipulagi fyrir Fossvogsbrú Reykjavíkurmegin. Í gildandi deiliskipulagi er leiðbeinandi lega göngu- og hjólastíga, áningarstaða og biðstöðva fyrir almenningsvagna sýnd á uppdrætti.

Fram kemur í gögnum að á brúnni verða tvær akreinar fyrir almenningssamgöngur, ein í hvora átt, með tvöfaldan hjólastíg vestan megin og göngustíg austan megin. Þetta eru mistök. Eðlilegast er að göngustígurinn sé vestast, síðan strætó og hjólastígur austast. Rökin eru útsýni og upplifun sérstaklega í tengslum við kvöldsólarlag. Svo er að sjá sem Landssamband hjólreiðamanna telji líka að hentugur að hjólastígurinn sé austan megin. Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram í síðustu viku ábendingu sem barst honum sem þar sem færð eru rök fyrir því að betur færi á að göngustígur sé á vesturhluta brúarinnar og hjólastígurinn austan megin á brúnni? Eins og hönnun Fossvogsbrúar hefur verið kynnt myndi sólin fara að skína á vesturhlið brúarinnar milli kl. 13.00 og 14.00. Þá myndast skuggar frá handriðum inn á brúnna. Göngusvæði austan megin ,,króast” af og skerðist þá útsýnisupplifun þeirra sem yfir brúna ganga. Í stuttu máli, þá er upplifunin sterkari ef gönguleiðin er vestan megin brúarinnar og hjólaleiðin austan megin. Davíð Þorláksson framkvæmdastjóri Betri samgangna segir ekki koma til greina að breyta hönnuninni og að hönnunin sé algerlega úthugsuð. Það getur varla staðist og miður að fara á í svo fjárfrekt verkefni með eins áberandi galla og hér um ræði

 

Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lokun bensínstöðva, sbr.

  1. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 1. nóvember 2023.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa. USK23110006

 

Lögð er fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lóðir í Grafarvogi, sbr.

  1. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 25. október 2023.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, byggingafulltrúa.

 

Lögð er fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kvaðir á lóðir, sbr. 36. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 25. október 2023.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, byggingafulltrúa.

 

Lögð er fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, sbr. 38. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 25. október 2023.

Vísað til umsagnar verkefnastofu borgarlínunnar

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um gatnamót, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 1. nóvember 2023.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um endurbætur strætóstöðva, sbr. 32. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 1. nóvember 2023.

Vísað til umsagnar Strætó bs.

Ný mál

Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að settur verði á laggirnar hópur til að skoða hvaða leiðir er hægt að fara til að gera bílastæðahús sem Reykjavíkurborg rekur meira aðlaðandi, öruggari og aðgengilegri. Húsin eru í dag rekin með tugi milljóna króna tapi og standa mörg þeirra allt að því auð löngum stundum. Það eru hópar fólks sem ekki treysta sér að nota bílastæðahúsin, finnst þau þröng, óaðlaðandi og finnst greiðslukerfið erfitt. Enga aðstoð er hægt að fá í bílastæðahúsum ef upp koma vandamál. Fulltrúi Flokks fólksins finnst það verkefni borgarmeirihlutans að gera eitthvað í þessu. Finna þarf leiðir til að laða fleiri að bílastæðahúsum. Markmiðið er að fækka bílum á götunum. Markmiðið er einnig að laða fleiri hópa í bæinn, þá sem búa í efri byggðum og landsbyggðarfólk. Miðbærinn er okkar allra en ekki aðeins fyrir ferðamenn eða þá sem þar búa. Þeir eru til sem finnast göngugötur hafa fælingarmátt vegna þess að aðgengi að þeim er erfitt. Það gæti öllum þótt gaman að komast á göngugötu, setjast niður og fá sér kaffi eða mat á góðum degi.

Frestað.