Borgarstjórn 11. júní 2024

Borgarstjórn Reykjavíkur
11. júní 2024
Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um að fylgja sviðsmynd 1 við uppbyggingu skólastarfs í Laugardal
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fylgja sviðsmynd 1 um framtíðaruppbyggingu skólastarfs í Laugardal sem samþykkt var árið 2022.

Greinargerð
Reykjavíkurborg hyggst ganga á bak eigin loforða um að framtíðaruppbygging skólastarfs í Laugardal verði á grundvelli skólanna sem fyrir eru. Í október 2022 samþykkti skóla- og frístundaráð Reykjavíkur að ganga í takt með íbúum hverfisins eftir umtalsvert samráð við hagaðila, stjórnendur, starfsmenn, foreldra og börn að fylgja svokallaðri sviðsmynd 1 úr skýrslu starfshóps um framtíðarskipan skóla- og frístundastarfs í Laugarnesi og Langholtshverfi. Sú sviðsmynd felur í sér að skólarnir þrír haldi sér í núverandi mynd og byggt verði við þá alla til að mæta fyrirsjáanlegri fjölgun nemenda í skólahverfunum. Tillagan var samþykkt í borgarráði. Sviðsmynd 1 naut víðtæks stuðnings meðal foreldra, sem höfðu lengi gagnrýnt ákvarðanafælni og ráðaleysi borgaryfirvalda varðandi skólamál í Laugardal og var þessari niðurstöðu því fagnað af íbúum. Í tæp tvö ár hafa borgaryfirvöld hins vegar dregið íbúana á asnaeyrum sem biðu eftir að heyra meira um framgang mála. Ítrekuðum óskum um upplýsingar varðandi stöðu og þróun mála var mætt með ærandi þögn.

Nú kemur í ljós að meirihlutinn hyggst kúvenda málinu og hefur lagt fram tillögu um að fallið verði frá fyrri ákvörðun um sviðsmynd 1 og þess í stað verði ráðist í sviðsmynd 4. Samkvæmt henni verður ekki byggt við skólana eins og áður hafði verið ákveðið og loforð gefin um heldur á að byggja nýjan unglingaskóla frá grunni fyrir Laugarneshverfi.

Kúvending meirihlutans hefur vakið sterk viðbrögð meðal foreldra, kennara og skólastjóra. Fjölmennir fundir hafa verið haldnir og vinnubrögðum borgaryfirvalda í málinu var harðlega mótmælt, sem og tillögu um allt aðra sviðsmynd en samið var um á sínum tíma.
Í sviðsmynd 4 er stefnan sú að Laugarnesskóli og Laugalækjarskóli verði fyrir yngri deildir grunnskóla, sem aðeins Laugarnesskóli er nú og í Langholtsskóla verði aðeins yngri deildirnar en allir tíu bekkirnir eru þar núna. Þá verða þetta tveir yngri barna skólar sem að þýðir að vinir eru ekki endilega að fara í sama skóla. Íbúar telja að með þessu sé yngri deildum skipt upp á milli tveggja skóla og hverfið slitið í tvennt. Foreldrar telja að það sé slæm hugmynd að skilja á milli Laugarness- og Laugalækjarskóla og setja alla unglinga hverfisins í einn skóla. Um verði að ræða tvö skólahverfi.

Vinnubrögð borgaryfirvalda í skólamálum í Laugardal eru til skammar. Flokkur fólksins telur að meirihlutinn geti ekki leyft sér að koma svona fram við borgarbúa. Látið er sem borgarar hafi rödd en þegar upp er staðið er það einungis til málamynda. Foreldrafélögin hafa verið svikin og ljóst er að þau bera ekki traust til borgaryfirvalda eftir síðustu atburði. Efna þarf fyrri loforð um að byggja við skólana í Laugardal. Það er skylda meirihlutans að tryggja farsælt skólastarf og gera það í sátt og samvinnu við borgarbúa. Þess vegna leggur Flokkur fólksins til að sviðsmynd 1, sú sviðsmynd sem valin var og samþykkt verði fylgt í hvívetna.

