Umhverfis- og skipulagsráð 22. febrúar 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Kynning á stöðu framkvæmda og skipulags Landspítalareits:

Hér er um risastórt verkefni að ræða og erfitt að sjá það allt í heild sinni. Allt er klárt fyrir borgarlínu en tafir á borgarlínu eru staðfestar og ófyrirséð hvenær sá veruleiki birtist okkur. Fulltrúi Flokks fólksins hefur því áhyggjur að aðgengi bæði til skemmri og lengri tíma. Starfsfólk, sjúklingar, aðstandendur og aðrir gestir þurfa að hafa gott aðgengi að svæðinu. Almenningssamgöngur hafa auk þess agnúa sem snýr að tíðni og leiðum. Eftir stendur einkabíllinn. Flokki fólksins er umhugað um þá sem eru ekki einungis með skilgreinda fötlun heldur þá sem eru með skerta hreyfifærni en eru ekki endilega á P merktum bílum. Þessi hópur getur ekki lagt bíl sínum lengst frá áfangastað. Stefna meirihlutans er að fækka bílum. Á svæðinu eru sögð verða 2.400 bílastæði og gera á bílakjallara fyrir aðstandendur og gesti. Ekki allir treysta sér ekki í bílakjallara, þeir eru bæði stórir og minna á völundarhús. Hanna þarf gott rötunarkerfi í slíkum kjallara og á svæðinu öllu. Búið er að hugsa neyðarstæði og er því fagnað. Góð hugmynd væri að hafa starfsmenn á svæðinu sem tæki við bíl viðkomandi ef fólk kemur í neyð, t.d. ef á það er kallað vegna skyndilegra alvarlegra veikinda innliggjandi aðstandanda.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga og greinargerð áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um bætt útsýni í Reykjavík fyrir borgarbúa, sbr. 33. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 14. desember 2023.

Tekið er undir þessa tillögu að útsýni er einn af þáttum sem skipta máli við byggðaskipulag og að mistök hafa verið gerð þegar ekki var hugað nægilega að þessum þætti. Vissulega er hér um einstaklingsbundna upplifun að ræða. Mjög mörgum finnst útsýni út á sjó mikilvægt og missi fólk það útsýni vegna skyggingar frá nýbyggingu sem það taldi að ekki myndu rísa eru það mikil vonbrigði og gengisfelling á eign þeirra. Útsýni til sólar er einnig mikilvægt flestum. Að sjá lengra en yfir í næsta hús er eitthvað sem flestum þykir dýrmætt. Það er þessi yfirsýn sem veitir fólki gjarnan tilfinningu um frelsi. Margir sem eru innikróaðir af byggingum upplifa innilokunarkennd og að þrengt sé of mikið að þeim. Að hafa vegg fyrir augum sínum í hvert sinn sem litið er út er skiljanlega lýjandi. Ekki allir eiga þess kost að skipta um íverustað til að fá betra útsýni.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um aukna tíðni Strætó, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráð, dags. 1. febrúar 2023.

Tillögunni er vísað til umsagnar strætó bs. USK23020017

Að auka tíðni ferða leysir ekki vandamál strætó eitt og sér. Strætókerfið er meingallað og þarf algera enduruppstokkun. Flokkur fólksins vill að horft sé til betri strætósamgangna og losa Strætó úr bs. kerfinu. Stokka þarf kerfið upp, leysa upp bs. kerfið og að meirihlutinn taki ábyrgð á borgarbúum þegar kemur að samgöngum. Önnur sveitarfélög verða að sjá um sig og vissulega má skoða samninga milli borgar við einstaka nágrannasveitarfélög. Almennt séð er Strætó ekki góður kostur þegar flytja á fólk á milli staða eins og staðan er í dag. Með ólíkindum er að ekki sé hægt að bæta úr því, þrátt fyrir að öll sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins leggi til þekkingu og upplýsingar en það er kannski það sem flækir málið. Strætó þyrfti að vera eingöngu rekinn af Reykjavík. Það gekk ágætlega áður en bs. fyrirkomulagið tók yfir. Hvernig væri að borgin sinnti íbúum sínum? Vandamál almenningssamgangna í Reykjavík er einsdæmi.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um hraðamerkingar á Laugarásvegi:

Hvenær verður bætt úr hraðamerkingum á Laugarásvegi? Hámarkshraði á Laugarásvegi var lækkaður í 30 km./klst. fyrir nokkru síðan. Það eru hins vegar engar merkingar um það, hvorki á skiltum né götu. Þrátt fyrir að hámarkshraði er merktur þar sem að 30 km svæði byrjar eða á mörkum þess, þá er algjörlega nauðsynlegt að hafa mjög sýnilegar aukamerkingar á Laugarásvegi. Það þyrftu því bæði að vera sérskilti og málað á götuna. Þetta er ein lengsta íbúðargata í hverfinu sem veldur því að bílar keyra iðulega mjög hratt og langt umfram hámarkshraða á götunni. Það eru hvorki skilti né merkingar á götunni. Óbreytt ástand er ekki ásættanlegt og tímaspursmál hvenær þarna verður alvarlegt slys. Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað bent á þetta enda berast ábendingar reglulega frá íbúum sem eru mjög áhyggjufullir. USK23020258

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um blómaker í borginni:

Óskað er eftir upplýsingum um hvert umfang blómakerja er í borginni, ca. fjöldi, kostnaði í kringum uppsetningu, umhirðu og öðru sem þeim tengjast. Einnig hvort slys hafi hlotist af þeim t.d. að fólk hafi dottið um þau eða hjólað á þau. Ef svo er, hafa þau ker verið fjarlægð? Óskað er eftir upplýsingum um hvenær farið var að setja blómaker í borgina í einhverjum mæli og hvernig þróun hefur verið síðustu 3 ár eða svo. Er þeim að fjölga? USK23020264