Velferðarráð 15. mars 2023

Bókanir Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram yfirlit yfir ferðaheimildir á velferðarsviði 2022, dags. 15. mars 2023, og yfirlit yfir innkaup á velferðarsviði yfir 1 milljón á 4. ársfjórðungi 2022, dags. 15. mars 2023:

Um 14 milljónir í ferðakostnað er kannski ekki mikið i stóra samhenginu. Hér er um að ræða kynnisferðir og aðra fundi. Flokkur fólksins vill sjá velferðarsvið horfa í hverja krónu. Sviðið er langt yfir kostnaðaráætlun sem skilja má að mörgu leyti enda ráð með ein mestu krefjandi verkefnin í borginni. Sparað er við fólkið og meðal annars eru börn látin bíða eftir mikilvægri þjónustu, nú bíða 2291 börn samkvæmt tölum velstad (tölfræðivef borgarinnar) í dag. Bruðl í ferðir eða leigubíla getur því ekki verið ásættanlegt. Flokkur fólksins minnir á fjarfundar möguleikana því flestum ráðstefnum er streymt nú til dags.

 

Bókanir Flokks fólksins undir liðnum:  Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 15. mars 2023, um framlengingu samnings við Hugarafl um þjónustu við einstaklinga með andleg veikindi, ásamt fylgiskjölum:

Hér er lagt til að samningur við Hugarafl um þjónustu við einstaklinga með andleg veikindi verði framlengdur til loka árs 2024. Flokkur fagnar þessum samningi. Samkvæmt úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á árinu 2022 á starfsemi Hugarafls er mikil ánægja með starfsemina. Niðurstöður viðtala bentu til þess að starfsemi Hugarafls hafi nýst mörgum vel við að bæta lífsgæði sín og ná bata.

 

Bókanir við svörum við fyrirspurnum Flokks fólksins:

Bókanir Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 15. mars 2023, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um akstursþjónustu fatlaðs fólks, sbr. 40. lið fundargerðar borgarráðs 9. febrúar 2023, sem vísað var til meðferðar velferðarráðs með bréfi skrifstofu borgarstjórnar dags. 15. febrúar 2023.

Fulltrúi Flokks fólksins er að reyna að benda á ákveðna annmarka á þessu annars ágæta kerfi. Í svari er gert frekar lítið úr ábendingum Flokks fólksins. Þjónustan er einfaldlega ekki fullnægjandi og velferðarsvið á ekki að sætta sig við neitt minna en að þjónustan sé fullnægjandi. Kvartað var yfir stífni og ósveigjanleika í þjónustunni. Það er alvarlegt. Það að ná ekki sambandi og að erfitt sé að komast að í símaveri til að panta akstursþjónustu getur varla talist í lagi. Enn alvarlega er sú reynsla að ef viðkomandi, fatlaður einstaklingur, er ekki mættur á sekúndunni sé bílstjórinn jafnvel bara farinn. Þegar svona alvarlegar kvartanir berast þá er ekki nóg að einhver meirihluti notenda sé ánægður. Af nýtingartölum að dæma er greinilega mikil þörf. Það þýðir ekki að hægt sé að koma fram með þessum hætti við þjónustuþegann. Hér þarf einfaldlega að vanda sig betur og það er á ábyrgð stjórnenda að sjá til þess að þjónustan sé fullnægjandi.

 

Bókanir Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 15. mars 2023, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um stuðning og eftirlit með starfsemi áfangaheimila, sbr. 10. lið fundargerðar velferðarráðs frá 1. mars 2023:

Lagt er fram svar við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um stuðning og eftirlit með starfsemi áfangaheimila.Spurt var hvort Reykjavíkurborg væri að styrkja Betra Líf í Vatnagörðum en þar er rekið áfangaheimili fyrir fólk sem glímir við fíkniefnavanda? Einnig var spurt hvort eftirfylgni væri með áfangaheimilum um að þau starfi samkvæmt skilgreiningu áfangaheimila og að öryggi íbúa sé tryggt í úrræðinu. Í svari kemur fram að velferðarsvið veitir einungis styrki til reksturs áfangaheimila á grundvelli reglna Reykjavíkurborgar um áfangaheimili en þær reglur falla niður þann 1. apríl nk. Ekki hafa verið veittir styrkir til Betra Lífs í Vatnagörðum þar sem starfsemin uppfyllti ekki skilyrði reglnanna um að einstaklingar sem dvelja á áfangaheimilum skuli vera í virkri endurhæfingu og því litið svo á að það húsnæði falli ekki að þeirri skilgreiningu sem fram kom í reglunum. Flokkur fólksins þakkar fyrir skýrt svar og ábendinguna um þingsályktunartillöguna um leyfisskyldu og eftirlit með áfangaheimilum. Þörf er á skýrari laga og reglu umgjörð fyrir áfangaheimili og Flokkur fólksins kallar eftir því að stjórnvöld, bæði Reykjavík og önnur sveitarfélög, sem og viðeigandi ráðuneyti komi fram með lagasetningu um leyfisskyldu og eftirlit með rekstri áfangaheimila, skilgreiningu þeirra og hlutverk.