 

Bókun Flokks fólksins við afgreiðslu málsins:

Flokkur fólksins leggur til að tillaga um sviðsmynd 1 sem valin var af íbúum Laugardals og samþykkt var í borgarráði 2022 verði fylgt. Að valta yfir heilt hverfi með því að þvinga inn aðra ólíka sviðsmynd eftir allt það sem á undan er gengið er vanvirðing og eiginlega valdníðsla. Um er að ræða gróf samráðssvik. Meirihlutinn leggur fram málsmeðferðartillögu um að vísa tillögunni til skóla og frístundaráðs en því miður má telja víst að þar bíði hennar tunnan eða tætarinn ef því er að skipta. Meirihlutinn vill byggja nýjan skóla í stað þess að byggja við eldri skóla og kallar það sviðsmynd 4 sem er afbrigði af eldri sviðsmynd 3 sem íbúar höfnuðu alfarið á sínum tíma. Þessi nýja útfærsla mun slíta Laugarneshverfi í tvennt. Sviðsmynd 4 leysir ekki langtímavanda Langholtsskóla. Sviðsmynd 1 hefur aldrei verið könnuð til hlítar. Tilkoma Þjóðarhallar eru ekki rök fyrir að ekki er hægt að fylgja sviðsmynd 1 enda lengi vitað að Þjóðarhöll muni rísa á þessum stað. Íbúar Laugardals og Flokkur fólksins hafna því að skólahverfinu verði umbylt með vanhugsuðum breytingum sem virðast bera keim af tækifæriskenndum lausnum frekar en að byggja á faglegum forsendum og samráði.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Umræða um framtíðarskipulag skóla í Laugardal:

„Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Umræðan sem meirihlutinn ber á borð í borgarstjórn um framtíðarskipulag skóla í Laugardal er samsafn af bulli svo vægt sé til orða tekið. Rökin fyrir að henda út sviðsmynd 1 fyrir sviðsmynd 4 sem er ný útfærsla af sviðsmynd 3 sem var hafnað á sínum tíma, halda ekki vatni. Ámælisvert er að sá hópur sem treyst var fyrir að útfæra og kostnaðarmeta sviðsmynd 1 skyldi fara svo gróflega út fyrir umboð sitt. Í stað þess að útfæra samþykkta sviðsmynd 1, var henni hent út fyrir uppfærða sviðsmynd 3 sem búið var að hafna. Skýrslan með þessari nýju sviðsmynd er gefin út í nóvember 2023 en ekki birt fyrr en hálfu ári síðar. Nú á að hraða málinu og aðeins stuttur frestur er gefin til umsagnar og umræðu innan skólasamfélagsins. Tvö ár frá því að sviðsmynd 1 var samþykkt hafa farið til spillis. Rök meirihlutans fyrir þessari kúvendingu í málinu eru veikburða t.d. þau að bygging Þjóðarhallar hafi breytt afstöðunni. Það hefur legið fyrir í mörg ár að byggja ætti Þjóðarhöll. Meirihlutinn fullyrðir að nú liggi fyrir lóð fyrir safnskóla, hinn svokallaði Þríhyrningur. Þróttur hefur skýran afnotarétt af þeim reit og samkvæmt viljayfirlýsingu Þróttar á ekki að gefa þann reit eftir.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um greiðslukerfi strætófargjalda gagnvart öryrkjum:

Fyrir rúmu ári lagði Flokkur fólksins til að öryrkjar fengju sama rétt og aðrir farþegar Strætó, þ.e. að öryrkjar gætu keypt afsláttarkort á fleiri stöðum en á Hesthálsi. Í umsögn Strætó um tillöguna segir að hlutverk Strætó sé að gæta hagsmuna eigenda sinna og að gæta þess að viðskiptavinir greiði rétt fargjald. Stjórnendur Strætó sjá svindlara í hverju horni og eru öryrkjar sérstaklega tortryggðir. Flokki fólksins er brugðið að sjá viðhorf Strætó til öryrkja. Þetta er sláandi því vitað er að ÖBÍ var búið að gera samkomulag við Strætó um að öryrkjar gætu keypt staka miða og tímabilskort á öðrum sölustöðum gegn framvísun gildra skilríkja. Rafræn skilríki eru ekki aðgengileg fyrir margt fatlað og aldrað fólk. Öryrkjar neyðast því til að kaupa sér farmiða á fullu verði og þá er verið að brjóta á réttindum þeirra. Öryrkjar ættu að vera síðasta fólkið sem gert er að fara upp á Hestháls til að kaupa strætómiða. Flokkur fólksins harmar þetta viðhorf Strætó til öryrkja. Nú fá öryrkjar ekki að kaupa afsláttarkort eins og aðrir þó þeir framvísi skilríkjum frá Tryggingastofnun. Verið er að bíða eftir að eftirlitskerfi verði sett upp til að fyrirbyggja svindl. Þetta finnst Flokki fólksins gróf mismunun.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 23. maí og 6. júní. MSS24010001

