Velferðarráð 4. október 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Fram fer kynning á niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar:

Fulltrúi Flokks fólksins þakkar velferðaráði fyrir að bregðast svo skjótt við tillögu Flokks fólksins um kynningu á niðurstöðum á Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Rannsóknin er viðamikil og hún gefur góða yfirsýn yfir hegðun, stöðu og líðan barna og ungmenna. Sérstaklega er fulltrúa Flokks fólksins brugðið við að sjá hvað líðan unglingsstúlkna er slæm. Það birtist m.a. Í því að 23% stúlkna hafa skaðað sig í 10.bekk. Sorglegt að sjá hvað kynferðislegt áreiti er mikið hjá ungmennum bæði frá fullorðnum og jafnöldrum. Það var sláandi að sjá að 58% stúlkna í 10.bekk hafa orðið fyrir stafrænni kynferðislegri áreitni og 35%drengja. Unglingsstúlkur eru meira einmanna og þær telja sig eiga færri vini en drengir. Unglingsstúlkur eru mun háðari samfélagsmiðlum en drengir. Börn af erlendum uppruna lenda frekar í einelti og eiga erfiðara með að eignast vini og strákar af erlendum uppruna lenda frekar í slagsmálum. Velferðar yfirvöld verða að taka þessar niðurstöður alvarlega og hlúa sérstaklega að þessum hópum sem koma hvað verst út í þessari rannsókn. Langir biðlistar barna eftir skólaþjónustu, nú 2300 börn segir okkur hvað staðan er alvarleg og mun Flokkur fólksins ekki una sér hvíldar fyrr en tekið verði á þessum langa biðlista barna eftir aðstoð.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á niðurstöðum stjórnendakönnunar um stoðþjónustu velferðarsviðs:

Margt er mjög áhugavert í þessari stjórnendakönnun. Sumar niðurstöður eru jákvæðar en aðrar miður jákvæðar. Aðeins tæplega helmingur telur sig komast yfir verkefni sín svo vel megi vera og enn færri geta sinnt umbótastarfi og þróun. Yfir 70% eru ánægðir sem stjórnendur. Skrifstofa stjórnsýslu er að koma einna verst út á flestum kvörðum og einnig fjármálaskrifstofa. Það eru ekki nýjar niðurstöðu. Ef horft er á málaflokk fatlaðs fólks og spurt hversu reglulega leitar þú til fagskrifstofu/stoðþjónustu er minnst leitað til stjórnsýslu. Sama má segja um málaflokk eldra fólks sem 100% leita sjaldnar til stjórnsýslu. Þetta hlýtur að teljast alvarlegu áfellisdómur á skrifstofu stjórnsýslu? 21% telja sig aldrei fá nauðsynlegar upplýsingar til að sinna starfi sínu í málaflokki eldra fólks frá stjórnsýsluskrifstofunni. Ábendingar eru að það vanti samráð, upplýsingaflæði og betri samskipti. Erfitt er að vita hvert á að leita. Skortur er á yfirsýn og ábyrgarsviði deilda. Ekki tekið nógu vel á móti nýjum stjórnendum. Um 75% segja mikið álag í starfi vegna málefna íbúa og mannauðsmála. Þetta á við um fatlað fólk en þar kvarta 81% yfir miklu álagi. Sama er í málaflokki eldra fólks. Heilt yfir virðast stjórnendur í sumum málaflokkum vera að sligast. Þessar niðurstöður eru dökkar.

 

Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins og  Sósíalistaflokks Íslands um viðveru sálfræðinga í öllum grunnskólum borgarinnar. Einnig lögð fram umsögn skóla- og frístundasviðs, dags. 15. september 2023.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að tillögunni sé vísað frá.

Málsmeðferðartillagan er felld er með sex atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn einu atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

Í umsögn við tillögu Flokks fólksins og Sósíalistaflokksins um viðveru sálfræðinga í öllum grunnskólum borgarinnar er tekið undir að auka þurfi stöðugildi sálfræðinga. Stöðugildum hefur ekki fjölgað í áratug. Í umsögninni er lögð áhersla á snemmtæka íhlutun og að mikilvægi þess að veita ráðgjöf til starfsfólks og foreldra. Hvergi er nefnt aðgengi barnanna sjálfra að sálfræðingum. Í skólasamfélaginu er hávært ákall um að fá sálfræðingana meira inn í skólana og að börnin fái beinan aðgang að þeim. Flokkur fólksins minnir á tillögur ungmennaráða Árbæjar og Holta og Laugardals, Háaleitis og Bústaða um aukið aðgengi að sálfræðingum skólanna. Með Betri borg fyrir börn hefur aðstoð við starfsfólk gegnum lausnateymi komið til sem er gott. En hvað með börnin sjálf? Eiga þau ekki að fá að tala við sálfræðing? Fulltrúi Flokks fólksins vill sjá aðsetur sálfræðinga vera í skólunum. Þaðan geta þau sinnt þverfaglegu starfi allt eins vel m.a. í gegnum fjarfundi.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins um að aðsetur sálfræðinga verði flutt í skóla borgarinnar.  Einnig lögð fram umsögn skóla- og frístundasviðs, dags. 15. september 2023.

Tillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar og Pírata gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

Bókun Flokks fólksins

Lagðar eru fram umsagnir skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs við tillögu Flokks fólksins um aðsetur skólasálfræðinga í skólum. Tillagan er meira en árs gömul og eru það ámælisverðir stjórnsýsluhættir. Bæði svið telja ekki ástæðu til að sálfræðingar séu með aðsetur út í skólum og séu betur komnir á þjónustumiðstöðvum til að þeir geti sinnt þverfaglegu starfi. Þessari forgangsröðun hafnar fulltrúi Flokks fólksins. Börnin eiga að koma fyrst og mestu skiptir að sálfræðingar séu staddir þar sem börnin eru . Ávallt er hægt að sinna þverfaglegu starfi með heimsókn út á þjónustu miðstöð eða með fjarfundabúnaði. Annað sem slær illa í þessu svari er að svo virðist sem allt kapp sé sett á að draga úr beiðnum til sálfræðinga. Beiðnir verða ekki til af neinu. Ef draga á úr beiðnum þarf að leysa undirliggjandi vanda barnanna. Að stoppa flæði erinda til sálfræðinga er ekki lausn fyrir barnið. Haldið er fram að það sé ekki pláss fyrir sálfræðinga út í skólum. Það er ekki rétt. Í mörgum skólum er pláss. Minnt er á ákall skólanna sjálfra um aukna nálægt fagfólk inn í skólum sem sem skýrt kom fram í skýrslu Innri endurskoðunar 2019.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um sjálfkrafa breytingar húsnæðisbóta, sbr. 12. lið fundargerðar borgarráðs frá 27. júlí 2023.

Það er staðreynd að húsaleiga hefur hækkað mikið eða um 45% umfram verðlag. Fulltrúa Flokks fólksins finnst sjálfsagt að það verði skoðað hvort hægt sé að framkvæma þessa tillögu. Lagt er til að borgarráð samþykki að hækka sérstakar húsnæðisbætur sjálfkrafa í hverjum mánuði, þannig að verðgildi þeirra haldist í við vísitölu húsaleigu. Byrjað verði á því að stilla bæturnar inn á raungildi sitt frá því árið 2016. Árið 2016 var hámarksfjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings var 82.000kr og sé verðgildi þeirrar upphæðar reiknuð fram til dagsins í dag, samsvarar hún 111.000 kr. Í dag er hámarksfjárhæðin 100.000 kr. svo húsnæðisstuðningurinn hefur ekki haldist í við vísitölu húsaleigu. Þetta er sanngjörn og eðlileg tillaga að mati Flokks fólksins.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar Félagsbústaða, dags. 4. október 2023, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um breytingar á húsnæði leigjenda Félagsbústaða og bætt aðgengi þegar fötlun fólks eykst, sbr. 12. lið fundargerðar velferðarráðs frá 30. ágúst 2023.

Flokkur fólksins spurðist fyrir um hvort Félagsbústaðir brygðust við og gerðu breytingar á húsnæði leigjenda þegar fötlun þeirra eykst með það að markmið að bæta aðgengi. Í svari segir meðal annars að þegar aðstæður fatlaðs leigjanda breytast þannig að íbúðin sem viðkomandi er með í leigu hentar ekki lengur er almenna reglan sú að hvert mál fyrir sig er skoðað. Fulltrúi Flokks fólksins veit dæmi þess að í máli af þessu tagi var fötluðum leigjanda Félagsbústaða gert að flytja úr íbúðinni en þar hafði hann dottið. Honum var ekki boðið að búa annars staðar meðan á lagfæringu íbúðar stóð og koma að því loknu aftur heim til sín. Þessi afgreiðsla var ekki í samráði við leigjandann. Ef meta á hvert tilfelli fyrir sig þá hefði átt að finna aðra lausn á þessu máli. Flokkur fólksins vonar að þetta dæmi sé einsdæmi. Um er að ræða heimili fólksins, stað sem það hefur bundið tengsl við og allt á að gera til að fólk geti verið áfram á sínu heimili.

