Virðulegi forseti.
Hestafræðideild Háskólans á Hólum hefur í bígerð að stofna námslínu á háskólastigi í dýrastuddri nálgun, með sérstakri áherslu á samveru með hrossum. Deildin er í einstakri stöðu til að leiða slíkt verkefni þar sem til staðar eru sérfræðingar í hegðun og velferð dýra, sérþjálfaðir hestar ásamt aðstöðu til kennslu- og rannsóknastarfs. Þá býr Háskólinn á Hólum að sterkum tengslum við fræðigreinar á borð við sálfræði, sérkennslufræði og þroskaþjálfun í samstarfi við háskólasamstæðu Háskóla Íslands.
Rannsóknir sýna skýrar vísbendingar um að samvera fólks með dýrum dragi úr streitu, lækki kortisól og auki hormón sem stuðla að ró og vellíðan. Þetta eru lífeðlisfræðileg tengsl sem geta haft bein áhrif á námsgetu, sjálfsmynd og félagslega virkni.
Virðulegi forseti.
Við stöndum frammi fyrir því mikilvæga viðfangsefni að styðja börn og ungmenni til betri líðanar, virkara náms og aukinnar þátttöku í samfélaginu. Í þeirri viðleitni hafa og geta samvistir við dýr haft jákvæð áhrif á meðferðarferli barna og ungmenna, nám og þjálfun.
Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að samvera og samneyti við dýr dregur úr kvíða barna og félagsfælni. Dýrin geta virkað róandi en jafnframt hvetjandi á börn sem til dæmis glíma við ADHD einkenni og börn með lestrar- og tjáningarerfiðleika.
Sem dæmi liggja nú fyrir upplýsingar úr rannsóknum sem sýna að samvera með hrossum getur dregið úr því að börn forðist að mæta í skóla og dregið úr brottfalli. Það hefur bæði félagslegan og fjárhagslegan ávinning fyrir sveitarfélög, ríki og samfélagið allt.
Sú námslína sem hér um ræðir er ákveðin fjárfesting til framtíðar. Fjárfesting sem skilar sér í bættri velferð og minni kostnaði fyrir samfélagið. Þessi námslína gæti skilað góðri menntun fyrir þá sem vinna með dýrastudda íhlutun í starfi með börnum og ungmennum. Jafnframt mun hún geta skilað úrræðum sem bæta líðan barna og ungmenna.