Liður 1

Skotæfingasvæði á Álfsnesi, breyting á aðalskipulagi, er samþykktur með 20 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. USK23030130 Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. lið fundargerðarinnar frá 23. maí:

Nú á að framlengja starfsleyfi fyrir skotæfingasvæði á Álfsnesi til 2028 fyrir Skotfélag Reykjavíkur og Skotveiðifélag Reykjavíkur. Fulltrúi Flokks fólksins hefur litla trú á að skotvellirnir fari 2028. Þær breytingar sem hér á að framkvæma til að hýsa áfram skotvellina eru kostnaðarsamar og er reikningurinn sendur á skattgreiðendur. Íbúar á Kjalarnesi hafa staðið í stappi við borgaryfirvöld í tæpa tvo áratugi. Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað bókað um málið enda ofbýður honum yfirgangur meirihlutans gagnvart íbúum Kjalarness í þessu máli. Íbúar mega sín lítils. Það er auðvelt að setja sig í spor íbúanna sem mega þola mengun af ýmsu tagi. Í gögnum kemur skýrt fram að talsvert magn er af höglum í jarðvegi, bæði gömul og ný. Staðfest er að högl berast niður í fjöru frá skotsvæðunum og enda í maga fugla. Niðurstöður greiningar benda til þess að hlutfall blýhagla sé hærra en ætlað var frá upplýsingum sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur haft fram að þessu. Niðurstöður mælinga á hávaðamengun koma heldur ekki vel út. Stytta þarf kvöldopnunartíma til að takmarka ónæði vegna skothljóða. Tekið er undir athugasemd þar sem segir: Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur ekkert gert annað en að matreiða niðurstöður svo skotfélögin geti haldið sinni starfsemi áfram á Álfsnesi.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagðar fram fram fundargerðir forsætisnefndar frá 7. júní, mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 23. maí, menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs frá 10. og 24. maí. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 8. lið fundargerðar menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs frá 10. maí:

Tillaga Flokks fólksins um að hætta við að stytta opnunartíma Laugardalslaugar var felld af meirihlutanum í menningar-, íþrótta-, og tómstundaráði. Ákvörðunin var sögð vera í sparnaðarskyni. Nýlega var opnunartíminn styttur og er lauginni nú lokað kl. 21. Ekki eru mörg ár síðan opið var til 23:00 um helgar og fyrir skömmu síðan var tilraunamiðnæturopnun einu sinni í viku slegin af þrátt fyrir miklar vinsældir. Fulltrúa Flokks fólksins finnst tillaga sín hófleg þar sem eingöngu er verið að leggja til að ein sundlaug verði opin lengur. Fjöldi manns hefur mótmælt þessari lokun og lýst furðu sinni á þessari ákvörðun. Sérstaklega hafa foreldrar unglinga látið í sér heyra. Sundlaugin hefur verið samkomustaður unglinga á kvöldin um helgar. Sundlaugin hefur skipað stóran sess í félagslífi unglinga. Foreldrar og aðrir sem láta sig málið varða benda á hvað sundlaugin sé mikilvægur samkomustaður því þar eru unglingarnir eru þá ekki á meðan að mæla göturnar eða hanga í símanum heldur njóta hreyfingar og samverustunda með jafningjum. Sérstaklega er þessi lokun slæm nú þegar sumarið gengur í garð með björtum sumarkvöldum þar sem yndislegt er að njóta birtunnar og ylsins í lauginni að kvöldi til.