Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á fyrirhuguðu hverfi í Keldnalandi:
Á Keldnalandinu á að verða heilmikil atvinnustarfsemi umfram þá starfsemi sem nú þegar er þar. Það er óskynsamlegt því landið er dýrmætt og ætti því að nýta að langmestu leyti sem íbúðabyggingaland. Hér eru grundvallar þjónustustörf svo sem verslun undanskilin að sjálfsögðu. Auðvelt ætti að vera að sækja vinnu frá hverfinu enda stefnt að góðum samgöngum gegnum hverfið til annarra borgarhluta t.d. í austurhluta Höfðahverfis og Hólmsheiði. Bein leið verður til miðsvæðis m.a. með væntanlegri Borgarlínu samkvæmt áætlun meirihlutans. Fulltrúa Flokks fólksins finnst að skoða ætti að hafa bílastæðakjallara undir húsum þar sem hentar auk þeirra sex bílastæðahúsa sem gert er ráð fyrir í hverfinu. Suðurhluti og meginhluti Keldnalandsins er án efa einna skjólsælasti hlut borgarlandsins og sá eini sem er eftir óbyggður. Þess vegna er sérlega mikilvægt að nýta þann hluta fyrir margt fólk, en hvorki verkstæði né verksmiðjur.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að Faxaflóahafnir komi fyrir veðurstöð á Heimaey samkvæmt meðfylgjandi erindi umhverfis- og skipulagssviðs:
Um veðurstöð í Viðey vill fulltrúi Flokks fólksins segja að það sleppur til að hafa veðurstöðina á ,,heimaeynni” en ekki á vestureynni en sá hluti Viðeyjar er ósnortinn af mannavöldum. Mastur, 10 metra hátt getur verið heilmikil sjónmengun og þess vegna skiptir staðsetning miklu máli. Öryggisþáttur þessa verkefnis er vissulega ómetanlegur.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram og skráð í trúnaðarbók tillaga um síðari úthlutun styrkja úr Loftslagssjóði ungs fólks. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins lagði fram bókun í trúnaðarbók.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aðgerðir við gatnamót Hallsvegar og Strandvegar:
Við gatnamót Hallsvegar og Strandvegar er einmitt tilvalið að setja hringtorg. Segir í umsögn að slík útfærsla á gatnamótunum hefur ekki komið til skoðunar fram að þessu en þá spyr fulltrúi Flokks fólksins af hverju ekki að skoða þennan möguleika fyrir alvöru? Ef skipulagsyfirvöldum er alvara í að miða stefnumörkum við að fækka alvarlegum umferðarslysum og greiða á sama tíma fyrir umferð allra ferðamáta þá er hér tilvalið tækifæri. Fulltrúi Flokks fólksins hvetur skipulagsyfirvöld að hætta að hugsa svona mikið og fara að framkvæma í meiri mæli. Tíminn líður og tímabært að ræða málið við aðra ábyrgðaraðila eins og Vegagerðina.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um hringtorg:
Við gatnamót Þúsaldar og Vínlandsleiðar er mjög líklegt að henti að hafa hringtorg. Af hverju ekki að skoða þann möguleika með opnum huga þ.e. ef skipulagsyfirvöld vilja auka umferðaröryggi, greiða fyrir umferð og auka umferðarflæði. Undarlegt er að vilja ekki vita meira?
