Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð íbúaráðs Miðborgar og Hlíða frá 16. september 2024:. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 8. og 10. lið fundargerðarinnar:
Fulltrúi Flokks fólksins vill byrja á því að hrósa íbúaráðinu fyrir metnaðarfullan íbúaráðsfund og fundargerð sem gefur þeim sem vilja fylgjast með tækifæri til að vita hvað fram fer í ráðinu. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir bókun fulltrúa íbúasamtaka þriðja hverfis um flugeldasýningar Vals. Fram kemur í bókuninni að það komi á óvart að íþróttafélagið fagni árangri sínum með flugeldum í hvert sinn sem bikar er í húsi. Minnt er á að um meðferð skotelda gilda lög og reglur. Fulltrúi Flokks fólksins veit til þess að fyrirvaralaus flugeldasýning veldur mörgum fjölskyldum og ekki síst dýraeigendum miklum ama. Það er sannarlega nokkur tvískinnungur í því að vilja eiga í góðu samstarfi við íbúa hverfisins á sama tíma og þeir eru vaktir upp nokkrum sinnum á ári við flugeldasýningar með engum fyrirvara eða kynningu, íbúum, börnum og gæludýrum til ama eins og segir orðrétt í bókun fulltrúans. Undir lið átta er umræða um skort á almenningsklósettum í Miðborg. Nauðsynlegt er að fjölga almenningsklósettum í borginni. Þessi umræða er að koma upp aftur og aftur þar sem þörf á fjölgun klósetta er ítrekað en fyrir daufum eyrum að því er virðist.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. september 2024. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 15. lið fundargerðarinnar:
Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að skipulagsyfirvöld settu upp snjallljós við þau gatnamót sem mest á mæðir í Reykjavíkurborg í stað fjögurra stillinga klukkuprógramms sem ekki telst til snjalltækja. Tillögunni var vísað frá í umhverfis- og skipulagsráði. Í umsögn skipulagsyfirvalda er fullyrt að niðurstaðna könnunar Sweco 2020 sé að vírseglar sem talningarskynjarar samræmist nútímalegum viðmiðum. En Sweco kom aldrei til landsins til að skoða kerfið heldur voru aðeins haldnir örfáir fjarfundir og þá aðeins rætt við þá starfsmenn Reykjavíkurborgar sem sjá um og verja núverandi kerfi. Sweco fékk þar af leiðandi einhliða útgáfu og fengu ekki að ræða við aðra þrátt fyrir óskir um það. Útilokað er að gera raunhæfa úttekt með slíkum takmörkunum. Vírseglar eru eina tegundin sem hér hefur verið notuð frá a.m.k. 2005 þegar síðasta útboð var gert á ljósastýringum. Það eru heldur ekki allstaðar tveir vírseglar á gatnamótum og oftar en ekki bara á annarri götunni á staðnum. Öll nútíma tækni sem er notuð í dag, eins og myndavélar, radar, innrautt og annar fullnægjandi greiningarhugbúnaður hefur aldrei verið prófaður í Reykjavík. Allar tillögur um slíkt hafa verið felldar af meirihlutanum. í svari er ekki minnst á snjallljós, þótt spurt hafi verið um þau sérstaklega.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 14. ágúst 2024. MSS24010027. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. og 4. lið fundargerðarinnar:
Ekki er nýtt að hagnaður SORPU sé undir áætlun en hagnaður fyrri hluta árs er 22% undir áætlun. Framkvæmdastjóri gerir grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á skipulagi SORPU. Með breytingunum er stefnt að því að bæta og samþætta þjónustu SORPU við almenning og stuðla að samræmi í þjónustuveitingu. Markmið með breytingunum er auk þess að valdefla starfsfólk og auka öryggi og vellíðan í starfi. Fulltrúi Flokks fólksins hefði viljað vita nánar hvers lags skipulagsbreytingar þetta eru. 4. liður, áformað er að fara með fríðu föruneyti til að skoða hátæknisorpbrennslur í ferð til Finnlands. Áhugi er á að stjórn SORPU og framkvæmdastjórar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu taki þátt í ferðinni. Flokkur fólksins fagnar hverju skrefi sem tekið er til að nýta þá orku og hráefni sem eru í sorpinu. Á því sviði eru nágrannar okkar langt á undan okkur og flytja þarf þekkingu þeirra hingað inn. Hins vegar er það spurning hvort allir í stjórn SORPU þurfi að fara í ferð af þessu tagi. Hér er vel í lagt. Þekkingu er einnig hægt að miðla milli manna innanlands.
