Fíkn fer ekki í sumarfrí

Flokkur fólksins hefur árum saman barist fyrir þá sem glíma við fíkn og hefur flokkurinn viljað standa vörð um meðferðarúrræði og að þau séu opin árið um kring. Segja má að þessi málaflokkur hafi verið vanræktur síðustu ár. Þeir sem hafa farið í meðferð á sjúkrahúsinu Vogi yfir sumartímann hafa staðið að
mestu óstuddir að henni lokinni. Eftirmeðferð hefur vantað í heilar sex vikur á ári hverju.
Í kosningabaráttunni var það eitt af kosningaloforðum Flokks fólksins að meðferðarúrræðum SÁÁ skyldi ekki loka yfir sumartímann enda fer fíkn ekki í frí.

Þegar ríkisstjórnin gerði sínar fyrirætlanir var það eitt af forgangsmálunum að fjármagn yrði eyrnamerkt
svo halda mætti meðferðarúrræðum opnum í sumar. Nú fer sumri að halla og hafa yfir 40 manns
sótt meðferð í Vík í sumar sem ella hefðu komið að lokuðum dyrum. Það er góð tilfinning að vita
að tugir Íslendinga gátu auk þess farið í eftirmeðferðir í sumar að lokinni vímuefnaafeitrun á Vogi. Ljóst er að það er greinilega þörf fyrir samfellda meðferð árið um kring og það hefur formaður SÁÁ staðfest.

Flokkur fólksins mun fylgja því eftir að svo verði.  Fyrir þá sem glíma við fíkn skiptir samfellan miklu
máli. Að geta byrjað í meðferð og haldið áfram samfellt skiptir sköpum fyrir fjölmarga til að halda edrúmennsku. Yfirleitt að loknu sumri hefur starfsfólks SÁÁ beðið óheyrilega langur biðlisti þeirra sem vilja komast í meðferð og eftirmeðferð.

Að baki sérhverjum áfengis- og vímuefnaneytenda er fjölskylda. Börn neytandans eiga oft um sárt að binda. Þess vegna skiptir svo miklu máli að ekki sé skellt í lás á meðferðarstofnunum yfir sumartímann. Staðfest hefur verið í rannsóknum að meira er drukkið í fríum og á það bæði við um jól, páska og á sumrum. Mörg börn áfengis- og vímuefnaneytenda kvíða einmitt fríum því þá er ástandið oft verra á heimilunum. Því fjármagni sem veitt er til meðferðarúrræða SÁÁ til að halda úrræðunum opnum
á sumrin er því vel varið.

SÁÁ býður upp á þjónustu fyrir börn áfengis- og vímuefnaneytenda án tillits til þess hvort foreldrið hafi sjálft farið í meðferð. Þjónustan er að mínu mati ómetanleg og hefur án efa bjargað mörgum
börnum frá niðurbroti. Samtalsmeðferð við börn áfengis- og vímuefnaneytenda getur bjargað lífum. Sjálf var ég barn í þessum aðstæðum og hef oft hugsað hversu mjög það hefði hjálpað að hafa einhvern að tala við um þessi mál. Að tala um veika foreldrið, fræðast um sjúkdóminn, tala um meðvirknina allt um kring og um eigin líðan og vanlíðan.

Það er afar mikilvægt að ríkisstjórnin hlúi vel að þessum viðkvæma málaflokki. Flokkur fólksins með formanninn Ingu Sæland í fararbroddi mun sannarlega ekki láta sitt eftir liggja nú sem áður.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins

Greinin er birt í Morgunblaðinu 9. ágúst 2015