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 42. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. ágúst 2024. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 17. september 2024:
Flokkur fólksins lagði til að komin verði upp fleiri bílastæðum í Þorpinu í Gufunesi. Tillögunni er vísað frá. Það stóð til að fólk lifði bíllausum lífsstíl í Þorpinu en það er með öllu útilokað vegna fjarlægðar frá þjónustu og engar almenningssamgöngur eru á staðnum þrátt fyrir tillögur þar um. Í umsögn kemur fram að búið sé að samþykkja að fjölga stæðum um 61 stæði. Framkvæmdir við bílastæðin eru þegar hafin og áætlað að þeim muni ljúka núna í haust. Fulltrúi Flokks fólksins telur að á meðan framkvæmdum sé ekki lokið skuli ekki sekta fyrir að leggja bílum sínum á svæðinu. Ekki er hægt að búa í Þorpinu án þess að eiga bíl eins og sakir standa vegna skorts á almenningssamgöngum auk þess sem talsverð fjarlægð er í alla almenningsþjónustu.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 41. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 17. sept. 2024:
Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að skipulagsyfirvöld setji upp snjallljós við þau gatnamót sem mest á mæðir í Reykjavíkurborg í stað fjögurra stillinga klukkuprógramms sem ekki telst til snjalltækja þótt reynt sé að sannfæra fólk um það. Tillögunni er vísað frá. Í umsögn skipulagsyfirvalda er fullyrt að niðurstaðna Sweco 2020 að vírseglar sem talningarskynjarar samræmist nútímalegum viðmiðum. En Sweco kom aldrei til landsins vegna Covid heldur voru aðeins haldnir örfáir fjarfundir og aðeins rætt við þá starfsmenn Reykjavíkurborgar sem sjá um og verja núverandi kerfi. Sweco fékk þar af leiðandi einhliða útgáfu sem hér er í gangi. Þeim bauðst ekki að ræða við aðra þrátt fyrir óskir þar um. Útilokað að gera raunhæfa úttekt með slíkum takmörkunum. Vírseglar eru eina tegundin sem hér hefur verið notuð frá a.m.k. 2005 þegar síðasta útboð var gert á ljósastýringum. Það eru heldur ekki alls staðar tveir vírseglar á gatnamótum og oftar en ekki bara á annarri götunni á staðnum Öll nútíma tækni sem er notuð í dag, eins og myndavélar, radar, infrarautt – og annar fullnægjandi greiningarhugbúnaður hefur aldrei verið prófaður í Reykjavík. Allar tillögur um slíkt hafa verið felldar af meirihlutanum. í svari er ekki minnst á snjallljós, þótt spurt hafi verið um þau sérstaklega.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram samþykkt íbúaráðs Breiðholts um fá loftgæðamæli staðsettan í hverfið sem fyrst.
Fulltrúa Flokks fólksins finnst sjálfsagt að skoða kaup á loftgæðamæli í Breiðholti. Alla jafna þegar rætt er um loftmengun þá er miðað við loftmengun við Grensásstöð. Sú stöð hefur lítið gildi í Breiðholti og í öðrum úthverfum. Þess vegna er meira en sjálfsagt að setja upp stöðvar í úthverfum. Hér er varla um háa upphæð að ræða í stóra samhenginu og jafnvel þótt gögn séu ekki 100 % áreiðanleg þá eru það samt sterkar vísbendingar sem sjá má úr þeim.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals. Í breytingunni sem lögð er til felst að lega samgöngustíga er uppfærð til samræmis við fyrirliggjandi hönnun annars vegar við mislæg gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar og hins vegar samgöngustígs með tveimur brúm yfir Dimmu:
Hér er um að ræða breytingu á deiliskipulagi í Elliðarárdal og er þetta ágætt dæmi um slakan undirbúning verks að mati fulltrúa Flokks fólksins. Ekki er traustvekjandi að breyta þurfi hönnum þegar framkvæmdir eru hafnar. Svo vekur það sérstaka athygli að koma á fyrir ofanvatnstjörn milli stíga norðan við Breiðholtsbraut til að taka á móti yfirborðsvatni áður en það rennur út í Elliðaár. Það er gott og vel en Flokkur fólksins telur mikilvægt að í slíkum tjörnum sé hægt að gera hólma fyrir fuglalíf. Hægt er að gera hólma fyrir sáralítinn kostnað.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Arnarnesvegar áfanga 3. Í breytingunni sem lögð er til felst að lega stofnstígs (göngu- og hjólastígar) er uppfærð til samræmis við fyrirliggjandi hönnun mislægra gatnamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar sem og deiliskipulags Elliðaárdals.
