Fundur Velferðarnefndar með fulltrúum Krabbameinsfélagsins – Störf þingsins

Fundur Velferðarnefndar hjá Krabbameinsfélaginu, 17. september 2025

Velferðarnefnd átti fund með fulltrúum Krabbameinsfélagsins í morgun.

Spá um fjölda krabbameinstilvika og fjölgun lifenda liggur fyrir, til ársins 2045.

Spáð er gríðarlega miklum vexti, 63% fjölgun tilvika og 96% fjölgun lifenda, sem er mun meiri aukning en í nágrannalöndunum. Byrði af völdum krabbameina mun aukast verulega á næstu árum þó vöxturinn hafi verið hraður hingað til.

Spáin segir hvað bíður okkar og gerir mögulegt að bregðast við með skýrum áætlunum.

Gera þarf áætlun um uppbyggingu innviða í heilbrigðiskerfinu, og um forvarnir, til að vinna gegn því að spáin rætist.

Samþykkt þingsins á aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum til ársins 2029 var mjög stórt skref. Hún mun skipta máli til að viðhalda og bæta þann góða árangur sem er hér á landi. Eftir bíður að gera áætlun um grunnstoðir krabbameinsþjónustu, mönnun, tækjabúnað, krabbameinsmeðferðir og húsnæði.

Við teljum sjálfsagt að hér á landi bjóðist fólki besta meðferð við krabbameinum. Hins vegar er auðvitað best ef hægt er að koma í veg fyrir krabbamein.

Mörg krabbamein eru lífsstílstengd. Stjórnvöld geta með ákvörðunum sínum hjálpað fólki á öllum aldri til að taka ákvarðanir sem bæta heilsu og sem skila sér til baka með lægri útgjöldum til heilbrigðismála. Dæmi um jákvæða áhrifaþætti eru skipulögð hreyfing en neikvæðir áhrifaþættir hins vegar aðgengi að tóbaki og áfengi, ljósabekkjum og óhollu mataræði. Boð og bönn eru þó endilega ekki eina leiðin, heldur skipta efnahagslegir hvatar ekki síður máli.

Lífsstílstengdar krabbameinsforvarnir eru ekki einvörðungu heilbrigðismál heldur varða mörg ráðuneyti og stofnanir. Íslendingar geta tekið afgerandi skref til að bæta lýðheilsu þjóðarinnar og draga úr krabbameinstilvikum. Til þess þarf breiða sýn, kjark og langtímahugsun.