Umhverfis- og skipulagsráð 6. mars 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram erindisbréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 29. febrúar 2024, fyrir starfshóp um verklagsreglur um álagningu gjalda vegna stöðubrota í Reykjavík:

Fulltrúi Flokks fólksins telur að þessi hópur geti unnið þarft verk og tímabært. Tekið er undir margt sem fram kemur í erindisbréfinu s.s. að mikilvægt sé að aðgerðir séu fyrirsjáanlegar og í samræmi við tilefni.  Margir borgarbúar  eru afar ósáttir við bílastæðasjóð og hvernig staðið er að sektum hjá sjóðnum. Sumum finnst að brotið hafi verið á sér og ekki gætt sanngirnis ef um vafamál sé að ræða. Það er nefnilega ekki alltaf ljóst hvort um brot sé að ræða. Rétt er að ítrekað hafa  komið  upp mál þar sem álagning gjalda bílastæðasjóðs koma íbúum á óvart og gjarnan á stöðum þar sem íbúar telja sig hafa verið að leggja löglega eins og segir í erindisbréfinu. Í ágreinismálum verður að gæta meðalhófs og gæta þess  að fara  ekki offari með valdheimildir. Verklagsreglur þurfa að vera þannig úr garði gerðar að áhersla sé á að veita góða þjónustu við íbúa og tryggja jafnræði m.a. þannig að  gæta þess að sambærileg mál séu meðhöndluð með sambærilegum hætti.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram tillaga skrifstofu samgangna og borgarhönnunar þar sem lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki meðfylgjandi reglur um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík:

Sjálfsagt er að skipuleggja hjóla- og bílastæði með eins skynsamlegum hætti og hægt er í borginni. Best fer á því að bílar séu sem mest í bílastæðahúsum en það hefur einfaldlega ekki tekist að laða fólk nægjanlega að bílastæðahúsum og hefur ástæðan verið margrædd. Mörgum finnst þau ekki nógu aðlaðandi, þröng og einhverjir treysta sér ekki í að nota greiðslukerfið þótt það hafi verið einfaldað. Bílum  fjölgar enda almenningssamgöngur slakar. Gæta þarf þess að borgarbúar hafi gott aðgengi að miðbænum þangað sem þeir sækja þjónustu. Huga þarf betur að aðgengi fatlaðs fólks að miðbænum.  Gjaldskyldusvæði hafa verið stækkuð og bílastæðagjöld snarhækkað sem hefur fælingarmátt. Stór hluti borgarbúa og aðrir forðast að koma í ,,bæinn” eins og heitan eldinn eins og kannanir hafa sýnt. Þetta hefur áhrif á verslun og þjónustu, sérstaklega þær verslanir sem versla með annað en vörur fyrir ferðamenn. Miðbærinn er nú fyrir ferðamenn en Reykvíkingar fara annað til að versla nema kannski ef þeir ætla að nýta veitingastaði og bari. Flokkur fólksins saknar þeirra tíma þegar fjölbreyttari hópur sótti miðbæinn. Flokkur fólksins hefur ekki trú á að deilibílamenning ryðji sér til rúms hér eins og erlendis og geta margar ástæður legið fyrir því.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga um breytta akstursstefnu á Laugavegi:

Það er búið að vera ótrúlegur hringlandaháttur með akstursstefnu á Laugavegi. Slíkur hrærigrautur hefur verið á akstursstefnum  við Laugarveg að stundum hefur legið við slysum vegna þessa hringlandaháttar. Ef gera á breytingar eina ferðina enn má búast við að það  taki tíma fyrir fólk að aðlagast og sýna þarf því sérstakt tillit. Nú á að samþykkja að breyta akstursstefnu á Laugavegi milli Frakkastígs og Klapparstígs. Í raun hefur þessi bútasaumur sem þarna er að finna í akstursstefnum leitt til þess að sumir leggja ekki í að nálgast þetta svæði á bíl. Fólk  óttast hreinlega að lokast af í einhverri þröngri götu og þurfa síðan að snúa við. Hvar er göngugötubútur og hvar ekki? Þróun þessa bútasaums hefur verið bæði ruglingsleg og flókin. Skilti hafa ekki alltaf verið nægjanlega skýr. Merkingum eru víða ábótavant. Talað er um fyrirséðar breytingar með borgarlínu en gera má ráð fyrir mörgum árum,  þangað til borgarlínukerfi fer að virka á þessu svæði ef það kemur til með að gera það á annað borð. En sjálfsagt er að vera bjartsýn í því sem öðru.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagasviðs um breytingu á deiliskipulagi Slippa- og Ellingsenreits og Vesturbugtar, Gömlu hafnarinnar vegna reita 03 og 04. Lóðir eru aðgreindar á reitunum:

