Velferðarráð 1. mars 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um deilibílakerfi á miðstöðvum Reykjavíkurborgar, sbr. 19. lið fundargerðar velferðarráðs frá 1. febrúar 2023.

Tillagan er samþykkt

Flokkur fólksins lagði til að skoðað verði að koma upp deilibílakerfi með vistvænum bifreiðum á miðstöðvum Reykjavíkurborgar. Leigubílakostnaður er hár á velferðarsviði og telur Flokkur fólksins að með því að velferðarsvið eigi sína eigin bíla þá geti sá kostnaður lækkað. Starfsmenn velferðarsviðs á miðstöðvunum gætu haft afnot af þessum bílum til að sækja fundi á vinnutíma. Í tillögunni er talað um litla vistvæna rafmagnsbíla sem starfsmenn geta deilt. Komið hefur í ljós að velferðarsvið hefur þurft að leigja jepplinga fyrir háar fjárhæðir í verstu vetrarfærðinni til að geta sinnt bráðnauðsynlegri heimaþjónustu í efri byggðum borgarinnar. Það væri því kannski ráð að þessir deilibílar væru jepplingar og gætu þá nýst í mestu vetrarhörkunum. Flokkur fólksins telur að þarna sé sóknarfæri til sparnaðar, bæta þjónustu og nota vistvænan ferðamáta. Tillagan er samþykkt og Flokkur fólksins fagnar því svo sannarlega. Vonandi fær tillagan góða skoðun og alvöru útfærslu sem kemur öllum til góða.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 1. mars 2023, við fyrirspurn fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um niðurskurð í heimastuðningi árin 2022 og 2023, sbr. 22. lið fundargerðar velferðarráðs frá 11. janúar 2023.

Fulltrúa Flokks fólksins hafa einnig borist ábendingar þess efnis að breytingar hafi verið gerðar á heimastuðningi, þar sem dregið hefur verið úr stuðningi í formi heimilisþrifa þrátt fyrir að ekkert hafi breyst í stöðu umsækjenda. Segir í svari að áherslubreyting varðandi forgangsröðun hafi verið gerð með nýjum reglum sem tóku gildi 1. febrúar 2022 en í forgangsflokk 4 raðast þeir sem eru með væga stuðningsþörf þ.e. eru sjálfbjarga en þurfa leiðbeiningar, þjálfun og stuðning við heimilishald s.s. með almennum heimilisþrifum. Gert er ráð fyrir að þeir fái almenn heimilisþrif einu sinni til tvisvar sinnum í mánuði. Vegna fjölda kvartana er augljóst að þessi breyting hefur ekki verið skýrð nægjanlega fyrir notendum þjónustunnar. Flokkur fólksins fagnar því að ekki standi til að skera niður fjármagn til heimastuðnings árið 2023.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 1. mars 2023, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um fjölda heimilislausra sem nýtir neyðarskýli Reykjavíkurborgar lengur en þrjá mánuði, sbr. 21. lið fundargerðar velferðarráðs 1. febrúar 2023. VEL23020009.

Fulltrúi Flokks fólksins óskaði eftir upplýsingum um hvort enn sé fjölgun í hópi heimilislausra sem nýta gistiskýlin lengur en þrjá mánuði og hvað sé nákvæmlega verið að gera til að sporna við henni? Flokkur fólksins þakkar greinargott svar. Af svari má sjá að staðan hefur versnað til muna árið 2022. Þar kemur fram að heildarfjöldi þeirra sem nýta neyðarskýlin lengur en 91 dag er 44 einstaklingar árið 2020, heldur áfram að fjölga á árinu 2021 upp í 60 og er orðinn 76 einstaklingar árið 2022. Það er virkilega sláandi að sjá þróunina varðandi einstaklinga sem hafa dvalið 201 dag eða lengur í gistiskýlunum en þeim hefur fjölgað úr 13 einstaklingum árið 2020 í 29 manns árið 2022. Jafnframt kemur fram að þeir sem dvelja langdvölum í skýlunum eru að meginuppistöðu þeir einstaklingar sem þarfnast hjúkrunarþjónustu. Það er ánægjulegt að verið sé að vinna að því að finna viðeigandi hjúkrunarúrræði fyrir þennan hóp. Vonandi gengur sú vinna fljótt og vel því neyðin er mikil. Flokkur fólksins hvetur til þess að aukinn þungi verði settur í vinnuna við að útfæra og kostnaðarmeta þrepaskipt úrræði fyrir heimilislausa með miklar og flóknar þjónustuþarfir.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um styrki til Betra Líf í Vatnagörðum:

Flokkur fólksins spyr hvort Reykjavíkurborg sé að styrkja Betra Líf í Vatnagörðum en þar er rekið áfangaheimili fyrir fólk sem glímir við fíkniefnavanda? Er einhver eftirfylgni með áfangaheimilum að þau starfi samkvæmt skilgreiningu áfangaheimila og að öryggi íbúa sé tryggt í úrræðinu. Áfangaheimili er skilgreint sem tímabundinn dvalarstaður fyrir einstaklinga sem hafa átt við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða en eru í virkri endurhæfingu eftir meðferð. Málefni áfangaheimila hafa komist í hámæli eftir að eldsvoði varð í einu slíku fyrir skömmu. Þrjátíu manns voru skráðir með aðsetur á hæð hússins við Vatnagarða þar sem eldurinn kom upp. Jafnframt kom fram í fréttum að nokkur fjöldi flóttafólks hafi aðsetur í húsnæðinu. Samkvæmt frásögn íbúa þá er engin eftirfylgni með íbúum og enginn skiptir sér af fólkinu og hafði nágranni hans verið látinn í nokkra daga áður en það uppgötvaðist. Samkvæmt upplýsingum frá sama íbúa þá greiðir hann 140 þúsund krónur í leigu fyrir herbergi sem er fimm til tíu fermetrar að stærð. Flokkur fólksins telur rétt að Reykjavíkurborg skoði þessar upplýsingar því það getur ekki verið boðlegt að bjóða fólki í viðkvæmri stöðu upp á svona ótryggt húsnæði. VEL23030001.