Ríkisstjórnin hefur sett málefni barna í algeran forgang. Sérstaklega er horft til snemmtækrar íhlutunar í leik- og grunnskóla. Öllu máli skiptir að sérfræðingar komi að málum á fyrstu stigum. Jafnframt er nauðsynlegt að vinna náið með foreldum samhliða aðstoð við barnið með ráðgjöf og fræðslu.
Mikið hefur verið rætt um úrræði þegar barn er komið í stjórnlausa neyslu áfengis og eða annarra vímuefna. Afar mikilvægt er að hafa tiltækt svo kallað lokað sólarhingssúrræði. Öllu máli skiptir að börn í vímuefnavanda fái aðstoð eins fljótt og verða má.
Náist ekki að hjálpa barni á rétta braut fyrir 18 ára aldurinn er aukin hætta á að neyslan haldi áfram á fullorðinsárunum. Þá bíður sumra fátt annað en gatan með tilheyrandi neyslulíferni. Ungt fólk sem heldur áfram á neyslubrautinni eftir 18 ára aldurinn er í aukinni áhættu á að enda líf sitt fyrir eigin hendi eða láta í minni pokann fyrir neyslunni.
Úrræðin
Nýtt meðferðarheimili fyrir drengi tekur til starfa í Gunnarsholti nú í janúar. Annað nýtt meðferðarheimili er fyrirhugað á höfuðborgarsvæðinu og hefur þegar verið fjármagnað. Löngu tímabærar endurbætur á Stuðlum eru tryggðar í fjárlögum ásamt frekari uppbyggingu þar. Auknar öryggisráðstafanir hafa nýverið verið innleiddar á Stuðlum og dögum fyrir hvern og einn í neyðarvistun fjölgað. Barnamálaráðherra mun á næstu vikum leggja fram mestu breytingar á barnaverndarlögum í tuttugu ár.
Ráðherra boðar einnig frumvarp um símafrí í grunnskólum til að stuðla að betri líðan barna og hefur kallað eftir hækkun aldurstakmarks barna að samfélagsmiðlum. Þá hefur ráðherra einnig skipað stýrihóp til að móta fyrstu aðgerðaráætlun Íslands gegn fátækt barna. En áætlað er að um tíu prósent barna búi við fátækt í okkar ríka samfélagi. Undirrituð leiðir vinnu stýrihópsins sem hóf störf í nóvember.
Einnig hafa verið settar 500 milljónir í aðgerðir í baráttunni við ofbeldi gegn börnum og 500 milljónir í stuðning við börn af erlendum uppruna sem ekki stóð til að endurnýja. Framlög til Bergsins hafa verið hækkuð og nýlega var fyrsti langtímasamningurinn undirritaður við Lýðskólann á Flateyri. Um þrír milljarðar hafa verið settir í sérhæfða þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Hér er ekki um tæmandi lista að ræða en glöggt má sjá að ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar situr ekki auðum höndum í málefnum barna. Í hópi þingmanna stjórnarflokkanna eru sérfræðingar á þessu sviði þar með talin sú sem ritar þennan pistil. Hér er um að ræða stórt samvinnuverkefni margra ráðuneyta, stofnana og félagasamtaka. Stjórnarflokkarnir eru einhuga um að gera löngu tímabærar úrbætur í málefnum barna.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir sálfræðingur og þingmaður Flokks fólksin
Birt í Morgunblaðinu 8. 1. 2026