Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram að nýju bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 9. júlí 2024. þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki breytingar á samþykkt öldungaráðs:
Fyrir liggur umsögn borgarlögmanns. Í raun má segja að óþarfi hafi verið að biðja um þessa umsögn sem hefur haft þær einu afleiðingar að málið hefur tafist. Niðurstaða borgarlögmanns er sú sama og var í svari ráðuneytisins um málið sem er að að lögin skilgreina ekki hvaða fulltrúar skuli eiga sæti í ráðinu, einungis að það skuli vera að lágmarki þrír fulltrúar félaga sem gæta hagsmuna eldra fólks í sveitarfélaginu. Sjálfsagt er að tryggja aðkomu fleiri félagasamtaka sem annast hagsmunagæslu fyrir eldra fólk við borð öldungaráðs. Fulltrúi Flokks fólksins vill að sætum fulltrúa verði fjölgað í takt við vaxandi hlutfall eldra fólks í sveitarfélaginu og að áfram sitji þrír fulltrúar frá Félagi eldri borgara í ráðinu. Félag eldri borgara hefur verið ótvíræður talsmaður eldri borgara í Reykjavík ekki síst vegna stærðar félagsins. Hægt er eins og að ofan greinir að leysa málið með því að fjölga fulltrúum í ráðinu í stað þess að fækka fulltrúum Félags eldri borgara. Minnsta mál væri einfaldlega að halda þremur fulltrúum frá Félagi eldri borgara en bæta við öðrum enda fer þessi hópur stækkandi.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 12. ágúst 2024, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki endurnýjun á samkomulagi um ofbeldislausa og örugga skemmtistaði til tveggja ára:
Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessu samkomulagi og sérstaklega áherslunni á góða lýsingu, t.d. fyrir utan salerni séu þau stödd á afskekktum svæðum, s.s. í kjöllurum. Rými sem eru ætluð gestum, nema salernin sjálf, þurfa að vera útbúin öryggismyndavélum. Einnig að merkingar séu til staðar sem sýna að staðurinn sé vaktaður með öryggismyndavél, myndavélarnar vakti vinnusvæði dyravarða í og við inngang skemmtistaða. Fulltrúa Flokks fólksins er einnig umhugað um að öll ákvæði sem lúta að vernd ungmenna séu virt í hvívetna eins og að ungmennum yngri en 18 ára er óheimil dvöl á skemmtistað eftir kl. 22:00 og að farið sé að lögum sbr. að ungmennum yngri en 20 ára verði ekki veitt áfengi inni á skemmtistað og síðast en ekki síst að reykingabann sé virt.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um málefni Hjólabúa.
Málið er til umræðu í borgarráði að beiðni Flokks fólksins í kjölfar erindis hjólhýsabúa sem staðsettir eru nánast á sorphaug við Sævarhöfða. Finna þarf hópnum varanlega staðsetningu. Viðhorf borgarstjóra mun skipta sköpum í þessu máli en hann hefur lýst sig andsnúinn íbúaformi af þessu tagi og við það virðist sitja. Flokkur fólksins hefur lagt fram tillögu um að ákveðin svæði í þessu sambandi verði skoðuð. Lagt er til að svæði meðfram Hamrahverfinu að norðanverðu, fyrir vestan gamla Gufunesbæinn, verði skoðað og einnig svæði í Gufunesi verði skoðað. Þar er auðvelt að koma upp aðstöðu fyrir hjólhýsabúa. Þetta svæði hefur ekki verið deiliskipulagt en þarna er engu að síður kúluhús og skemmtigarður. Þarna er bæði rafmagn og vatn. Lagt er til að þrjú svæði verði skoðuð við Rauðavatn: Rauðavatn neðan við Hádegismóa, norðan megin við Rauðavatn. Rauðavatnssvæði, fyrir ofan veg, þar er rjóður sem nær langleiðina upp að golfvelli, og Rauðavatnssvæði austan við Rauðavatn, Almannadalur. Þarna er rafmagn og göngustígur, þyrfti að búa til lítinn veg. Þarna er stutt í þjónustu. Einnig mætti skoða rjóður innan við Veituhúsið uppi á Hólmsheiði, fyrir sunnan þjóðveg 1 við Rauðhóla.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um óháða úttekt á þjónustu strætó, sbr. 48. lið fundargerðar borgarráðs frá 11. júlí 2024.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Tillaga Flokks fólksins um óháða úttekt á þjónustu Strætó bs. hefur verið felld í borgarráði. Það er miður því vandi Strætó bs. er umtalsverður og sífellt eru að koma fram í dagsljósið mál, kvartanir sem ekki virðist vera tekið á hjá Strætó. Strætó hefur þjónustustefnu en samt virðist skorta verulega upp á þjónustulund, jákvætt viðmót og sveigjanleika í garð notenda Strætó bs. Mikilvægt er að skoða einnig stjórnendur og hæfni þeirra til stjórnunar fyrirtækisins. Þegar vandi sem þessi er rótgróinn hlýtur að þurfa að skoða stjórnun fyrirtækisins. Sumar kvartanir sem borist hafa og fréttir hafa fjallað um eru alvarlegar. Nýlegt dæmi er að 10 ára stúlku var vísað úr strætisvagni á miðri leið að því er virðist að tilefnislausu. Þjónustustefnan virðist vera einungis orð á blaði. Markmið þjónustustefnunnar er m.a. að skapa traust notenda, sýna áreiðanleika og ábyrgð í verki og sýna viðskiptavinum jákvætt viðmót og kurteisa framkomu sem og að vera vingjarnleg og hjálpfús gagnvart öllum viðskiptavinum. Þarna er pottur brotinn. Það er þess vegna mikilvægt að óháður utanaðkomandi aðili, aðili ótengdur Reykjavíkurborg, verði fenginn til að rannsaka hvað veldur því að Strætó bs. gengur svo illa að fylgja þjónustustefnunni sem raun ber vitni.