Störf þingsins
Virðulegur forseti
Síðustu atburðir á Gaza og í Ísrael hafa vakið vonir um að nú sjái loks fyrir endann á hörmungunum á Gasa. Fréttir herma að neyðarsöfnun fyrir íbúa á Gasa er farin af stað en gengur of hægt. Alþjóðaráð Rauða krossins hefur nú tekið á móti látnum og lifandi gíslum sem voru í haldi Hamas og Palestínumönnum sem voru í haldi Ísraela.
Hér er um risastór verkefni að ræða við að koma hjálpargögnum og vinnuvélum inn á svæðið og hefja þar uppbyggingu innviða á ný. Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn ásamt fleiri hjálparsamtökum taka þátt í aðgerðum á svæðinu. Starfsmenn þeirra vinna ómetanlegt starf við erfiðar aðstæður sem þarfnast mikil skipulags.
Þeir sem lifað hafa af þessar hörmungar skortir allt, lyf, matvæli, vatn og húsaskjól auk annarra nauðsynja. Ekki þarf að velkjast í vafa um hvernig andlegt ástand þessara saklausu borgarar er svo ekki sé minnst á börnin. Fjöldinn allur er særður, ekki aðeins á líkama heldur einnig á sál og enn eiga einhverjir eftir að deyja af sárum sínum og van næringu. Mínútur geta skilið á milli lífs og dauða hjá þeim verst settu.
Þetta eru fordæmalausar, hörmulegar aðstæður, þar sem um tvær milljónir manna bíða neyðaraðstoðar eftir tveggja ára vopnuð átök og hungursneyð.
Fátt má fara úrskeiðis ef allt á ekki að fara í sama horf. Nú er biðja og vona að allt gangi eftir sem vænst er og ekki komi bakslag í þessa mjög svo viðkvæmu stöðu. Friðarviðræður og áætlanir varðandi Gasaströndina eru allar eftir og það á eftir að koma í ljós hvort umsamið vopnahlé haldi til ekki aðeins skemmri tíma heldur einnig lengri tíma. Tilhugsun um annað er okkur flestum óbærileg. Við Íslendingar getum lagt okkar að mörkum t.d. með stuðningi við Rauða Krossinn.