 

Bókanir Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 15. mars 2023, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um þjónustusamninga við einkarekin vistheimili, sbr. 14. lið fundargerðar velferðarráðs frá 15. febrúar 2023:

Flokkur fólksins óskaði upplýsinga um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við einkarekin vistheimili fyrir börn með fjölþættan og flókin vanda. Jafnframt er spurt um hvernig eftirliti er háttað með þessum vistheimilum og hvort öryggi skjólstæðinga og starfsfólks sé tryggt. Flokkur fólksins þakkar upplýsandi svar. Undafarin ár hefur Reykjavíkurborg keypt búsetuþjónustu fyrir börn af einkaaðilum á borð við Vinakot, Klettabæ og Heilindi. Í svari kemur fram að langflestir skilmálasamningar séu milli velferðarsviðs og Klettabæjar. Eftirlit með þjónustunni byggir á kröfulýsingu, heimsóknum ráðgjafa og samtali við þau börn og ungmenni sem um ræðir. Ráðgjafar barnanna fá einnig vikulega yfirlit yfir þjónustuna og stöðu mála. Það vekur athygli fulltrúa Flokks fólksins að eingöngu er fjallað um skilmálasamninga milli velferðarsviðs og Klettabæjar en það hlýtur að þurfa að auka innra eftirlit með öðrum heimilum. Fram kemur að velferðarsvið sé að vinna að úrbótaáætlun um útfærslu og framkvæmd gæðavísa innra eftirlits vegna barna og ungmenna í búsetu utan heimilis. Flokkur fólksins fagnar því að unnið sé að þessum úrbótum á velferðarsviði því hér er um að ræða afar viðkvæman hóp barna og ungmenna. Flokkur fólksins telur að rétt væri að skoða arðgreiðslur þessara vistheimila en það er ekki gert í dag.

 

Bókanir Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 15. mars 2023, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um fjölda skólaforðunarmála sem vísað var til Barnaverndar árið 2022, sbr. 12. lið fundargerðar velferðarráðs frá 15. febrúar 2023. VEL23020053:

Flokkur fólksins óskaði upplýsinga um hversu mörgum skólaforðunarmálum var vísað til Barnaverndarnefndar árið 2022? Áður hafði Flokkur fólksins fengið sambærilegar upplýsingar um árin 2020 og 2021. Í svari sviðsstjóra um árið 2022 kom fram að fjöldi tilkynninga vegna vanrækslu varðandi nám eins og það er orðað hefur aukist mikið. Árið 2019 voru þessi mál 67, árið 2021 voru þau 46 en árið 2022 eru málin um 70. Þetta er áfall. Flokkur fólksins hefur gert skólaforðunar vandamál að umræðu oftar en einu sinni og verið með bæði tillögur og fyrirspurnir í því sambandi. Óttast er að velferðarsvið og skóla- og frístundasvið hafi sofnað á verðinum. Bent hefur verið á að þau viðmið sem fara á eftir séu ekki samþykkjanleg af öllum skólum þar sem blandað er saman fjarvist vegna sálfræði- og félagslegra vandamála annars vegar og fjarvistum vegna óleyfilegra fjarvista hins vegar. Ekki er ósennilegt að endurskoða þurfi þetta viðmiðunarkerfi, skera af því agnúa og á þetta hefur Flokkur fólksins oft bent.

 

Ný mál:

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn sem lýtur að vaxandi fátækt:

Í nýrri skýrslu Barnaheilla kemur fram að um 10 þúsund íslensk börn búa við fátækt og að fátækt hafi aukist. Eins og Barnaheill segja, þá er eitt barn sem elst upp við fátækt á Íslandi er einu barni of mikið. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að árið 2021 áttu 24,1% íslenskra heimila í erfiðleikum með að standa straum af daglegum útgjöldum. Í rúmlega helmingi tilfella voru það heimili einstæðra foreldra og 16,1% voru heimili tveggja eða fleiri fullorðinna með börn. Verðbólga og hækkun vaxta hefur aukið greiðslubyrði fjölskyldna af húsnæðislánum, leiguverð hefur hækkað og allur framfærslukostnaður. Eitt af hverjum fimm börnum sem búa í leiguhúsnæði eiga á hættu að falla í fátækt. Flokkur fólksins tekur undir með Barnaheillum að það er mjög mikilvægt að gera stefnu og áætlun til að tryggja öllum börnum á Íslandi jöfn tækifæri til menntunar, heilsu, verndar og þátttöku.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn er varðar neyðarástand hjá Félagsbústöðum og hvert leigjendur geti þá leitað:

Flokkur fólksins hefur fengið kvartanir frá leigjendum félagsbústaða um að ekki sé hægt að fá aðstoð hjá Félagsbústöðum ef eitthvað fer úrskeiðis utan skrifstofutíma. Í þessum kvörtunum kemur fram að rafmagnlaust hafi verið í 12 tíma í fjölda íbúða á Meistaravöllum. Leigjendur reyndu að hafa samband við Félagsbústaði en það var ekki hægt og urðu þeir því að hringja í 112. Flokkur Fólksins spyr hvort þetta sé rétt og hvort ekki sé hægt að hringja í eitthvað neyðarnúmer hjá Félagsbústöðum utan hefðbundins opnunartíma ef upp kemur bilun eða erfitt tilvik hjá leigjendum félagsbústaða?

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um agnúa á akstursþjónustu fatlaðra:

Í svari við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um akstursþjónustu fatlaðs fólks kemur margt athyglisvert fram. Sérstaklega fróðlegt er að skoða niðurstöðu þjónustukönnunar sem gerð var síðastliðið ár á heimasíðu Pant. Það er ánægjulegt að sjá að meirihluti notenda er ánægður með þjónustuna. Það vakti hins vegar athygli fulltrúa Flokks fólksins að fjöldi þeirra sem eru óánægðir hefur fjölgað milli áranna 2021 og 2022. Flokkur fólksins hefur áhuga á að vita hvort einhverjir notendur akstursþjónustunnar hafi gefist upp á að nota hana. Er hægt að sjá hversu margir hafa sagt upp þjónustunni á síðasta ári og voru gefnar upp ástæður fyrir uppsögn?