All margar athugasemdir eru gerðar s.s. röskun á heildarásýnd á þegar fullbyggðu og skipulögðu rólegu hverfi. Bent er á  aukið  skuggavarp og að fjöldi bílastæða verði ekki nægur við íbúðaþéttingu núverandi hverfis. Nefndur er fjárhagslegur skaði íbúa sem fyrir eru á svæðinu og hafa fjárfest í fasteignum á grundvelli samþykktra skipulagsáætlana. Athugasemdir af alvarlegra tagi eru að með breytingunni  skerðist lífsskilyrði og lífsgæði. Mótmælt er hækkun á húsi á F3 (03) norður-vestur úr fjórum í fimm hæðir. Hér er aðeins nefnt brot af athugasemdum og finnst fulltrúa Flokks fólksins að umhverfis- og skipulagssvið ætli ekki að bregðast við þeim og  koma til móts við þær. Þétting byggðar hefur gengið of langt og myndað allt of mörg skuggahverfi. Fækkun bílastæða hefur einnig gengið of langt. Tekið er undir það sem fram kemur frá einum aðila þar sem hann segir að það sé mikilvægt að borgarbúar geti treyst á gildandi deiliskipulag þegar kemur að kaupum á íbúðarhúsnæði.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Vinstri grænna um að fjarlægja bílastæði ofanjarðar, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 24. maí 2023. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 19. október 2023:

Þessi tillaga er í einu orði sagt fullkomlega óraunhæf fyrir það eitt að algerlega ómögulegt er að framfylgja henni. Lagt er til af VG að fjarlægja öll bílastæði ofanjarðar til að framfylgja aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Íbúum hefur fjölgað um u.þ.b. 3% og bílum  fjölgar. Ekki eru margir aðrir valmöguleikar í boði að heitið geti. Vissulega væri gott ef hægt væri að nota bílastæðahúsin betur en nýtingarhlutfall þeirra er lítið á vissum tímum sólarhrings. Þessu væri vel hægt að breyta.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að lögð verði gangbraut, undirgöng eða göngubrú á mótum Efstaleitis og Bústaðavegar, sbr. 39. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 13. desember 2023. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 21. febrúar 2024.

Flokkur fólksins lagði til að gangbraut, undirgöng eð göngubrú verði lögð á mótum Efstaleitis og Bústaðarvegar. Í umsögn segir að áætlað sé að strætóstöð verði í framtíðinni á Bústaðavegi aðeins vestar við umrædd  gatnamót. Vinna sé hafin við að bæta umrædd gatnamót og er þar innifalið bættar þveranir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Þetta er gott að heyra og þá passar vel að samþykkja þessa tillögu þar sem hún mátast vel við fyrirætlanir meirihlutans. Tillaga er hins vegar felld. Í hverfinu sunnan Bústaðarvegar í kringum Sléttuveg búa mjög margir fatlaðir einstaklingar  og margir notast við hjólastóla eða önnur hjálpartæki. Þessir einstaklingar þurfa oft að fara yfir Bústaðaveg til að sækja ýmsa þjónustu. Það er langt fyrir þessa einstaklinga að fara alla leiðina að Háaleitisbraut til að þvera götuna.

Tillögunni er vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. USK23120110

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um breytingu á ferli samráðsfyrirkomulaga í kjölfar hönnunarsamkeppni, sbr. 38. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 29. nóvember 2023. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. febrúar 2024.

