Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram til kynningar drög að forvarna- og aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar 2024-27.
Kynnt eru drög að forvarna- og aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar 2024-27. Markmið áætlunarinnar er að bregðast við helstu áskorunum sem eru til staðar í forvarnarmálum varðandi börn og ungmenni í Reykjavík. Áskoranirnar eru margar því rannsóknir sýna fram á að andlegri líðan barna og unglinga hrakar, svefntími þeirra hefur minnkað og neikvæð áhrif vegna mikillar skjánotkunar hafa aukist. Ofbeldi er að aukast og hatursorðræða að verða meira áberandi í samfélaginu. Fulltrúi Flokks hefur haft áhyggjur af þessari þessari þróun og hefur ítrekað viðrað þær áhyggjur og mikilvægi þess að bregðast við þessum vanda. Með forvörnum og samstilltu átaki hefur tekist að draga úr áfengis og tóbaksneyslu hjá ungmennum. Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að setja aukinn kraft í forvarnarstarf og heilsueflingu barna og ungmenna með markvissum aðgerðum. Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á þessa aðgerðaáætlun og vonar að þetta verði ekki bara falleg orð á blaði heldur verði ráðist í raunverulegar forvarnaraðgerðir.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Tillaga sviðsstjóra, dags. 7. febrúar 2024, um breytingar á tekju-og eignamörkum vegna félagslegs leiguhúsnæðis:
Flokkur fólksins hefði viljað sjá hærri tekju- og eignamörk til að eiga rétt á félagslegu húsnæði. Verið er að hækka tekju- og eignamörk um 8,20%. Nú mega einstaklingar ekki hafa hærri árstekjur en 7.176.000 kr. til að eiga rétt á að leigja félagslegt húsnæði. Stigagjöf sem notuð er þegar umsóknum um félagslegt leiguhúsnæði er forgangsraðað eru líka uppfærðar með tilliti til tekna. Fulltrúi Flokks fólksins telur að gefa ætti fleiri stig vegna lágra tekna.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum : Lagt fram uppfært erindisbréf stýrihóps um mótun stefnu í málefnum eldra fólks.
Hlutverk þessa stýrihóps sem hér er verið að setja á laggirnar er afar mikilvægt. Gera á tillögu að heildstæðri stefnu í málefnum eldra fólks til ársins 2035 til þess að skapa aðstæður í borginni sem bæta félagslega, andlega og líkamlega heilsu eldra fólks. Þetta er brýnt því engin stefna hefur verið til eins og sú sem nú á að koma með tillögu um. Eitt af markmiðunum er að styðja við nýsköpun, virkni og heilbrigði þannig að eldra fólk geti búið heima jafnframt því sem umönnun þess sétryggð þegar hennar er þörf. Að móta heildstæða stefnu í málefnum eldra fólks er gríðarlega stórt og ábyrgðarfullt verkefni og það verður ekki gert nema með samráði við alla þá aðila sem koma að þjónustu við þennan hóp og vill Flokkur fólksins sérstaklega nefna öldungarráðgjafa borgarinnar sem hafa mikla og yfirgripsmikla reynslu af þessum málefnum. Flokkur fólksins leggur ríka áherslu á að ekkert skref verði tekið nema í samráði við þá sem munu þurfa að nota þjónustuna og við eldra fólk og hagsmunasamtök eldri borgara.
Bókun Flokks fólksins ungir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra, dag við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fjölda tilvika þar sem einstaklingum hefur verið vísað frá á miðstöð og kallað eftir aðstoð lögreglu.
Spurt er um fjölda tilvika þar sem einstaklingum hefur verið vísað frá miðstöð og kallað eftir aðstoð lögreglu. Í svari kemur fram að einstaklingum er ekki neitað um þjónustu en stundum beðnir um að mæta ekki á miðstöð vegna ástands. Vesturmiðstöð er eina miðstöðin sem er með atvikaskráningarkerfi í notkun. Fulltrúa Flokks fólksins finnst mikilvægt að allar miðstöðvar skrái atvik með skipulögðum hætti svo hægt sé að fylgjast með alvarlegum atvikum og er ánægjulegt að það sé verið að vinna á samræmdu verklagi milli miðstöðva. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu varkallað eftir aðstoð lögreglu á Vesturmiðstöð 25 sinnum á árinu 2023 og 6 sinnum árið 2022. Þetta er mikil fjölgun milli ára sem vert væri að skoða frekar.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um leigubílakostnað velferðarsviðs 2022 og 2023.
