Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 120 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 3,45% í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 53 1, sem eru 215 m.kr. að markaðsvirði og samþykki tilboð að nafnvirði 200 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 8,85% í óverðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVKN 35 1, sem eru 101 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 3. apríl 2024.
Þetta er fjórða skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar á árinu 2024 samkvæmt útgáfuáætlun en athygli vekur hve lítil eftirspurn hefur verið eftir skuldabréfum borgarinnar. Markaðurinn ber lítið traust til stefnu meirihlutans í fjármálum borgarinnar. Lítil eftirspurn er eftir skuldabréfum borgarinnar og lýsir niðurstaðan trúleysi á áformum og fyrirætlunum núverandi meirihluta.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 2. apríl 2024, þar sem áfangaskýrsla Græna plansins fyrir júlí-desember 2023 er send borgarráði til kynningar:
Græna planið er hagfræðileg aðgerð og var flott útspil til að styrkja efnahagslífið á Íslandi. Vandinn er sá að það er svo ótal margt sem meirihlutinn er að gera í borginni sem styrkir ekki efnahagslífið á Íslandi og styður heldur ekki við Græna planið en nefna má t.d. kaup á 15.000 tölvum frá útlöndum. Íslenskt efnahagslíf græðir ekkert á að borgin eyði miljörðum í nýja tegund af Microsoft-leyfum. Það er heldur ekkert grænt við 400 milljóna gagnalandslag sem er gæluverkefni þjónustu- og nýsköpunarsviðs, hvað þá allt óskipulagið í kringum stafræn verkefni sviðsins sem ekki getur einu sinni mælt árangur af verkefnunum. Ef horft er til umhverfisins þá hefur þétting byggðar víða gengið of langt, myndast hafa dimm og drungaleg borgarhverfi. Gengið hefur verið á græn svæði og fágætar fjörur fylltar. Umferðarljósin í borginni eru ekki til að styðja við Græna planið. Enn hafa helstu umferðarhnútar ekki verið leystir. Það hlýst mengun af bílum sem eru óþarflega lengi í hægagangi. Auka á vistvænar samgöngur til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og jafnframt á að auka á hlutdeild innlendra endurnýjanlegra orkugjafa á kostnað jarðefnaeldsneytis. Auk þess þarf að bæta almenningssamgöngur verulega til að þær verði raunverulegur valkostur.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða umsögn Reykjavíkurborgar um tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu, dags. 2. apríl 2024.
Borgarstefna tengist sameiginlegri þróunaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurnes, Suðurland og Vesturland. Ekki er séð að fjallað sé neitt um sameiningu þeirra sveitarfélaga sem um ræðir. Sameining sveitarfélaga væri einfaldasta skrefið. Þarft væri að sameina byggðir á svæðinu frá Hvalfirði til Hellisheiðar og að sama skapi ætti að sameina byggðir við Eyjafjörð, byggðir við Skagafjörð og Húnaflóa, alla Vestfirði, Vestur-, Suður- og Austurland. Miða þarf við að atvinna sé sameiginleg og þá er hægt að mynda öfluga byggðakjarna sem geta verið eins sjálfstæðir og höfuðborgarsvæðið. Til að svæði geti verið öflugur byggðakjarni með sameiginlegri atvinnu þá þarf að efla almenningssamgöngur á milli svæða. Mælanleg markmið þarf og svo auðvitað að ákveða hvaða aðgerðir skuli fara í og hvernig skuli forgangsraða þeim. Þetta á eftir að skoða betur að mati fulltrúa Flokks fólksins.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 2. apríl 2024, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um framtíð Kolaportsins, sbr. 26. lið fundargerðar borgarráðs frá 14. mars 2024. MSS24030078
Fulltrúi Flokks fólksins óskaði upplýsinga um hver væri framtíð Kolaportsins næstu vikur og mánuði. Fyrirspurninni er ekki svarað eða öllu heldur er svarið eiginlega hreinn útúrsnúningur. Komið hefur fram í nýlegu viðtali við borgarstjóra að Kolaportið þurfi að víkja fyrir Listaháskólanum, en enginn veit hvenær það mun gerast. Einnig er mikilvægt að vita hvort núverandi rekstri verði lokið þegar núverandi leigusamningi lýkur. Þetta þarf að vera skýrt og mun fulltrúi Flokks fólksins ítreka fyrirspurnina og óska eftir svari við þessum atriðum. Um þetta ríkir algjör óvissa sem ekki er boðleg.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs., dags. 18. mars 2024, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um úttekt innri endurskoðunar á brunavarnaáætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, sbr. 55. lið fundargerðar borgarráðs frá 25. janúar 2024. MSS23010015
