Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram erindi varaborgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands varðandi fund umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. ágúst 2024.
Flokkur fólksins fékk óvæntan stuðning frá Sósíalistum á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 21. ágúst síðastliðinn. Fulltrúa Sósíalista ofbauð framkoma fulltrúa Samfylkingarinnar í garð varafulltrúa Flokks fólksins á fundinum og sendi inn formlega kvörtun til forsætisnefndar. Í erindinu er því lýst hvernig fulltrúi Samfylkingarinnar hæðist að Flokki fólksins, m.a. vegna fjölda framlagðra mála flokksins, svo og oddvita flokksins sem var fjarstaddur. Um er að ræða ítrekuð tilvik af þessu tagi. Varaborgarfulltrúi hafði samband við oddvita eftir fundinn og sagðist buguð eftir skítkast frá fulltrúa Samfylkingarinnar. Á sex ára tímabili í borgarstjórn hafa nokkrum sinnum komið upp sambærileg mál og sum ratað í forsætisnefnd. Það er reynsla oddvita Flokks fólksins að mál þar sem minnihlutafulltrúi á undir högg að sækja gagnvart meirihlutafulltrúa hafi ekki verið leyst í forsætisnefnd. Oddviti Flokks fólksins tók því til þess ráðs að birta erindið á Facebook síðu Flokks fólksins. Við þeirri framkvæmd lá ekki fyrir blátt bann frá fulltrúa Sósíalista. Oddvita Flokks fólksins var þó kunnugt um að fulltrúinn vildi frekar að málið væri fyrst tekið fyrir í forsætisnefnd. Með því að gera þetta vonaði oddviti Flokks fólksins að framkoma af þessu tagi yrði ekki endurtekin og ekki væri þá heldur hægt að þagga málið eða stimpla það sem trúnaðarmál.