Flokkur fólksins lagði til að gerð verði breyting á samráðsfyrirkomulagi í kjölfar hönnunarsamkeppni. Í umsögn með afgreiðslunni segir að ekki sé ástæða til að samþykkja tillöguna. Flokkur fólksins er ekki sammála því. Því sem þarf að breyta, er að um leið og vinningstillaga liggur fyrir skuli gera deiliskipulag í samræmi við vinningstillöguna til þess að hægt sé að gefa almenningi kost á að senda inn formlegar athugasemdir áður en að fullnaðarhönnun fer af stað. Í umsögn skipulagsfulltrúa segir m.a. „Árið 2021 var haldin alþjóðleg samkeppni um hönnun brúarinnar, unnin var forhönnun 2022-2023 og breyting á deiliskipulagi gerð til þess að samræma deiliskipulagið við hönnun brúarinnar. Breyting á deiliskipulagi er í samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 og Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040.“ Rosalegasta „forhönnun“ á þessari öld á Íslandi.  Eini möguleiki almennings til að hafa áhrif á hönnun brúarinnar var frá 1.ágúst til 19.september 2023. Þá var 90% hönnunarvinnunar lokið.  „unnin var forhönnun 2022-2023“. Forhönnun er ekki 90% hönnun. Allar athugasemdir voru tilgangslausar og svör við þeim út í hött. Nú virðist ekki vera hægt að leiðrétta stórgalla í hönnun. Hönnunin er að göngustígur verði austanmegin og hjólabraut vestanmegin. Brúin mun því verða haldinn þessum risagalla rísi hún einhver tímann.

Tillaga er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna. USK23110322

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um smáhýsi, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 7. febrúar 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 15. febrúar 2024. USK24020059

Það er gott að fá fram þessar upplýsingar. Smáhýsin eru 20 á 6 stöðum í borginni. Heildarkostnaður er 846 m. kr. Húsin eru misdýr og fer m.a. eftir staðsetningu. Ekki er tekinn inn í reiknisdæmið kostnaður við lóðina. Þær eru misdýrmætar en gera má ráð fyrir að lóðin í Laugardal sem metin verðmæt. Þetta verkefni var tilraunarinnar virði að mati Flokks fólksins en spurning er samt hvort leita eigi ekki annarra leiða í þessum efnum og þá ekki síst vegna þess að erfitt var að finna þeim stað í borgarlandi. Flokki fólksins er umhugað um málefni heimilislausra og er það eitt helsta baráttumál flokksins að berjast gegn fátækt, ójöfnuði og óréttlæti í víðum skilningi.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sbr. 13. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 31. janúar 2024 um mál 2 í fundargerð skipulagsfulltrúa frá 11. janúar 2024. Einnig er lagt fram svar skipulagsfulltrúa, dags. 27. febrúar 2024.

Fulltrúi Flokks fólksins fékk ábendingar um að óeðlileg afgreiðsla hafi átt sér stað á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. janúar  s.l. Rætt var um ákveðið mál á fundinum, það samþykkt, en þegar fundargerð fundarins var birt var ekki orð um þetta mál í henni eins og það hefði aldrei verið rætt á fundinum. Segir í svari við fyrirspurn Flokks fólksins „Mál er varðar svalaskýli við vesturgafl Rafstöðvarvegar 31var ekki tekið fyrir á umræddum fundi.“ Þetta er ósatt. Þetta getur sannarlega ekki talist eðlilegt né löglegt ef því er að skipta. Til hvers að gera fundargerð ef velja á svo efni í hana eftir á? Það mál sem hér um ræðir snýst um veitt samþykki á leyfir fyrir svalaskýli við vesturgafl á svölum á Rafstöðvarvegi 31. Að loknum fundinum, þ.e. milli fundar og fundargerðar fékk umsóknaraðili skeyti frá starfsmanni sviðsins um að málið hafi verið samþykkt á fundinum en síðan er búið að afmá öll merki málsins í fundargerðinni. Af svari að dæma  er ljóst að reyna á að þagga fölsun fundargerðarinnar. Ritari fundargerðarinnar 11. janúar, lögfræðingur sviðsins  hefur núna í votta viðurvist viðurkennt að hafa tekið samþykktina fyrir svalaskýlinu út úr fundargerðinni þrátt fyrir að málið hafi verið samþykkt á fundinum.