Spurt var um kostnað vegna leigubílanotkunar starfsmanna velferðarsviðs 2022 og 2023 og skýringar á honum. Leigubílakostnaður hefur verið hár hjá þessu sviði sem hefur verið hástökkvari í notkun leigubíla ef borið er saman við önnur svið. Fram kemur í svari að helsti kostnaður liggi í búsetuúrræðum og á þjónustu þættinum, stjórnsýslu, sérfræðiþjónustu og ráðgjöf eða um 71%. Fram kemur að um sé að ræða kjarasamningsbundna þætti, starfsmaður hafi rétt á leigubíl þegar strætó gengur ekki eða þegar vont er veður. Hverjir eru mælikvarðarnir á „vondu veðri“ og hver er eftirfylgnin með að ekki sé verið að misnota leigubílaakstur? Fulltrúa Flokks fólksins finnst sérstakt hvað skrifstofufólk stjórnsýslunnar þarf að taka oft leigubíla. Stór hluti af þessu eru sálfræðingar sem fara fram og til baka frá miðstöðvum til skóla. Flokkur fólksins og nemendur grunnskóla hafa margsinnis beðið um að aðsetur sálfræðinga sé í skólum en ekki á miðstöðvum en á það hefur ekki verið hlustað. Kostnaður við að flytja skólasálfræðinga frá miðstöð til og frá skóla er mikill. Þetta fyrirkomulag er með öllu óskiljanlegt. Draga þarf rækilega úr leigubílakostnaði með því að breyta skipulagi og gera það skilvirkara. Hér er verið að sóa fjármagni borgarinnar sem betur væri komið í aðra hluti.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar sviðsstjóra við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um skráningu lögheimilis í íbúðum Félagsbústaða.
Fulltrúa Flokks fólksins finnst afar sérkennilegt að ekki sé hægt að eiga lögheimili í 13 íbúðum sem fólk fær til afnota og getur fengið opinberan húsnæðisstuðning. Engin ástæða er gefin upp, svo eðlilegt er að spyrja af hverju er þetta svona? Í svari kemur fram að fjórar íbúðir á Fiskislóð séu staðsettar á lóð sem ekki er ætluð til búsetu. Það vekur óneitanlega upp spurningar að Félagsbústaðir séu að leigja húsnæði sem ekki er ætlað til búsetu sem vekur upp spurningu hvort um sé að ræða iðnaðar- eða skrifstofuhúsnæði. Gott hefði verið að fá upplýsingar um eðli húsnæðisins og hvers vegna það er ekki ætlað til búsetu. Einnig er einkennilegt að ekki sé hægt að skrá lögheimili á gistiheimili tímabundið á grundvelli leigusamnings. Öllu fólki er afar brýnt að hafa skráð lögheimili.
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um hagi barna í Reykjavík.
Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftirfarandi upplýsinga um hagi barna. Hvað búa mörg börn í Reykjavík undir fátæktarmörkum þ.e. undir framfærsluviðmiði félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins? Í Reykjavík hefur stéttaskipting vaxið síðustu ár. Bilið milli ríkra og fátækra hefur aukist. Hópur þeirra sem skilgreindir eru undir fátæktarviðmiði félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins hefur stækkað og spyr fulltrúi Flokks fólksins um hversu mikið hann hefur stækkað.
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um Hjólhýsabyggð.
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hver sé rekstrarkostnaður borgarinnar vegna hjólhýsabyggðar? Hver var kostnaðurinn þegar byggðin var í Laugardal og hver er kostnaðurinn núna? Sá hópur sem býr í hjólhýsum t.d. sá sem hafði lengst af aðsetur í Laugardal er nú á hrakhólum eftir að hafa verið úthýst úr Laugardal. Sumt af því fólki sem býr í hjólhýsum býr í þeim af neyð, ekki af því það kjósi það heldur af því að það hefur ekkert annað þak yfir höfuðið. Fólkið er að reyna að bjarga sér ella væri það á götunni. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhuga á að vita hver sé kostnaður borgarinnar við þessa byggð.