Mannréttinda- og ofbeldisvarnaráð 11. maí 2023

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Fram fer umræða um ofbeldi meðal ungmenna:

Eins og fram kom á síðasta fundi mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs hefur ofbeldi meðal unglinga aukist. Starfsmenn félagsmiðstöðva, kennarar og allir þeir sem starfa með ungu fólki benda á þessa óheilla þróun. Flokkur fólksins hefur í langan tíma talað fyrir því að allir taki höndum saman, skólar, félagsmiðstöðvar, foreldrar og aðrir sem umgangast ungmenni.Í október 2022 lagði borgarfulltrúi Flokks fólksins fram tillögu í borgarstjórn um stofnun stýrihóps til að bregðast við auknum vopnaburði meðal unglinga. Að gefnu tilefni vill fulltrúi Flokks fólksins enn og aftur minna á þessa tillögu. Fram hefur komið að á skóla- og frístundasviði sé verið að vinna í þessum málum. Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð fái kynningu á því í hverju sú vinna felst. Fulltrúi Flokks fólksins telur mikilvægt að sviðin vinni saman að þessu gríðarlega stóra verkefni. Það er gríðarlegt ákall út í samfélaginu um að það verði brugðist við þessu aukna ofbeldi meðal ungmenna með samstilltu átaki. Engin gögn eru til sem varpað geta ljósi á mikla aukningu ofbeldis í Reykjavík. Borgin er ekki með neitt heildarskráningarkerfi. Það er ekki boðlegt að Reykjavíkurborg, haldi ekki utan um skráningar á ofbeldismálum.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um greiningu á efnahagslegum ójöfnuði í Reykjavík, sbr. 9. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 13. apríl 2023:

Flokkur fólksins styður tillöguna um að framkvæma greiningu á efnahagslegum ójöfnuði í Reykjavík. Fátækt hefur aukist og rannsóknir sýna að ójöfnuður hefur einnig aukist. Mannréttindaráð og Mannréttindaskrifstofa eiga að setja á sinn forgangslista að vinna gegn fátækt og ójöfnuði. Minnt er á að þetta gerist á vakt Samfylkingarinnar. Þetta þarf að kortleggja en umfram allt bregðast við og koma með mótvægisaðgerðir. Það er komið nóg að flottum skýrslum og fallegum stefnuplöggum. því miður er minna um framkvæmdir. Ógn fátæktarinnar leggst mismunandi á fjölskyldur en verst á börnin í þeim fjölskyldum sem bágast standa. Þeir sem neyðast til að vera á leigumarkaði og eru ekki með þess hærri tekjur ná engan vegin endum saman. Lítið er eftir ef þá nokkuð þegar búið er að greiða nauðsynjar. Flokkur fólksins vill útrýma fátækt og berst gegn ójöfnuði. Það er skömm að því hvað hægt gengur í undirbúningi að innleiðingu á Barnasáttmálanum hjá Reykjavíkurborg.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um skráningu á ofbeldisbrotum, sbr. 7. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 27. apríl 2023.

Góðar upplýsingar leggja grunn að markvissum aðgerðum og skilvirkri vinnu að bæta þjónustu. Þess vegna styður Flokkur fólksins tillögur sem beinast að öflun upplýsinga, til þess að leggja megi fram virkt aðgerðarplan. Að safna upplýsingum og setja þær ofan í skúffu gagnast engum. Sú tillaga sem hér er lögð fram sem er að skrá og kortleggja ofbeldisbrot af hendi nemenda gagnvart kennurum og öðru starfsfólki í grunnskólum Reykjavíkurborgar er góð að því leyti að upplýsingar sem þessar hefur aldrei verið safnað saman á einn stað. Það er ekki til neinn miðlægur grunnur þar sem hægt er að fylgjast með fjölda tilvika og þróun. Flokkur fólksins hefur ítrekað reynt að ýta við mannréttinda og ofbeldisvarnaráði að beita sér fyrir að skoðað verði hvaða ástæður liggja fyrir auknum vopnaburði ungmenna í Reykjavík með það að markmiði að koma með mótvægisaðgerðir. Lagt var til að stofna stýrihóp sem legðist yfir þessa alvarlegu þróun. Ekkert er að frétta að tillögunni. Dæmi eru um að allt niður í 10 ára börn komi með hnífa í skólann og beiti þeim jafnvel. Hvergi er hægt að sjá á einum stað hversu mörg þessi tilfelli eru eða hvernig þróun þeirra er háttar.

 

Bókun Flokks fólksins undir liðnum: Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um aukið aðgengi barna að klámi, sbr. 8. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 27. apríl 2023:

Embætti landlæknis hefur gefið út skýrsluna Mat á áhrifum af stafrænu aðgengi barna að klámi á heilsu þeirra og líðan. Í skýrslu þessari má sjá tengsl klámáhorfs við ýmsa vanlíðan barna og ungmenna. Það er kannski ekki skrítið þar sem algeng þemu í klámi innihalda kynjamismunun, kynþáttafordóma, ofbeldi, fjandsamlega hegðun og niðurlægingu, sifjaspell, tilfinningalega stjórnun. Aðgengi að klámefni hefur aldrei verið auðveldara, þekkt er í lýðheilsu að aðgengi hefur áhrif á ýmis konar neyslu. Flokkur fólksins hefur miklar áhyggjur af auknu aðgengi barna að klámi og þeim afleiðingum sem það áhorf hefur á líf þeirra. Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hvort og þá hvaða áform Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa sem heyrir undir mannréttinda og ofbeldisvarnaráð hafi til að sporna við þessari óheillaþróun? Fyrirspurninni var vísað frá og finnst fulltrúa Flokks fólksins það miður.

 

Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um embætti aðgengisfulltrúa, sbr. 9. lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 27. apríl 2023 MSS23040244

Vísað til meðferðar aðgengis- og samráðsnefndar.