Líklega eru þetta nauðsynlegar breytingar á annars illa útfærðri framkvæmd. Stór vistlok eru sett fram í áætlunum, en tekið fram að um sé að ræða frátekið land, og því er ólíklegt að slík ,,lok“ yfir Arnarnesveginn verði nokkurn tíma að veruleika. Það var því miður ljóst frá upphafi að það að teikna vistlok yfir veginn til að fegra deiliskipulagið, var í raun ekkert annað en yfirvöld að slá ryki í augu íbúa. Slíkan blekkingarleik á ekki að líða. Yfirvöld vissu vel að ekkert fjármagn var til fyrir þessi vistlok og að þau yrðu líklega aldrei framkvæmd. Ekki er gert ráð fyrir fjármagni fyrir vistlok í Samgöngusáttmálanum. Kostnaðurinn við að byggja þau síðar er án efa margfalt hærri en ef þau væru unnin samhliða vegagerðinni. Ekki var tekið neitt mark á umsögnum íbúa varðandi lagningu 3. áfanga Arnarnesvegar, sem sýnir enn og aftur að samráðsferlið við íbúa er ekkert annað en sýndarlýðræði.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram tillögur að nýrri íbúðarbyggð við Sóleyjarrima. Samþykkt að vinna áfram með tillögu Esju með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna.
Dómnefndin mælir með einni tillögu og ekki er hægt að vera ósammála henni. Hins vegar er áberandi hversu nefndin fellur fyrir stöðluðum klisjum í tillögunni. Dómnefndir ættu að meta sjálfstætt hversu mikið fullyrðingar standist, sama hversu flottar þær þykja. T.d. er sagt: ,,Hér er gróðursettur staðargróður sem leyft er að vaxa frjálsum til að búa til sem mestan líffræðilegan fjölbreytileika. En staðreynd er að líffræðilegur fjölbreytileiki verður ekki búinn til með gróðursetningu á lítil svæði og ,,staðargróður” verður ekki til frambúðar með breyttu umhverfi. Síðan er gert ráð fyrir hænsnarækt og sagt að tækifæri séu til býflugnabúskapar. Í samþykkt um hænsnahald í Reykjavík er sagt að hænur megi aðeins vera fjórar á lóð og hanar eru bannaðir. Þetta eru kallaðar: ,,Áhugaverðar hugmyndir um borgarbúskap” Ólíklegt er að býflugnarækt verði ,,borgarbúskapur”.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram samþykkt íbúaráðs Breiðholts um safnstæði fyrir rafskútur í hverfinu.
Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir þessa tillögu og bókun íbúaráðs Breiðholts um að beina því til umhverfis- og skipulagsráðs að koma fyrir safnstæðum fyrir rafskútur innan hverfisins þar sem mikil notkun er eins og við skiptistöðina í Mjódd, Sundlaugina í Breiðholti, Fjölbraut í Breiðholti, íþróttamannvirki ÍR og Leiknis og verslunarkjarna eins og við Lóuhóla, Mjódd, Völvufell og Seljabraut. Fulltrúi Flokks fólksins býr í Breiðholti og hefur lengi tekið eftir að víða má sjá rafskútur á miðri gangstétt, lagt þannig að þær eru stórhættulegar þeim sem ekki hafa fulla sjón eða hreyfigetu. Finna þarf þeim öruggan stað á þeim stöðum þar sem notkun er mikil. Rafskútur á víðavangi er ávísun á slys fyrir hópa sem eru með stoðtæki eins hjólastóla, göngugrindur sem og þá sem eru með skerta sjón, sérstaklega þegar skyggja fer.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um svifryksmengun, sbr. 51. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 14. ágúst 2024. Einnig er lagt fram svar skrifstofu umhverfisgæða dags. 13. september:
Fulltrúi Flokks fólksins spurði um hvort gerðar hafi verið mælingar á hversu mikið hlutfall svifryks má rekja til umferðartafa með öðrum orðum hversu stór orsakavaldur slakt flæði umferðar er á svifryksmengun. Fram kemur í svari að það sé ekki hægt að meta hversu stórt hlutfall svifryks eða annarrar umferðartengdrar mengunar í andrúmslofti í Reykjavík megi rekja til umferðatafa. Þetta þykir fulltrúa Flokks fólksins áhugavert því sífellt er nagladekkjum kennt um að menga hvað mest. Mengun er sannarlega háð aðstæðum. Gera má ráð fyrir að svifryk sé í miklum mæli vegna þess hversu umferðarflæði er slæmt víða í borginni. Á mestu umferðargötum eru ljósastýringar sem ekki lesa umferðina, fjölda bíla og gangandi eða aðstæður almennt séð. Bílar mynda langar raðir þar sem þeir hökta áfram í hægagangi með tilheyrandi eyðslu, mengun og malbiksskemmdum. Svona er ástandið klukkutímum saman á sólarhring. Það er mikilvægt að fá einhverja tölfræði sem tekur á öllum áhrifabreytum ekki bara einhverri einni. Þá er hægt er að leggja áherslu á þann þátt og þá þætti sem menga hvað mest frekar en að álykta eitthvað út í loftið eða einblína aðeins á einn þátt s.s. nagladekk sem vissulega er orsakavaldur ásamt mörgu fleiru.
