Velferð barna á Íslandi í ljósi skýrslu UNICEF undir liðnum Störf þingsins

Velferð barna á Íslandi í ljósi skýrslu UNICEF

UNICEF gaf nýverið út skýrslu um líðan og velferð barna í efnameiri ríkjum heims. Niðurstöður fyrir Ísland gefa tilefni til umhugsunar.

Skýrslan undirstrikar mikilvægi náinna tengsla barna við foreldra sína og dregur skýrt fram að börn sem eiga í reglulegum og jákvæðum samskiptum við foreldra sína eru líklegri til að upplifa öryggi og ánægju í daglegu lífi.

Þó íslensk börn standi sig vel í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að líkamlegri heilsu, er staðan mun verri þegar litið er til andlegrar heilsu, námsárangurs og félagsfærni. Af 36 tekjuháum ríkjum situr Ísland í 22. sæti og neðst meðal Norðurlandanna. Skýrslan sýnir að lífsánægja 15 ára ungmenna á Íslandi hefur lækkað milli ára. Þá segist fjórði hver unglingur tala sjaldnar en einu sinni í viku við foreldra sína, sem er verulegt áhyggjuefni í ljósi þess hve mikil áhrif þessi tengsl hafa á andlega vellíðan barna.

Það hafa orðið hraðar breytingar á samfélaginu sem skapa nýjar áskoranir í uppeldinu. Foreldrar upplifa oft mikið álag og það er ýmislegt í samfélagsgerð okkar sem styður ekki við samveru fjölskyldunnar. Ef bæta á líðan barna þarf samfélagið allt að bregðast við, ekki aðeins með sértækum úrræðum heldur einnig með því að skapa aðstæður sem gera fjölskyldum kleift að verja meiri tíma saman. Þegar fjölskyldur fá aukið rými til samveru aukast líkurnar á því að börn dafni vel, upplifi öryggi og byggi upp sterkan grunn til framtíðar.