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. ágúst 2024. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 41. og 44. lið fundargerðarinnar:
Fulltrúi Flokks fólksins lagði til á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. ágúst sl. að skipulagsyfirvöld settu upp snjallljós við þau gatnamót sem mest á mæðir í Reykjavíkurborg í stað fjögurra stillinga klukkuprógramms sem ekki telst til snjalltækja. Sá vírsegull sem nú er við gatnamót mælir hvorki hraða né umferðarflæði. Vírsegullinn gerir ekki greinarmun á bíl, strætó eða hjóli og getur því ekki talist til snjallljósakerfis. Ástandið á gatnamótum víða í Reykjavík er bagalegt. Umferðarteppur myndast vegna tafa sem er vegna úreltrar ljósastýringar. Miklubraut og Kringlumýrarbraut eru þær götur sem eru með mesta umferðarflæði í Reykjavík. Snjallljósastýringarkerfi sem les umferðina og bregst við samkvæmt aðstæðum má finna í öllum borgum í Evrópu. Með snjallljósstýrikerfi er umferðarflæði meira og eyðsla, mengun og skemmdir á malbiki minni. Ef tafir eru miklar eru bílar sífellt að hægja á sér, nema staðar og taka af stað með tilheyrandi mengun. Það klukkuprógramm sem er við lýði með fjórum stillingum er ekki snjallkerfi. Tafir eru miklar og afkastageta á umferðargötum borgarinnar er í mesta lagi 50%. Ef snjallljósastýringar væru við lýði myndu ljósin nema þörfina og flæði umferðar yrði í samræmi við umferðarþunga og aðstæður.
Ný mál
Fyrirspurn Flokks fólksins um starfsmannamál hjá Strætó
Óskað er upplýsinga um yfirmannastöður hjá Strætó bs aðalskrifstofu
Hversu margir yfirmenn, deildarstjórar og aðrir starfsmenn eru á aðalskrifstofunni og hvert er hlutverk þeirra og hver er ábyrgð þeirra?
Hverjir eru titlar yfirmanna?
Hver eru laun þeirra og hvernig hefur launaþróun verið sl. 3 ár?
Hafa allar stöður verið auglýstar?
Hefur verið skoðað hvort hægt sé að fækka stöðugildum á aðalskrifstofu og sameina verkefni?
Tillaga Flokks fólksins að skilgreint verði hlutfall íbúða sem selja skuli til þeirra sem eru fyrstu kaupendur.
Með því að skilgreina hlutfall íbúða sem selja skuli til fyrstu kaupenda væri vakin athygli á mikilvægi þess að fólk og þá einkum ungt barnafólk hafi tækifæri til þess að eignast eigið þak yfir höfuðið. Samningsmarkmið þessi kæmu til viðbótar þeim sem fyrir eru en samið hefur verið um að ákveðið hlutfall íbúða fari til ákveðinna hópa. Í nýjum byggingarreitum er oft samið um kauprétt Félagsbústaða á 5% íbúða og að 20% íbúða verði skilgreindar sem leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða hf., búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða. Þessi tillaga að skilgreint verði hlutfall íbúða sem selja skuli til þeirra sem eru að kaupa í fyrsta sinn hefur ekki verið lögð fram áður
Greinargerð.
Ungt fólk, barnafólk og almenningur ræður sífellt verr við að eignast þak yfir höfuðið. Vitað er að það er hagkvæmara að kaupa húsnæði og búa í því en að leigja. Miðað við það efnahagsástand sem verið hefur á Íslandi síðustu tuttugu ár er þetta jafnframt eina leiðin fyrir almenning til að eignast fjármuni sem hægt er að nýta á efri árum þegar dregur úr atvinnuþátttöku og tekjum en 70% eigin fjár fólks sem er 65 ára og eldra er bundið í fasteignum. Þessi tillaga snýr að ráðstöfun íbúða sem á að fara að byggja. Vandinn er vissulega sá að þær eru of fáar. Á höfuðborgarsvæðinu er verið að byggja um 1600 íbúðir á ári en þörfin kallar á allt að 5000 íbúðir. Samhliða þessari tillögu er þess vænst að spítt verði rækilega í lófana og byggt að minnsta kosti þrisvar sinnum meira en nú er gert. Ef ekki mun vandinn, skorturinn aukast, fasteignaverð hækka sem þrýstir upp verðbólgu með þeim afleiðingum að aðeins þeir sem eiga næga fjármuni fyrir eru í aðstöðu til að kaupa húsnæði en ekki allur almenningur sem getur aðeins treyst á launatekjur og sparnað. Það blasir við að brjóta þarf nýtt land undir byggð til viðbótar því að þétta byggð í Grafarvogi og Úlfarsárdal þar sem nægt borgarland er til að byggja fjölbreytt húsnæði.