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um gönguleið barna fram hjá byggingarsvæði á Sigtúnsreit, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 18. september 2024.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða, deildar afnota og eftirlits. USK24090228
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um gangstéttaviðgerðir í Jafnaseli sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 18. september 2024.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds. USK24090227
Ný mál
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram eftirfarandi fyrirspurn vegna hraðamælingar og ljósastýringar:
Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir yfirliti og dæmum á hraðamælingum, brotið niður eftir farartækjum og samgöngumátum.
Spurt er jafnframt um hvernig geta segulmælingar af þessu tagi greint á milli farartækja og hvernig greina þær gangandi vegfarendur?
Hverskonar rauntímastýring verður á Höfðabakka og Hringbraut eftir að snjallljósakerfið verður sett upp. Gott væri að skipulagsyfirvöld lýstu þeim breytingum til bóta sem verða eftir að snjallljósakerfið verður komið upp á Höfðabakka. Spurt er af hverju búnaðurinn sem er löngu búið að kaupa hefur ekki verið sett upp.
Greinargerð
Fulltrúi Flokks fólksins spyr framangreindra spurninga í framhaldi af umsögn Flokks fólksins við tillögu um að að skipulagsyfirvöld setji upp snjallljós við þau gatnamót sem mest á mæðir í Reykjavíkurborg
Í umsögn við tillögu Flokks fólksins um að skipulagsyfirvöld setji upp snjallljós við þau gatnamót sem mest á mæðir í Reykjavíkurborg er fullyrt að niðurstöður ráðgjafaverkfræðistofunnar Sweco frá 2020 á umferðarljósabúnaði á Íslandi hafi leitt í ljós að núverandi kerfi umferðarljósa er byggt á nútímalegum viðmiðum og nýjustu tækni. Hvernig er hægt að fullyrða að áreiðanleiki þessarar úreltu aðferðar sem flestir eru hættir að nota séu „Mjög góðar“ þegar það hefur ekki verið skoðað og prófað hér sérstaklega.
Frestað
Tillaga um hólma í ofanvatnstjörn
Flokkur fólksins leggur til að í þeirri ofanvatnstjörn sem koma á fyrir norðan við Breiðholtsbraut verði gerður hólmi í þeim tilgangi að búa fuglum öruggt griðland.
Greinargerð
Í Reykjavík eru margar tjarnir, flestar manngerðar.Sumar tjarnir eru til að jafna streymi leysingavatns, eða og hindra að leysingavatn af götum fari beint t.d. út í Elliðaár, (settjarnir) en aðrar til að fegra umhverfið. Tjarnir þurfa umhirðu og þrif í kringum þær og mikilvægt er að gerður verði hólmi í tjarnir til að mynda friðland fyrir fugla. Hólmar eru í raun einn af fáum stöðum þar sem þeir eru í vari t.d. fyrir köttum.
Frestað