Umhverfis- og skipulagsráð 11. desember 2024

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram þróunaráætlun fyrir Háskóla Íslands – Samvinnuverkefni Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar um heildarsýn fyrir framtíð svæðis Háskóla Íslands, dags. 7. nóvember 2024:

Flokkur fólksins tekur undir það að margt á eftir verða til góðs, s.s. að aðgengi virkra ferðamáta (gangandi og hjólandi) verður betra. Það á hins vegar eftir að koma í ljós hvernig almenningssamgöngur muni virka. Flokkur fólksins er einnig mjög óviss um hvernig deilifararmátum á eftir að vegna í íslensku samfélagi. Fram kemur að núverandi fjöldi bílastæða sé í hámarki. Fulltrúa Flokks fólksins finnst að gengið hafi verið of harkalega á bílastæði á sama tíma og bílum fer fjölgandi. Skortur á bílastæðum er víða áþreifanlegur. Fram kemur að bílastæðahús verði byggð úr vistvænum efnum til að lágmarka kolefnisspor og með stöðluðum einingum sem geta þannig verið stækkuð eða minnkuð eftir því sem eftirspurn þróast. Sveigjanleiki eykur hagkvæmni og notagildi húsanna og lengir líftíma þeirra. Fulltrúa Flokks fólksins finnst jákvætt að heyra að slík bílastæðahús byggja á erlendri fyrirmynd og hafa reynst vel.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: 5. Lagðar fram fundargerðir Sorpu bs., dags. 30. september 2024, 2. október, 2024 og 18. október 2024:

Fundargerð Sorpu 30. sept. Liður 1. Stjórn felur framkvæmdastjóra, í samræmi við fjárhagsáætlun, að flytja rekstur gashreinsistöðvar SORPU yfir í einkahlutafélagið Metan ehf. sem er í 100% eigu SORPU bs. Fulltrúa Flokks fólksins finnst athyglisvert að það þyki sjálfsagt að SORPA flytji rekstur gashreinsistöðvar SORPU yfir í einkahlutafélagið Metan ehf., sem er þó í 100% eigu SORPU bs. Ekki er séð hvaða hagræðing hlýst af þessari aðgerð. Það mætti frekar álykta að þetta kalli á meiri yfirbyggingu. Liður 3: Ekki er annað að sjá en stefnt sé að hátækni sorpbrennslu á Helguvíkursvæðinu. Hvernig var þessi ákvörðun um staðsetningu tekin og var hún vel ígrunduð? Þar væru meiri möguleikar á að nýta varma og orku sem myndast í brennslunni ef brennslan væri nær höfuðborgarsvæðinu, t.d á Álfsnesi. Flokkur fólksins hefur áður bókað um þessi mál. Hátæknisorpbrennsla á Sjálandi í Danmörku er nálægt miðborg Kaupmannahafnar til að auðvelt sé að nýta afurðir sorpbrennslunnar. Þessi staðsetning sýnir að slík brennsla hefur lítil áhrif á nærumhverfið. Út að Helguvík er miklu lengra að aka með sorp frá Reykjavík en á Álfsnes. Það eykur kolefnissporið sem alltaf er verið að berjast gegn.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um bryggju yfir leirur, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 13. nóvember 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. nóvember 2024.

Óskað var upplýsinga um hvort ákveðið hafi verið að byggja bryggju yfir leirur og gera göngustíg út í sjó þar sem á að vera útsýnispallur í miðju leirunnar, í samræmi við tillögu FOJAB arkitekta. Hafa áhrif þessarar tillögu á náttúru og fuglalíf verið könnuð og ef svo er hver er niðurstaða þess? Í svari er sagt að ,,í tillögugerðinni verður lífríki Grafarvogs alltaf sett í forgrunn”. Hvað þýðir líklegt? Hvernig meta þeir lífríki í forgrunni og út frá hvaða forsendum? Hugmyndir um útsýnisbryggju yfir leirur Grafarvogsins eru fjarri því að tekið sé tillit til lífríkisins. Slíkum hugmyndum á að hafna strax. Þær eiga ekki að koma til álita. Aðilar eins og Náttúrufræðistofnun og Landvernd hafa lýst yfir áhyggjum sínum af þessari tillögu og m.a. sagt: „Sú aðalskipulagsbreyting sem liggur hér til umsagnar mun að óbreyttu ganga gegn verndargildi svæðisins.“. Er slíkt m.a. byggt á tillögu FOJAB arkitekta, líklega vegna þess stíls og arkitektúrs sem þar er sýndur. Í þeirri tillögu er verið að setja göngubrú út í leirurnar. Er það von Flokks fólksins að farið verði vel yfir athugasemdir Náttúrufræðistofnunar sem eru vel unnar og benda á hvað þetta er viðkvæmt svæði.

 

Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins, sbr. 25. lið fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 27. nóvember 2024.

Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds USK24110328