Það gengur heldur ekki að mati Flokks fólksins að mismuna minnihlutahópum. Styðja þarf við bakið á heimilislausum, eldra fólki og námsmönnum þegar kemur að húsnæðismálum. Það gengur ekki að bera fyrir sig kostnaði við að útvega hjólhýsum lóð. Félagslegt húsnæði er ekki kostnaðarminna fyrir borgina en lóð undir hjólhýsabyggð þar sem íbúar borga mánaðarlegt gjald fyrir þjónustu.
Flokkur fólksins vill benda á þessa grein sem lýsir stöðu húsnæðismála mjög vel.
https://www.visir.is/g/20242597088d?fbclid=IwY2xjawEltNVleHRuA2FlbQIxMQABHcGBL3FT2MjOrHNBsLuu1qK3QUbyCfp5xaNJ3qdKsp2lK4gOGJdlRSCldjg
Tillaga að bjóða út sorhirðu í einstaka póstnúmeri í tilraunaskyni
Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort það sé einhver sérstök ástæða hjá meirihlutanum fyrir því að ekki megi kanna hvort að hægt sé að lækka sorphirðukostnað með því að bjóða sorphirðu út? Flokkur fólksins hefur lagt til að leitað verði eftir því að ná fram sparnaði í sorphirðu með útboði til að byrja með í nokkrum póstnúmerum í Reykjavík. Kópavogur fór nýlega í útboð á sorphirðu og náði að lækka áætlaðan sorphirðu kostnað íbúa Kópavogs um 500 milljónir.
Greinargerð
Miðað við stærð sveitarfélaga þá gæti slíkur sparnaður numið um 2.000 milljónum (2 milljörðum) fyrir Reykvíkinga. Flest sveitarfélög önnur en Reykjavík bjóða út sorphirðu og er ekki að sjá annað en að slíkt hafi reynst vel. Gera þyrfti hagkvæmnisúttekt á þjónustu við djúpgáma með þeim tækjum og tólum sem til þess þarf en SORPA hyggst sjálf þjónusta djúpgáma. Löngu er tímabært að í þessu stóra verkefni verði hugað að kostnaði. Það er skylda sveitarfélags að fara vel með fjármagn, útsvar borgarbúa, og finna ávallt hagkvæmustu leiðirnar. Ekki hefur verið kannað hvort hagkvæmara sé að bjóða út einstök verk eða verkefni eins og flest önnur sveitarfélög hafa gert. Miðað við fjölda íbúa, þá eru þeir 4 sinnum fleiri í Reykjavík en Kópavogi. Reykjavík getur mögulega sparað íbúum þess allt að 2.000 milljónir á ári með því að bjóða út sorphirðu. Hvers vegna ætti ekki að skoða þetta? https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/07/05/kubbur_tekur_vid_sorphirdu_i_kopavogi/
Fyrirspurn um hvernig umsækjendur eru valdir í Slökkviliðið með tilliti til andlegra styrkleika
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvernig umsækjendur í Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins eru metnir með tilliti til andlegra styrkleika í ljósi þess að starf slökkviliðs fólks er eitt álagsmesta starf sem hægt er að hugsa sér. Fulltrúi flokks fólksins hefur áhuga á að fá upplýsingar um hvaða ferli og prófanir eru notuð til að finna út hverjir passa í starfið?
Ganga umsækjendur í gegnum ítarlegt sálfræðimat og sálfræðiviðtöl til að kanna andlegan styrk þeirra og getu til að standast andlegt álag áður en þeir fá inngöngu í Slökkviliðið?
Greinargerð
Eins og allir vita bíður það slökkviliðsfólks að starfa jafnan við gríðarlega erfiðar aðstæður. Erfiðar upplifanir geta ýtt undir líkamleg og andleg streituviðbrögð sem sýnt hefur verið að geti síðar leitt til áfallastreitu. Í kröfum um inntökuskilyrði segir eftirfarandi “Þær/þeir sem verða ráðnar/-ir til starfa sem slökkviliðsmenn skulu hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd“
Fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins lýtur að því hvernig þessir andlegu hlutir eru metnir og hvort umsækjendur gangi undir ítarlegt sálfræðimat áður en umsókn þeirra er samþykkt. Það segir sig sjálft að starf eins og þetta hentar ekki öllum, þrátt fyrir að mörgum gæti þótt það spennandi vegna áskorana sem það krefst.