Kveikjum neistann um land allt undir liðnum: Störf þingsins

Flokkur fólksins hefur lengi talað fyrir verkefninu Kveikjum neistann, í borgarstjórn sem á hinu háttvirta Alþingi. Um er að ræða rannsóknar- og þróunarverkefni sem Grunnskóli Vestmannaeyja hefur tekið virkan þátt í með nemendum sínum í tæp tvö ár.

Markmið Kveikjum neistans er metnaðarfullt: að bæta læsi og nám allra barna á markvissan og einstaklingsmiðaðan hátt. Notast er við hljóðaðferð við lestrarkennslu, með öflugri eftirfylgni og sérsniðna þjálfunartíma þar sem hvert barn fær viðeigandi áskoranir. Stundartöflu hefur verið breytt, dagurinn einfaldaður, hreyfing yfir daginn aukin og settir inn svokallaðir „ástríðutímar“ sem vekja gríðarlega lukku. Frá upphafi hefur árangur verið mældur reglulega og lofar góðu.

Að upplifa árangur og finna færni sína vaxa hefur bein áhrif á vellíðan og sjálfstraust. Það góða við Kveikjum neistann er að nálgunin kveikir áhuga, byggir upp og mætir börnum af virðingu og umhyggju.

Staða margra nemenda í lestri og lesskilningi í Reykjavík er ekki nógu góð. Þetta hafa m.a. PISA-kannanir sýnt okkur undanfarin ár.  Úr þessu má ekki gera lítið eða hunsa. Því miður hefur ekki verið lögð næg áhersla á þessi mál hjá síðustu ríkisstjórn og hefur vandi barna vaxið eins og margar skýrslur hafa staðfest.

Niðurstöður úr skimunum sem framkvæmdar eru í leik- og grunnskólum til að meta málþroska og færni í íslensku sýna að 92,5% barna af erlendum uppruna eru metin á rauðu eða gulu ljósi í íslenskukunnáttu. Þetta gefur sterklega til kynna að grípa þurfi til tafarlausra aðgerða. Þá er mikilvægt að veita sérstaka athygli þeim börnum sem ekki geta nýtt sér hefðbundnar kennsluaðferðir.

Í nýju frumvarpi um breytingar á grunnskólalögum eru þessi mikilvægu mál tekin til umfjöllunar. Ríkisstjórnin, með mennta- og barnamálaráðherra í fararbroddi, hefur markað skýra stefnu í þessum málaflokki sem tryggir að horft sé til þarfa allra barna á þessu sviði. Nú er  tími til kominn að tryggja að öll börn þessa lands fái notið sín og ekkert þeirra sé skilið út undan. Kveikjum neistann um allt land!