Velferðarráð 22. nóvember 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Stafrænum vegvísi Velferðarsviðs

Stafræn þjónusta á velferðarsviði er gríðarlega mikilvæg og það er gott að heyra hvað velferðarsvið er vel undirbúið fyrir þessa vegferð. Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir með velferðarsviði um að það þurfi að flýta ferlum og hraða vinnu við Ráðgjafann. Fulltrúi Flokks fólksins telur gríðarlega mikilvægt að flýta ferlum varðandi skólaþjónustuna svo þeir geti nýst til að koma á farsæld barna. Flokkur fólksins vill jafnframt leggja áherslu á að það sé mikilvægt að Reykjavíkurborg vinni með öðrum sveitarfélögum og Stafrænu Íslandi að stafrænum umbreytingum