 

 Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu um að ferðaþjónusta íbúa á hjúkrunarheimilum verði tekin á dagskrá velferðarráðs eins fljótt og auðið er:

Flokkur fólksins leggur til að ferðaþjónusta íbúa á hjúkrunarheimilum verði tekin á dagskrá velferðarráðs eins fljótt og auðið er. Fulltrúa Flokks fólksins finnst ótækt að fatlaðir einstaklingar á hjúkrunarheimilum fái ekki akstursþjónustu til að viðhalda tengslum við vini og fjölskyldu. Í dag hafa íbúar hjúkrunarheimila eingöngu rétt á akstursþjónustu til að sækja læknaheimsóknir.

Frestað.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu að fá á dagskrá velferðarráðs rétt maka íbúa hjúkrunarheimila til akstursþjónustu til að heimsækja maka sinn:

Flokkur fólksins óskar eftir því að fá á dagskrá velferðarráðs rétt maka íbúa hjúkrunarheimila til akstursþjónustu til að heimsækja maka sinn. Margir eldri borgarar þurfa að sjá á eftir maka sínum flytja á hjúkrunarheimili. Makinn getur verið í þeim sporum að eiga ekki bíl og jafnvel búinn að missa færni til að aka bíl. Það er gríðarlega mikilvægt að ferðir þessara einstaklinga séu ekki háðar takmörkunum.

Frestað.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu ð velferðaryfirvöld rýmki reglur um ættingjaráðningar þegar kemur að því að ráða stuðningsfjölskyldur fyrir börn sem þess þurfa og hafa fengið samþykki fyrir:

Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að velferðaryfirvöld rýmki reglur um ættingjaráðningar þegar kemur að því að ráða stuðningsfjölskyldur fyrir börn sem þess þurfa og hafa fengið samþykki fyrir. Mörg rök hníga að því að með því sé verið að hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Fulltrúa Flokks fólksins finnst leiðbeiningar og reglur um ráðningar ættingja sem stuðningsfjölskyldu of strangar. Reglurnar segja að ættingjaráðningar séu einungis heimilar í undantekningartilfellum. Almennt skyldi halda að það séu augljósir hagsmunir barnsins að ættingjar annist umönnun þess og að það sé barninu fyrir bestu að vera sem mest hluti af sínum ættingjagarði. Ff ættingi getur tekið að sér hlutverk stuðningsfjölskyldu þegar slíkar aðstæður eru mætti ætla að það væri betra en að ókunnug fjölskylda annist barnið. Það er allt of mikil harka af hálfu borgarinnar að afar og ömmur og systkini foreldra megi ekki vera stuðningsfjölskyldur nema í undantekningartilfellum. Rök velferðaryfirvalda eru að hætta sé á að ættingja ráðningar verði misnotaðar. Við í Flokki fólksins teljum að sé óþarfa tortryggni. Við eigum að treysta borgarbúum eins og önnur sveitarfélög gera. Reykjavík er einsdæmi í þessu þegar kemur að sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.

Frestað.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um að velferðarsvið læri af BUGL hvernig stytta skuli biðlista:

Flokkur fólksins spyr hvort velferðarsvið geti hugsað sér að skoða þá leið sem farin hefur verið á BUGL en þeim hefur tekist farsællega að stytta biðlista. Lagt er til að velferðaryfirvöld leiti til starfsfólks BUGL um leiðbeiningar og ráðgjöf hvernig stytta megi biðlista svo farsællega sem þeim hefur tekist að gera það. Tekist hefur að stytta biðlista umtalsvert þar með skipuritsbreytingum sem gerði það að verkum að starfsfólk BUGL gat farið í nauðsynlega innri endurskoðun á ferlum og þjónustu við börn.Það sem gert var á BUGL var að vinnulagi var töluvert breytt og það skilaði árangri. Meðal biðtími hjá BUGL er um fimm mánuðir en hjá borginni jafnvel mörg ár. Reykjavíkurborg hefur vissulega breytt sínu kerfi og nýtur starfsfólks einna helst góðs af því í gegnum lausnateymi og málastjóra en börnin sjálf fá ekki að hitta sálfræðing eins og áður. Biðlisti borgarinnar í dag er 2.380. Á tveimur árum hefur biðlisti eftir fagfólki skólaþjónustu lengst verulega en 2021 biðu 1448 börn eftir fagþjónustu Skólaþjónustunnar. Á fjórða hundrað barna bíða eftir að komast á helstu námskeið á vegum borgarinnar s.s. PMTO foreldranámskeið, Klóka krakka og fleiri námskeið.

 

Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um aðgengi borgarbúa að starfsfólki þjónustumiðstöðva:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um aðgengi borgarbúa að starfsfólki þjónustumiðstöðva. Hvað mörg erindi berast með síma , í tölvupósti og í rafrænni ábendingargátt. Hvað mörg erindi berast í afgreiðslum stöðvanna á opnunartíma Hvernig gengur að fylgja málshraðareglu stjórnsýslulaga og hvernig er eftirfylgni háttað?