Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á starfsemi Foreldrahúss og samstarfi við Reykjavíkurborg.
Flokkur fólksins þakkar góða kynningu á starfsemi Foreldrahúss. Það er augljóst að í Foreldrahúsi er unnið mikilvægt og gott starf. Í um 25 ár hafa foreldrar barna og ungmenna sem glíma við vímuefnavanda getað sótt sér meðferð, fræðslu og þjónustu í Foreldrahúsi. Um er að ræða eina úrræðið sem foreldrum barna og ungmenna í vímuefnavanda stendur til boða. Nýjustu skýrslur Barnaverndar sýna aukningu á neyslu hjá börnum og Barnavernd sendir þessa skjólstæðinga í Foreldrahús. Foreldrahús vinnur gríðarlega mikilvægt og gott starf og Flokkur fólksins telur gríðarlega mikilvægt að styðja við fjölskyldur í þessum vanda. Fulltrúi Flokks fólksins þakkar líka fyrir skjót viðbrögð velferðarráðs við tillögu Flokks 6. fólksins um að fá kynningu á starfsemi Foreldrahúss
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á skýrslu stýrihóps um rýningu á biðlista barna og ungmenna eftir sálfræðiþjónustu miðstöðva og mat á framkvæmd þjónustunnar.
Flokkur fólksins lagði til að stofnaður yrði stýrihópur sem fengi það verkefni að rýna biðlista barna og ungmenna eftir skólaþjónustu með það að markmiði að ná biðtíma barna eftir þjónustu undir 90 daga. Tillaga Flokks fólksins var samþykkt og var settur á fót stýrihópur í lok júní. Helstu viðfangsefni hópsins voru að rýna hvaða breytingar þurfi að gera á fyrirkomulagi sálfræðiþjónustu miðstöðva til að gera hana skilvirkari og hvaða breytingar þurfi að gera á fyrirkomulagi skólaþjónustunnar til að gera hana skilvirkari og heildstæðari. Stýrihópurinn hefur greinilega unnið hratt og vel því hópurinn fundaði tólf sinnum.11. 12. 13. Gestir fundanna voru samtals 23 aðilar víðsvegar úr kerfinu. Nú liggja fyrir tillögur stýrihópsins sem eru afar áhugaverðar. Það er m.a lagt til að afnema tvöfalt skráningarkerfi og allar upplýsingar verði í Málaskrá til að bæta yfirsýn, samræma verklag milli miðstöðva og koma á skýrum tímamörkum við vinnslu mála. Vinna mál í þverfaglegum teymum og að mál sé unnið í samfellu til að forðast áframhaldandi bið barns á biðlista. Nýta lausnateymi betur til að takast á við einfaldari mál. Lögð er áhersla á stuðning við kennara strax á fyrsta þjónustuþrepi en kennarar hafa lengi kallað eftir því. Fulltrúi Flokks fólksins vonar að þessar góðu tillögur komist til framkvæmda.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram drög að umsögn velferðarráðs um drög að aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi.
Umsögn velferðarsviðs er mjög gagnleg og mun fulltrúi Flokk fólksins koma þeim á framfæri í mannréttinda-og ofbeldisvarnarráði en fulltrúinn situr í því ráði og tekur því þessar ábendingar alvarlega. Segir í umsögn “Meðal hlutverka mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs er að vera vegvísir í baráttunni gegn ofbeldi, vera ráðgefandi fyrir starfsemi borgarinnar í málaflokknum og stuðla að upplýstri umræðu um ofbeldi á öllum sviðum borgarinnar. Um er að ræða mjög mikilvæg verkefni. Vert er að velta upp hvort hlutverk ráðsins mætti einnig felast í að hafa frumkvæði að því að lagt verði heildstætt mat á þær aðgerðir sem til staðar eru nú þegar, greina hvað betur má fara, hverju þarf að gera meira af og hvaða nýju aðgerðum þurfi að bæta við til að tryggja árangur.” Fulltrúi Flokks fólksins var sérlega áhugasamur um aðgerð átta í aðgerðaáætluninni en þar er lagt til að stofnaður verði tímabundinn starfshópur sem fær það hlutverk að greina stöðu barna og ungmenna í tengslum við ofbeldi og setja fram tillögur um sameiginlegt verklag. Flokkur fólksins telur að þessi aðgerð sé mjög mikilvæg og þörf. Flokkur fólksins lagði reyndar til svipaða aðgerð fyrir rúmum tveimur árum. Í umsögn velferðarsviðs er einmitt lögð áhersla á mikilvægi þessarar aðgerðar.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 4. desember 2024, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um styrki til Foreldrahúss.