Ný mál
Borgarráð 26. september 2024: Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um stafræna
umbreytingu vegna skráningar í leikskóla MSS24090144
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um stöðu stafrænnar umbreytingar hjá þjónustu og
nýsköpunarsviði vegna utanumhalds um skráningar í leikskólum borgarinnar í ljósi alls þess
fjármagns sem veitt hefur verið til sviðsins. Einnig vill fulltrúinn fá að vita hvort foreldrar þurfi
enn að fylla út fjögur handskrifuð blöð og skila til leikskóla þegar barn er að flytja á milli
leikskóla eða þegar aðrar breytingar á högum barna þurfa að eiga sér stað?
Greinargerð
Líkt og flestir foreldrar leikskólabarna í Reykjavík furðar fulltrúi Flokks fólksins sig á því hversu
illa gengur að framkvæma stafræna umbreytingu á mörgum sviðum í borgarkerfinu og ekki
hvað síst skráningu barna í leikskólum. Gefið er lítið fyrir þær skýringar sem birst hafa í
fjölmiðlum þess efnis að ábyrgðin á þessum seinagangi liggi fyrst og fremst hjá eiganda Völu
kerfisins. Fyrir utan þá handavinnu og keyrslur sem foreldrar þurfa að sinna við skráningar á
handskrifuðum blöðum, hafa foreldrar í núna í mörg ár þurft að fylla út handvirkt 4ra síðna
umsókn þegar barn er að skipta um leikskóla. Hvort um sé að ræða fleiri atriði varðandi
leikskólaskráningar sem fylla þarf út handvirkt á pappír og aka með milli staða hefur fulltrúi
Flokks fólksins ekki vitneskju um. Í öllum helstu sveitarfélögum í landinu eru allt þetta orðið
rafrænt. Það hlýtur að vera ljóst að stafrænt ráð þarf að fara gaumgæfilega ofan í saumana á
verkefnastjórn sviðsins sem oft virðist vera ansi handahófskennd hvað varðar flokkun verkefna
eftir mikilvægi. Eftir alla þá fjármuni, 20 milljarða plús sem farið hefur í stafræna umbreytingu
frá 2019 er Reykjavík eins og aftur úr fornöld í einföldustu stafrænum ferlum sem smæstu
sveitarfélög eru komin með í fulla virkni og það fyrir löngu
Borgarráð 26. september 2024: Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um
íslenskuver Reykjavíkurborgar MSS24090143
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hver staðan sé í Íslenskuverum
Reykjavíkurborgar? Eru þau öll full og ef biðlisti, hvað eru mörg börn sem bíða eftir plássi nú á
haustönn?
Greinargerð
Þær upplýsingar bárust á síðasta vetri að öll Íslenskuverin sem eru fjögur væru
yfirfull. Íslenskuverin eru fyrsta stig íslenskukennslunnar og eru þau fyrir börn í 5.-10. bekk.
Elstu nemendurnir ganga fyrir. Í gegnum tíðina hafa allt of mörg börn beðið eftir að komast í
þetta fyrsta úrræði. Ástæðan hefur verið sögð sú að það vanti fleiri stöðugildi. Fjármagni sem
varið er í þau stöðugildi er vel varið.