Fulltrúi Flokks fólksins óskaði upplýsinga um af hverju úttekt á brunavarnaáætlun er frestað. Í svari kemur fram að athugasemdir varðandi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sneru aðallega að aðstöðu og búnaði á Kjalarnesi og frestun framkvæmda við endurnýjun tækja og húsnæðis samkvæmt áætlun. Forvitnilegt væri að sjá þessar athugasemdir. Fram kemur að úttekt af hálfu innri endurskoðunar á brunavarnaáætlun til viðbótar við vinnu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar myndi ekki vera virðisaukandi fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Fulltrúi Flokks fólksins hefur af því spurnir að úrbætur séu hafnar á Kjalarnesi m.a. að framkvæmdir vegna húsnæðis séu komnar af stað. Þessu ber að fagna.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 20. mars 2024. MSS24010011
Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir lið 1 í fundargerðinni þar sem íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals bókar um ófremdarástand vegna mönnunarvanda í frístundaheimilum hverfisins sem birtist í því að nemendur í 3. og 4. bekk fá vistun seint og illa eða alls ekki. Þetta ástand er ekki aðeins á leikskólum borgarinnar heldur einnig á frístundaheimilum og er mismikið eftir hverfum. Áhrif þessa vanda eru afar neikvæð fyrir börnin og ekki síður fyrir foreldra sem haldið er í óvissu svo mánuðum skiptir. Tekið er undir að mikilvægt er að ráðist verði í stórátak í mönnunarmálum frístundaheimilanna sem og að bæta upplýsingagjöf til foreldra um stöðu og framvindu mála.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Vesturbæjar frá 18. mars 2024. MSS24010017
Fulltrúi Flokks fólksins tekur að mörgu leyti undir bókun íbúaráðsins varðandi áætlanir bandaríska sendiráðsins á Sólvallagötu 14 vegna stífari öryggiskrafna en gengur og gerist hér á landi í kringum sendiherrabústaði. Almenn öryggisgæsla er mun sýnilegri en það sem tíðkast hérlendis. Flokkur fólksins telur að sendiráð verði að aðlaga sig að reglum/venjum í þeim löndum sem þau eru staðsett í. Sólvallagata 14 er í einu elsta hverfi Reykjavíkur og við götu sem býr að mjög einkennandi og heildstæðri götumynd. Áætlaðar eru verulegar breytingar á sögulegu húsi og lóðinni sjálfri sem samræmast illa rólegu fjölskylduhverfi og stinga í stúf við götumyndina. Ef starfsemi er þessleg að hún kalli á sérstaklega miklar öryggisvarnir vegna þess að hún geti ógnað nærstöddum á hún ekki heima inn í miðju íbúðahverfi.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 3. apríl 2024. MSS24010031. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 11. lið fundargerðarinnar:
Nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar nr. 10 og 12 við Holtsgötu og 16 við Brekkustíg. Tugir athugasemda hafa borist og fjölmargar háalvarlegar. Hér er greinilega um afar erfitt mál að ræða og tilfinningalegt fyrir marga sem ekki skal gera lítið úr. Skoða á allar athugasemdir hvort sem þær teljast efnislegar eða ekki. Athugasemdir eru samhljóða og ganga m.a. út á að deiliskipulagstillagan sé ekki í samræmi við þá byggð sem fyrir er. Í athugasemdum er minnst á mikilvægi þess að haldið verði í sögulegt samhengi byggðar. Þétting og skuggavarp er sem áður litið alvarlegum augum. Í athugasemdum er gagnrýni á byggingarmagn í deiliskipulagstillögu. Gamli Vesturbærinn er hvað þéttbýlastur af hverfum Reykjavíkur. Íbúar lýsa jafnframt yfir áhyggjum af því að hæð byggingar á horni reitsins auki umferðarhættu og að fjöldi bílastæða á borgarlandi sé ekki nægur til að anna svo miklum fjölda íbúða til viðbótar við þær sem fyrir eru eins og fram kemur í samantekt. Athugasemdir ná yfir mörg önnur atriði. Mæta á hluta athugasemdanna sem virðist ekki leysa aðalvandamálin. Flokki fólksins finnst að það þurfi að endurskoða framkvæmdaáætlanir í ljósi athugasemda. Hér þarf að staldra við og hlusta á borgarbúa, virða skoðanir þeirra og hafa alvöru samráð.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um þjóðhagslegt tjón vegna samkeppnisbrota Samskipa og Eimskipa.
Ljóst er að tjón samfélagsins af samkeppnisbrotum er í slíkum tölum að mikilvægt er að bregðast við. Reykjavíkurborg með aðkomu að stjórn Faxaflóahafna á verkfæri í kistu sinni til að bregðast við og gera breytingar til batnaðar. Mikilvægt er að hraða breytingum á skipulagi Sundahafnar í þá átt að breyta henni í „fjölnotendahöfn“ til að auka möguleika fyrir önnur skipafélög en þau sem þar eru starfandi í dag að koma fyrir starfsemi þar og stuðla þannig að aukinni samkeppni til hagsbóta fyrir neytendur.