Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer kynning á stöðu verkefna í aðgerðaáætlun atvinnu- og nýsköpunarstefnu Reykjavíkurborgar:
Flokkur fólksins gerir athugasemdir við að oddvitum minnihluta var ekki boðið að taka þátt í atvinnulífsfundi sem haldinn var með oddvitum meirihlutans og framáfólki í atvinnulífinu. Flokkur fólksins hefur ávallt lagt áherslu á að forgangsraða verkefnum. Þegar horft er til aðgerðaáætlunar atvinnu- og nýsköpunarstefnu sveitarfélagsins Reykjavíkur þarf að leggja áherslu á skilvirkni og að koma sem fyrst á fót nýsköpunarlausnum sem raunverulega létta á þjónustu og auka aðgengi borgarbúa að borgarkerfinu. Taka þarf mið af stöðu borgarsjóðs á hverjum tíma og láta á einkageiranum alfarið eftir þá tilraunastarfsemi og vöruþróun sem fyrirbærið nýsköpun í rauninni er. Allar áætlanir Reykjavíkurborgar varðandi atvinnuuppbyggingu og umbætur almennt verða þess vegna að vera með markvissri árangurstengingu frekar en ákveðinni áhættusækni og þeirri óvissu sem henni fylgir. Flokki fólksins finnst allt of mikið púður, tími og fé hafa farið í sköpun á alls konar mælaborðum, viðburðadagatölum og kortum.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um meðferð fyrirspurna, sbr. 5. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 21. nóvember 2023 og 4. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 1. desember 2023.
Það er alveg kýrskýrt í huga Flokks fólksins að kominn er tími til að stjórnsýsla borgarinnar sé í takt við stjórnsýslulög. Sá tími sem farið hefur í að svara fyrirspurnum eða afgreiða mál minnihlutans ef því er að skipta hefur verið síðustu ár hreint hlægilegur. Skemmst er að minnast þess að rétt fyrir áramót kom loks svar við fyrirspurn Miðflokksins um ársreikning sem lögð var fram 2019. Þetta er ekki eina dæmið um sein svör og ekki eina dæmið um að svar berist mörgum árum eftir að fyrirspurn er lögð fram eða að tillaga er afgreidd mörgum misserum eftir hún er lögð fram. Þetta á aðeins við um mál sem minnihlutinn leggur fram. Í þessari tillögu er miðað við að fyrirspurn sé svarað eigi síðar en fjórum vikum eftir að hún er lögð fram og bókuð í fundargerð. Ef það tekst ekki skal skýra ástæður þess. Þessi tímafrestur er viðunandi að mati fulltrúa Flokks fólksins.
Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 5. desember 2023, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um hæfi borgarfulltrúans Magnúsar Davíðs Norðdahl, sbr. 18. lið fundargerðar borgarráðs frá 21. september 2023:
Niðurstaða þessa máls er sú að talið er að lögmannsstörf borgarfulltrúans Magnúsar Davíðs Norðdahl hafi ekki í för með sér að hann sé vanhæfur til að taka sæti og fjalla um málefni flóttamanna á vettvangi velferðarráðs/mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs. Fulltrúi Flokks fólksins treystir þessu mati enda er það gert af sérfræðingum en vill á hinn bóginn nefna að starf borgarfulltrúa er fullt starf. Starf borgarfulltrúa er krefjandi starf, þ.e. ætli borgarfulltrúi að gefa sig allan í það. Það er mat Flokks fólksins að ef borgarfulltrúi ætlar að sinna starfi borgarfulltrúa af heilindum og einurð, halda úti aðhaldi og eftirliti og sinna tilheyrandi undirbúningi, lestri gagna fyrir fundi sem iðulega hafa langa dagskrá, útbúa mál, s.s. fyrirspurnir og tillögur og skrifa bókanir, þá sé varla hægt að vera í öðru starfi samhliða nema að takmörkuðu leyti.