Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram til kynningar, Aðalskipulagsbreyting, Sundabraut, verklýsing:
Um þennan lið má segja að það er áríðandi að klára hönnunarvinnuna fljótlega. Mikill dráttur á að ákvarða legu Sundabrautarinnar mun tefja aðra uppbyggingu. Svo þarf að árétta að ekki má skerða gæði strandarinnar og grunnsævis. þess vegna þarf að byggja brýr en alls ekki landfyllingar. Sérkennilegt er að Hafró sé ekki umsagnaraðili en þar eru rannsóknir á líffræði sjávar stundaðar, þar á meðal göngur fiska upp í ár og læki.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Yrki arkitekta ehf. og Ofanleiti 1 ehf., dags. 6. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Ofanleitis 1 og 2 vegna lóðarinnar nr. 1 við Ofanleiti:
Samkvæmt tillögu skipulagsyfirvalda á að bæta við tveimur byggingarreitum á lóð Verslunarskólans vegna hjólaskýlis og djúpgáma og fækka bílastæðum. Borist hafa athugasemdir sem lúta að því að fólki finnst nú þegar komið mikið byggingarmagn á reitnum. Ósk er um að hjólaskýli og djúpgámum væri komið fyrir lengra frá nærliggjandi íbúðum því búið er að þrengja nóg að íbúðabyggð. Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt mikla áherslu á í gegnum árin að reynt sé að mæta óskum íbúa eins og nokkur kostur er.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram afreiðslubréf, dags. 17. ágúst 2023, vegna samþykktar borgarráðs s.d., tillaga borgarstjóra dags. 15. ágúst 2023 um skógarhögg í Öskjuhlíð þar sem farið er fram á tafarlausa fellingu um 2.900 trjáa í Öskjuhlíð og til vara 1.200 hæstu trjáa í Öskjuhlíð.
Ekkert er að því að grisja skóga, en hér fer Isavia fram með frekjulegum hætti og heimtar miklar aðgerðir sem munu kosta sitt. Hvernig væri að leggja meiri áherslu á að finna flugvellinum annan stað?
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að keyptir verða mælar til að mæla magn í gámum, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 16. ágúst 2023.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða. USK23080099
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um nýtt umhverfismat vegna fyrirhugaðra framkvæmda um Vetrargarð, sbr. 35. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 16. ágúst 2023.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða. USK23080100
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um vistlokin, sbr. 49. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 28. júní 2023. Greinargerð fylgir fyrirspurn.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, samgangna og borgarhönnunar. USK23060357
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um lengd kaflans, 3. áfanga Arnarnesvegar, sbr. 50. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 28. júní 2023.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, samgangna og borgarhönnunar. USK23060358
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um öryggismál á Laugarásvegi:
Nú hafa all margar ábendingar borist til borgarinnar vegna öryggisatriða á Laugarásvegi en foreldrar hafa einfaldlega ekki verið að fá skýr svör. Búið er að
staðfesta að mála þarf merkingar á götuna aftur en ekkert bólar á slíkri vinnu enn. Það eru heldur engar aðrar merkingar komnar og vill fulltrúi Flokks fólksins því enn og aftur spyrjast fyrir um málið enda gatan í raun stórhættuleg börnum. Laugarásvegur sker sig mjög úr verandi svona löng auk þess sem hún tengir saman tvö hverfi. Fulltrúi Flokks fólksins vill fá skýr svör því við þessa götu búa tugir barnafjölskyldna. Byrgja þarf brunninn áður en barn fellur í hann. USK23090041
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um samkomusáttmálann:
Flokkur fólksins óskar upplýsingar um hvort skipulagsyfirvöld hyggjast fara í grundvallar endurskoðun á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og þá helst að farið verði í að fá nýtt umhverfismat fyrir 3ja áfanga Arnarnesvegar. Endurskoða þarf einnig borgarlínuverkefnið en kostnaður við hana hefur margfaldast. Nokkur sveitarfélög sem standa að borgarlínuverkefninu hafa sagt fyrir all löngu að þau vilji endurmeta stöðuna í ljósi þess hversu langt framkvæmdir eru komnar fram úr kostnaðaráætlun. Eðlilegt er að Reykjavík sem stærsta sveitarfélagið taki forystu í endurskoðunar ferlinu. Flokkur fólksins var einn af þeim flokkum sem hvöttu borgaryfirvöld til endurskoðunar á sáttmálanum í fyrra þegar málið var til umræðu í borgarstjórn. Málið mætti mikilli mótspyrnu meirihlutans í borgarstjórn sem ekki taldi endurskoðunar þörf. Flokkur fólksins bókaði eftirfarandi þegar minnisblað stýrihóps samgöngusáttmálans var sent borgarráði: Það er ótrúlegt að meirihlutinn vill ekki endurskoða samgöngusáttmálann og þann hluta sem snýr að borgarlínu eins og sum önnur sveitarfélög. Þá er það umhugsunarefni að skipulagsyfirvöld hafa samþykkt að fara í vinnu við Arnarnesveginn en hann er nærri eingöngu fyrir íbúa Kópavogs, sem stytta sér leið inn á mjóa -einbreiða- Breiðholtsbrautina. Þær framkvæmdir sem eru mest til bóta fyrir Reykvíkinga verða látnar bíða. USK23090042