Flokkur fólksins óskaði upplýsinga um hvort Reykjavíkurborg hygðist halda áfram að styrkja Foreldrahús. Í svari kemur fram að borgin greiði Foreldrahúsi 10.m.kr. styrk á næsta ári og gert er ráð fyrir að Foreldrahús sæki aftur um styrk á næsta ári þegar auglýst verður eftir styrkjum úr borgarsjóði. Í um 25 ár hafa foreldrar barna og ungmenna sem glíma við vímuefnavanda getað sótt sér meðferð, fræðslu og þjónustu í Foreldrahúsi. Um er að ræða eina úrræðið sem foreldrum barna og ungmenna í vímuefnavanda stendur til boða. Nýjustu skýrslur Barnaverndar sýna aukningu á neyslu hjá börnum og Barnavernd sendir þessa skjólstæðinga í Foreldrahús. Foreldrahús vinnur gríðarlega mikilvægt og gott starf og Flokkur fólksins telur gríðarlega mikilvægt að styðja við fjölskyldur í þessum vanda.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 4. desember 2024, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um túlkaþjónustu og ráðningu túlka á velferðarsviði.
Fulltrúi Flokks fólksins óskaði upplýsinga um hvernig túlkaþjónusta og ráðningu túlka væri háttað á velferðarsviði. Í svari kemur fram að engir túlkar eru ráðnir til starfa á velferðarsviði en hins vegar er í gildi rammasamningur sem Reykjavíkurborg gerði árið 2022 við sex túlkafyrirtæki. Leiðbeiningar fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar byggja á stefnu um túlka- og þýðingaþjónustu frá 2017. Siðareglur túlka eru hafðar til hliðsjónar og gerð er krafa um að túlkar hafi haldgóða þekkingu á íslensku og því tungumáli sem er til túlkunar en ekki er gerð krafa um löggildingu. Flokkur fólksins hafði spurnir af því að túlkar væru ekki að valda starfi sínu. Sumir tali ekki íslensku og væru jafnvel slakir í því máli sem þeir túlka. Þessi orðrómur er staðfestur í svari en þar segir. „Upp hafa komið tilvik þar sem mat starfsfólks er að túlkar hafi því miður ekki valdið starfi sínu nægilega vel“. Í þeim tilvikum er kvörtunum komið á framfæri til túlkafyrirtækis. Unnið hefur verið að fyrstu stefnu í málefnum innflytjenda á vegum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Þar er ánægjulegt að sjá að í umsögn Reykjavíkurborgar um stefnuna kemur fram að Reykjavíkurborg vill gera meiri kröfur til starfandi túlka- og þýðendaþjónustu um gæði og fagmennsku. Vonandi verður því framfylgt.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 4. desember 2024, við fyrispurn fulltrúa Flokks fólksins um viðbrögð við áliti umboðsmanns Alþingis um tímabilskort fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Flokkur fólksins óskaði upplýsinga um hvernig velferðaryfirvöld hygðust bregðast við úrskurði umboðsmanns Alþingis í máli ungs manns sem hafði barist í 6 ár fyrir því réttlæti að fá að kaupa tímabilskort vegna akstursþjónustu fatlaðra. Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurborg bæri að bjóða upp á gjaldskrá sambærilega og gjaldskrá í almenningssamgöngur. Fyrirspurnin var lögð fram í maí 2023 svo nokkur tími er liðinn. Það er ánægjulegt að segja frá því að 30.október síðastliðinn samþykkti velferðarráð breytingar á reglum fyrir sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu. Breytingin er að stakt fargjald fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks skal miðast við stakt gjald fyrir öryrkja hjá Strætó bs. Gjald vegna tímabilskorta fyrir notendur akstursþjónustu fatlaðs fólks mun einnig miðast við tímabilskort fyrir öryrkja. Það er því augljóst að þessar breytingar svara fyrirspurn Flokks fólksins.