Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 30. október 2024 – til afgreiðslu að hluta:
Liður 14.
Fulltrúi Flokks fólksins lýsir furðu sinni á þeim óvenju mikla fjölda kæra sem hér koma fram en þær eru nú 11 og hafa sjaldan verið svo margar. Ítrekað hafa komið upp mál þar sem skipulagsyfirvöld eru sökuð um að segja ekki satt – jafnvel “falsa gögn” eða breyta þeim samkvæmt því sem skjólstæðingar umhverfis- og skipulagssviðs hafa sagt á opinberum vettvangi. Allt of oft fást ekki svör, gögnum og upplýsingum er haldið leyndum og hefur verið fullyrt að ekki sé alltaf unnið af heiðarleika og gagnsæi. Þetta er miður og telur Flokkur fólksins að endurreisa þurfi embætti umboðsmanns borgarbúa eins og það var á árunum 2013-2020. Mistök voru að leggja af embættið. Verkefni umboðsmannsins voru flutt yfir til innri endurskoðunar og búinn til eins konar „ráðgjafi íbúa“ hjá því embætti. Þetta fyrirkomulag hefur virkað illa og nú hefur fólk sem telur á sér brotið af skipulagsyfirvöldum ekki annað fært en að fara með mál fyrir dómstóla sem er bæði dýrt og tímafrekt. Nefna má mál Loftkastalan en eigendur hans telja borgina hafa brotið illilega á sér og hefur málið velkst um í borgarkerfinu í mörg ár. Áhyggjuefni er að sjá svo mikið af kærum berast og skoða þarf ástæður þess að þeim hafi fjölgað.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 17. október 2024:
Liður 2
Undir kynningu Félagsbústaða á aðgengilegu húsnæði fyrir fatlað fólk bera hönnuðir ríka ábyrgð gagnvart eiganda að húsnæði standist algilda hönnun og þar af leiðandi aðgengi fyrir alla. Með algildri hönnun skal tryggt að fólki sé ekki mismunað um aðgengi og almenna notkun bygginga á grundvelli fötlunar, skerðinga eða veikinda og það geti með öruggum hætti komist inn og út úr byggingum, jafnvel við óvenjulegar aðstæður, t.d. í eldsvoða. Því miður er ekki mikið til af sérútbúnum íbúðum hjá Félagsbústöðum fyrir fatlað fólk. Reynt er að bregðast við til að auka aðgengi eftir þörfum hvers og eins s.s. að fjarlægja sturtugler og skipta um salerni. Almennt má segja að Reykjavíkurborg hafi verið sein að taka við sér að hugsa um aðgengi fyrir fatlað fólk. Algild hönnun er sem dæmi tiltölulega nýtt í umræðunni. Aðgengi í opinberum byggingum borgarinnar er víða slæmt og hefði ekki komið til einkaframtak með uppsetningu rampa væri borgin í enn verri málum. jg HÞ
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fundargerð íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 16. október 2024:
Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir tillögu íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals að grípa til viðeigandi ráðstafana svo að almennir lóða- og framkvæmdaskilmálar vegna uppbyggingar í borgarhlutanum verði virtir. Fulltrúi Flokks fólksins hefur margoft bókað um sóðaskap á og í kringum lóðir sem fyrir löngu hefur verið úthlutað en ekki enn byggt á . Lóðirnar eru notaðar notaðar sem geymslustaður fyrir sorp með tilheyrandi sóðaskap og slysahættu.
Árið 2023 lagði fulltrúi Flokks fólksins til að gerð yrði úttekt á þróun Úlfarsárdals. Þetta var lagt til vegna fjölmargra kvartana sem borist höfðu. Kvartanirnar ná yfir breytt svið m.a. um hversu illa gengur að ljúka uppbyggingu hverfisins. Upplýsingar hafa borist um að lóðarhafar láti lóðir standa auðar árum saman og eru þær fullar af t.d. byggingarúrgangi. Talað hefur verið um að lóðir hafa farið á ,,vergang í bönkum” eins og það er orðað frá einum íbúa. Hverfið telst varla nýtt lengur og talið er að yfir 30 lóðir séu óbyggðar eða ólokið. Gert var ráð fyrir 15.000 íbúum í hverfinu og fullri sjálfbærni. Langt er í land að svo megi verða. Enn er ekki komin matvöruverslun í hverfið og til stóð að hverfið ætti að vera blanda af íbúðar- og atvinnuhúsnæði sem heldur ekki bólar á. jg HÞ