Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna um minnisvarða fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis
Flokkur fólksins skilur að vissu leyti hugsunina að baki þessari tillögu. Flokkur fólksins líður með öllum þeim sem hafa orðið fyrir ofbeldi og vill gera allt til að auka forvarnir og fræðslu til að sporna megi við ofbeldis tilfellum. En Flokkur fólksins telur ekki rétt að fjárfesta í einhverjum sérstökum minnisvarða. Þeir umsagnaraðilar sem boðið var að senda inn umsögn eru meira og minna á sama máli. Áherslan er á að verja fjármunum í forvarnir og fræðslu og ekki síst úrræði fyrir þolendur ofbeldis og meðferð fyrir gerendur eftir atvikum Mannréttinda-og ofbeldisvarnarráð óskaði eftir umsögn nokkurra félagasamtaka um tillöguna og eru þær að mestu samhljóma skoðun fulltrúa Flokks fólksins. Öll félagasamtökin telja ekki tímabært að reisa minnisvarða um eitthvað sem var og öll eru þau sammála um að skynsamlegra sé að verja fjármunum Reykjavíkurborgar í forvarnir og fræðslu gegn ofbeldi. Hugmyndin um minnisvarða er í grunnin falleg og er lögð fram með góðum hug. Fulltrúi Flokks fólksins er sammála ofangreindum samtökum um að betra sé að nýta fjármagn í fólk, forvarnarstarf og fræðslu frekar en einhvers konar táknmynd um ofbeldi sem við erum ennþá að berjast gegn.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 21. maí 2024, um erindisbréf um samráðsvettvang um börn og ungmenni í tengslum við ofbeldi.
Þessi tillaga er nokkurs konar mótsvar eða breytingartillaga við tillögu Flokks fólksins um stofnun stýrihóps sem myndi kortleggja aukinn vopnaburð meðal ungmenna í Reykjavík. Þessi tillaga gerir ráð fyrir víðtækara samráði m.a. að fulltrúar frá hinum ýmsu ríkisstofnunum og öðrum félögum taki sæti í samstarfshópnum. Kostir og gallar eru við svo stóran samráðshóp það gæti t.d. reynst erfitt að finna fundartíma sem hentar öllum en vonandi mun það ganga. Í samráðshópnum er fjöldi embættismanna og starfsmenn sviða. Fulltrúi Flokks fólksins hefur nokkrar áhyggjur af því að það virðast ekki margir í hópnum koma að beinu starfi með börnum og ungmennum. Fulltrúi Flokks fólksins vill því hvetja formann hópsins að kalla til funda þá sem starfa á gólfinu þ.e. í nánum tengslum við börn og ungmenni. Mikilvægt er að heyra þeirra sjónarmið. Fulltrúi Flokks fólksins óskar samráðshópnum velfarnaðar í starfi.
Ný mál
Lögð fram svohljóðandi tillaga Flokks fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að í stað þess að setja fjármagn í minnisvarða fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis eins og tillaga Vinstri Grænna kveður á um, þá leggi Reykjavíkurborg til meira fjármagn í forvarnarstarf og fræðslu gegn kynbundnu ofbeldi. Jafnréttisskóli Reykjavíkurborgar er vanfjármagnaður en skólinn hefur staðið sig ákaflega vel í að sinna slíku forvarnarstarfi. Betra er að setja fjármuni í fræðslu og forvarnir en táknmynd ofbeldis.
Lögð fram svohljóðandi tillaga Flokks fólksins:
Flokkur fólksins leggur til að mannréttinda og ofbeldisvarnarráð fari í átak til að minnka ofbeldi gegn eldra fólki sem því miður er staðreynd í samfélaginu. Lagt er jafnframt til að mannréttindaskrifstofan útbúi bækling með fræðslu um ofbeldi og með upplýsingum um hvert fólk gæti leitað til að fá hjálp og stuðning. Bæklingnum væri síðan dreift til eldri borgara í Reykjavík.
Greinargerð
Á nýafstöðnum landsfundi Landssambands eldri borgara var nokkuð rætt um þá staðreynd að aldraðir eru líklegri til að vera útsettir fyrir ofbeldi en aðrir þjóðfélagshópar og ólíklegri ti að tilkynna það. Erfitt er að upplýsa og greina ofbeldismálin sem upp koma þar sem þolendurnir eru oftar en ekki háðir ofbeldismönnunum. Tilkynningum til Neyðarlínunnar um ofbeldisbrot á eldra fólki hafa aukist og hefur starfsfólk Neyðarlínunnar áhyggjur af þróuninni. Eðli ofbeldisins getur verið með ýmsum hætti, það geti verið líkamlegt, andlegt, fjárhagslegt, stafrænt eða kynferðislegt. Auk þess verður starfsfólk Neyðarlínunnar vart við margs konar vanrækslu á öldruðu fólki.