Borgarráð 9. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Auglýsing á tillögu að hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.1, Háteigshverfi; auglýsing á tillögu að hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.2, Hlíðahverfi og auglýsing á tillögu að hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.3, Öskjuhlíðarhverfi:

Lagðar eru fram tillögur að nýju hverfisskipulagi Hlíða, hverfi 3.1, Háteigshverfi, 3.2 Hlíðahverfi og 3.3 Öskjuhlíðahverfi. Stefnt er að því að ljúka við gerð hverfisskipulags fyrir öll hverfi borgarinnar. Tillögurnar eru svipaðar í grunninn fyrir öll hverfin að því leyti að gert er ráð fyrir að fólk geti gert breytingar á eigin húsnæði án þess að fara í gegnum tímafrekan feril. Mikilvægt er einmitt að ferillinn sé skilvirkur og hraður. Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á margt í þessum tillögum og sýnist sem reyna eigi að hafa gott og þétt samstarf við íbúa í gegnum íbúafundi og samtal, maður á mann. Þar sem um er að ræða aukið byggingarmagn að einhverju marki er samráð sérstaklega mikilvægt við þá sem næst búa t.d. ef bæta á við hæðum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lagt er til að borgarráð samþykki að Reykjavíkurborg taki þátt í útvíkkun verkefnisins Römpum upp Ísland:

Römpum upp Ísland – opinberar byggingar. Þetta er gott mál. Flokkur fólksins vill sérstaklega þakka frumkvöðli þessa verkefnis fyrir allt sem hann hefur gert í þágu þeirra sem njóta góðs af römpum. Verkefnið er ómetanlegt og hefði sennilega ella aldrei orðið að veruleika. Einkaframtak þetta hefur lyft grettistaki í að auka og auðvelda aðgengi. Í raun og sanni hefðu stjórnvöld átt að eiga þetta frumkvæði og það fyrir löngu og þá í samvinnu við þá sem málin varða eins og lög og reglur gera ráð fyrir.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 7. nóvember 2023:

Í þessari tillögu borgarstjóra er lagt til að leita umsagnar KFUM og KFUK og Listasafns Reykjavíkur um hvort taka eigi minnismerki um sr. Friðrik Friðriksson sem stendur í Lækjargötu af stalli í ljósi ásakana um að hann hafi beitt drengi kynferðislegu ofbeldi. Sr. Friðrik stofnaði KFUM og KFUK á Íslandi. Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram tillögu á fundi borgarráðs 2. nóvember sl. um að láta fjarlægja þessa styttu af sr. Friðriki úr augsýn almennings vegna ásakana á hendur honum um kynferðisbrot eins og fram kemur í bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um ævi og störf prestsins. Sjálfsagt er að leita umsagnar KFUM og KFUK af virðingu við þau ágætu félög enda málið mikið áfall fyrir félögin og harmleikur. Fulltrúi Flokks fólksins telur þó að fjarlægja eigi styttuna eins fljótt og unnt er til þess að forðast að málið dagi uppi. Sýna þarf þolendum þá virðingu að leyfa því ekki að gerast. Hér er um ákvörðun borgarráðs að ræða.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lagt fram bréf innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 30. október 2023, þar sem skýrsla um eftirlitsmyndavélar á vegum Reykjavíkurborgar, dags. október 2023:

Fulltrúi Flokks fólksins hefur fram til þessa verið talsmaður þess að eftirlits- og öryggismyndavélar séu settar upp þar sem talin er þörf og ástæða og þá í kjölfar mats sérfræðinga þar að lútandi. Sérstaklega er slíkur búnaður eftirsóknarverður þar sem börn koma saman í námi, starfi eða leik. Þótt myndavélar sem þessar komi ekki í veg fyrir að glæpur sé framinn hafa þær fælingarmátt og auðvelda að mál séu upplýst. Þannig eru eftirlitsmyndavélar almennt til bóta. Með þeim má einnig sjá hverjir skemma með veggjakroti og gera þá ábyrga fyrir verknaðinum. Ef tækjabúnaður sem þessi og gögn honum tengd eru ekki misnotuð til að hefta frelsi eða frelsistilfinningu einstaklinga á að beita eftirlitsmyndavélum víða. Það hefur auk þess komið fram í umsögn mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu að samkomulagið um öryggismyndavélar samræmist mannréttindastefnunni en einungis ef vel útfærðar og nákvæmar verklagsreglur fylgja því. Öryggis- og eftirlitsmyndavélar eru að verða eðlilegur hlutur í öruggum borgum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lögð fram fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 2. nóvember 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið undargerðarinnar:

Fulltrúi Flokks fólksins hlakkar til að fá umsögn skólaráðs Klettaskóla, starfsfólks Klettaskóla, foreldrafélags Klettaskóla, frístundamiðstöðvarinnar Kringlumýrar, aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks, Þroskahjálpar, Umhyggju og þeirra sveitarfélaga sem nýta þjónustuna. Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á tillögur starfshópsins sem er að til verði tveir sérskólar fyrir fötluð börn í Reykjavík og nágrenni. Annar við Suðurhlíð 9 (Klettaskóli) og hinn við Bakkastaði 2 (Korpuskóli). Þátttökubekkur leggst af ef opnaður verður nýr sérskóli. Settar eru fram sviðsmyndir, einar þrjár. Í öllum tilfellum er gert ráð fyrir að frístundastarfið fylgi með í þá skóla sem árgangarnir fara og sé staðsett innan skólabygginganna.  Þetta atriði er gríðarmikilvægt og eitthvað sem þarf að vera til grundvallar þegar verið er að skipuleggja og hanna nýja skóla. Fulltrúa Flokks fólksins hefur aldrei þótt svokallaðir þátttökubekkir góð lausn enda hugsuð fyrst og fremst í upphafi sem neyðarúrræði. Veikleikar við þá eru of margir. Fyrst og fremst leysir það ekki vanda Klettaskóla og ýtir auk þess frekar undir aðgreiningu heldur en skóli án aðgreiningar. Komið er að þolmörkum og það fyrir löngu. Finna þarf alvöru og varanlega lausn.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 19. október og 2. nóvember 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir öðrum lið fundargerðarinnar frá 19. október:

Tekið er eftir bókun Sjálfstæðisflokksins undir liðnum þar sem lagt er fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs dags. 16. október, merkt FAS23030049, með stöðuskjali fjárfestinga og viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við innkaupareglur Reykjavíkurborgar og samþykktir innkaupa- og framkvæmdaráðs. Í henni er lýst vonbrigðum með framsetningu breytinga við fjárfestingaáætlun og segir: „Í stöðuyfirliti fjárfestingar sem einnig er lagt fram til kynningar er eingöngu sýnd hversu miklum fjármunum er búið að eyða í þau verkefni sem eru í gangi en ekki hvernig framganga verkefnanna gengur.“ Fulltrúi Flokks fólksins hefur margsinnis lýst áhyggjum sínum af innleiðingarmálum þjónustu- og nýsköpunarsviðs og í þessari bókun kemur fram að tafir séu á uppsetningu og innleiðingu á nýjum kerfum sem mögulega spila þarna inn í. Óskað er eftir skýringum og væri gott ef ábyrgðaraðilar á þessum verkefnum komi einnig með skýringu á þessu fyrir borgarráð.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 23. október 2023. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. og 12. lið fundargerðarinnar:

Í 4. lið fundargerðarinnar segir: „Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur skorar á eigendur að skipa vinnuhóp til að endurskoða eigendastefnu, sameignarsamning og eftir atvikum lög um Orkuveitu Reykjavíkur, t.d. varðandi félagsform“. Fróðlegt væri að vita hverjir eru gallar á núverandi fyrirkomulagi að mati stjórnarinnar. 12. liður fjallar um fýsileikakönnun á stuðningi við uppsetningu sólarsella á heimilum í Reykjavík og þá hugmynd að skoða möguleika á sambyggðum vindmyllum. Það er hæpið að mati fulltrúa Flokks fólksins að það þurfi að tvinna saman sólarsellum og möguleikum á vindmyllum. Umhverfislega eru þessir kostir eins og svart og hvítt. Sólarsellur geta verið á þökum húsa sem fáir yrðu varir við. Vindmyllur eru hins vegar einstaklega áberandi og hafa mikil umhverfisáhrif í þéttbýli.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum:  Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 19 mál. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. og 14. lið yfirlitsins:

  1. liður um fundargerðir stefnuráðs byggðasamlaganna. Fara á yfir stefnu í úrgangsmálum enda veitir ekki af því þar sem þessi mál eru á einhverju undarlegu flökti. Fyrirvaralaust er hætt við að vinna að brennslustöð í Álfsnesi. Það hefur ekki verið útskýrt. Slík stöð myndi leysa margan vandann og brennsluhæft sorp yrði að verðmæti en ekki vandamáli. Þá er gott að sjá að í gangi er stefnumótunarvinna á vegum stjórnar SORPU bs. Ekki er í fundargerð sagt nokkuð um verkefnið nema að gögn verði birt síðar. En vonandi er verið að reyna að gera Strætó að aðlaðandi samgöngukosti.
    14. liður: Fulltrúi Flokks fólksins fagnar því að starfshópur skuli nú rýna og greina mönnun, rekstur, umfang og þróun á miðlægri starfsemi Reykjavíkurborgar og skili skýrslu á næsta ári þar sem fram koma tillögur að hagræðingaraðgerðum. Þetta er nánast orðrétt út úr munni fulltrúa Flokks fólksins í ræðu í fyrri umræðu um fjárhagsáætlun að þarna eru mörg sóknarfæri til að hagræða og spara.

 

Ný mál

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn um samanburð á fjármögnunarsamningum íþróttahúsa borgarinnar og sérstaklega upplýsingum um aðstöðu og aðstöðumun íþróttafélaga í íþróttahúsum borgarinnar.

Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá samanburð á fjármögnunarsamningum íþróttahúsa borgarinnar og sérstaklega upplýsingum um aðstöðu og aðstöðumun íþróttafélaga í íþróttahúsum borgarinnar. Sérstaklega er horft til þess að fá upplýsingar um aðstöðumun félaga sem nota Laugardalshöllina, félaga eins og Ármanns og Þróttar, ÍR, Vals, KR og Fjölnis sem og fleiri. Hvernig er aðgengi félaganna að íþróttahúsum borgarinnar, hver sér um að úthluta tíma/dögum til íþróttafélaganna og hvernig eru reglurnar í sambandi við það? Hvernig er t.d. gætt að jafnræði milli félaganna við úthlutun tíma? MSS23110060

Vísað til meðferðar menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs.

 

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn upplýsinga hvort það teljist eðlilegt og rétt að greinargerð þjónustu- og nýsköpunarsviðs með fjárfestingaráætlun fyrir árið 2024 sé skrifuð áður en fjárfestingaráætlun borgarinnar liggur fyrir.:

Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga hvort það teljist eðlilegt og rétt að greinargerð þjónustu- og nýsköpunarsviðs með fjárfestingaráætlun fyrir árið 2024 sé skrifuð áður en fjárfestingaráætlun borgarinnar liggur fyrir. Greinargerð þjónustu- og nýsköpunarsviðs með fjárfestingaráætlun miðast því við fimm ára fjárhagsáætlun frá fyrra ári eins og sjá má í greinargerð með fagsviðum á bls. 80. Er fordæmi fyrir þessu? Fulltrúi Flokks fólksins telur að það hljóti að vera óásættanlegt að greinargerð sviðs með tillögu að fjárheimildum fyrir árið 2024 byggi á árs gömlum forsendum. Þess vegna er einnig spurt hvort ekki sé eðlilegast að greinargerðin verði dregin til baka og nýrri greinargerð skilað sem byggir á þeim forsendum sem liggja fyrir nú á haustdögum. Greinargerð um fjárfestingar næsta árs hjá sviðinu á auðvitað ekki að fjalla um hvað hefur verið unnið á yfirstandandi ári heldur um forsendur fjárheimilda komandi árs. FAS23010019

Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.